Víkurfréttir - 09.02.2012, Síða 13
13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012
Grindavíkurmærin Dína María gerir það gott í USA
Stundar mastersnám
samhliða fullri vinnu
við matinn á svæðinu sem hún
segir mjög fjölbreytilegan, það sé
hægt að fá mat frá næstum hvaða
landi sem er. Aðspurð um veðrið
sem er skylduspurning fyrir alla
Íslendinga sem búa erlendis segir
Dína það vera mjög þægilegt allt
árið um kring en á sumrin er hitinn
um 25-35 gráður og á veturna fer
hann niður í 5-10 stig.
Gott að búa í litlu samfélagi
Svæðið þar sem Dína býr býður
upp á mikla möguleika, það eru
strendur fyrir sunnan, vínhéruð
fyrir norðan, hægt er að fara á snjó-
bretti á veturna og í skemmtilegar
borgarferðir á hvaða tíma árs. Dína
býr í Alameda sem er lítill bær um
20 km frá San Francisco. Þar
kann hún rosalega vel við sig en
að eigin sögn varð hún ástfangin
af bænum þar sem hún hefur
alltaf kunnað vel við sig í litlu
samfélagi eins og Grindavík.
Bærinn er öruggur og stutt að
fara í borgina. Á Íslandi hafði
hún alltaf búið hjá foreldrum
sínum og flutningurinn tók á
til að byrja með, Dínu fannst
skrítið fyrst að vera alveg ein á
báti. Hins vegar fékk hún góða
aðstoð frá vinnuveitendum
sínum og í dag finnst henni
lítið mál að vera ein. Dína á
kærasta á Íslandi sem bíður
eftir henni heima en þau reyna
að hittast nokkrum sinnum á
ári. Einnig hefur fjölskyldan
verið dugleg að heimsækja hana
ásamt vinum enda finnst þeim
ekki leiðinlegt að heimsækja hana
í sólarsæluna í Kaliforníu.
Stefnir á að eyða næstu
árum í Bandaríkjunum
Dína María er bæði íslenskur og
bandarískur ríkisborgari og sér því
fram á að eyða nokkrum árum í
viðbót í Bandaríkjunum. Hins
vegar langar hana að koma heim
þegar kemur að því að stofna fjöl-
skyldu. „Ég get ekki séð fyrir mér
að vera með fjölskyldu neins staðar
annars staðar en heima á Íslandi.
En á meðan maður er ungur og
hefur í raun og veru engar skuld-
bindingar finnst mér um að gera
að nýta þetta tækifæri,” segir þessi
ævintýragjarna Grindavíkurmær
að lokum.
ÁLAGNINGARSEÐLAR
FASTEIGNAGJALDA
FYRIR ÁRIÐ 2012
Tilkynning til eigenda um álagningu ársins 2012
Álagningarseðlar fyrir árið 2012 verða eingöngu birtir rafrænt og
ekki sendir út í bréfapósti.
Fasteignaeigendur geta nálgast álagningarseðilinn á island.is
með því að skrá sig inn, annaðhvort með rafrænum skilríkjum eða
veflykli RSK. Jafnframt er hægt að komast inn á island.is í gegnum
heimasíðu Grindavíkurbæjar (hnappur á forsíðu).
Grindavíkurbær mun þó senda einstaklingum 67 ára og eldri og
fyrirtækjum álagningarseðil í bréfapósti.
Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda
Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu. Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar
2012 og sá síðasti 1. nóvember 2012. Eindagi fasteignagjalda er
þrjátíu dögum eftir gjalddaga og falla öll gjöld ársins í gjalddaga
ef vanskil verða. Reynist heildarálagning gjalda 15.000 kr. eða
lægri fer öll fjárhæðin á gjalddaga 1. febrúar 2012.
Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda eru sendir út rafrænt og
birtast í heimabönkum gjaldenda. Einstaklingar 67 ára og eldri og
fyrirtæki fá greiðsluseðla senda í pósti. Aðrir geta fengið
greiðsluseðil í pósti en þeir verða að óska eftir því sérstaklega og
er bent á netfangið gudbjorg@grindavik.is
Vinstra megin eru Dína og Björn Geir kærasti hennar og hægra
megin eru svo Stefanía systir hennar og Ísleifur Guðmundsson.
Dína ásamt foreldrum sínum og frænku við vínakur í Kaliforníu.
Dína, t.h., stundar þríþraut af kappi.