Víkurfréttir - 09.02.2012, Blaðsíða 18
18 FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Sumarstarf í boði
Airport Associates óskar eftir að ráða
einstakling í sumarafleysingar á verkstæði.
Starfið felur í sér almenna viðhalds- og verkstæðisvinnu á
tækjaverkstæði fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli. Gerð er
krafa um iðnmenntun á sviði bílgreina ásamt tölvukunnáttu
eða sambærilega starfsreynslu.
Umsækjendur þurfa að búa yfir færni í mannlegum samskiptum,
vera stundvísir og agaðir í starfi en jafnframt sveigjanlegir.
Hægt er að sækja um á www.airportassociates.com.
Umsóknarfrestur er til 16. febrúar 2012.
Orlofshús VSFK
Páskar 2012
Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út um páskana:
2 hús í Svignaskarði
3 hús í Húsafelli
2 hús í Ölfusborgum
2 hús í Hraunborgum
1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri
Útleigutímabil er frá miðvikudeginum 4. apríl til miðvikudagsins
11. apríl 2012.
Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og
er umsóknarfrestur til kl. 15.00 föstudaginn 2. mars 2012.
Úthlutað verður samkvæmt punktaker.
Orlofsstjórn VSFK
Nú er lokið inntökuferli
í nám á leikarabraut
við Listaháskóla Ís-
lands. Að venju var
fjöldi umsókna mikill
en að loknum inn-
tökuprófum var tíu
nemendum boðin
skólavist næsta haust.
Meðal þeirra nemenda
sem fékk inngöngu er
Keflvíkingurinn Albert
Halldórsson en hann
verður 25 ára á árinu.
Albert kom í stutt spjall
til Víkurfrétta í vikunni
Albert byrjaði mjög ungur að fara í leikhús til þess að
sjá bróður sinn leika með Leik-
félagi Keflavíkur. „Mér fannst
þetta svakalega spennandi
heimur og þegar ég var 12 ára þá
var sett upp barnaleiksýningin
Litla stúlkan með eldspýturnar
hjá Leikfélagi Keflavíkur. Þar
lék ég ævintýraálf í mínu fyrsta
hlutverki. Það var mikið stuð
þannig að ég hélt áfram og lék
síðan í þó nokkrum sýningum
eftir það og áhuginn óx með
hverri uppfærslunni,“ segir Al-
bert. Þannig að það má segja
að þetta sé æskudraumurinn
og að ég hafi smitast af þessari
svokölluðu leiklistarbakteríu
snemma.
Albert hefur leikið mikið með
Leikfélagi Keflavíkur og segir
hann það hafa verið mjög gaman.
„Ég gat aldrei neitt í þessum
íþróttum sem ég prófaði, sem
var alveg heill hellingur, þannig
að mér finnst starf Leikfélags
Keflavíkur vera bráðnauðsynlegt
fyrir krakka eins og mig sem eru
hræddir við boltann, já eða hafa
áhuga á því að leika.“
Albert hefur einnig leikið í
sýningu hjá Stúdentaleikhúsinu
og heillaðist af því að setja upp
sýningu sem unnin er frá grunni
með leikhópnum, eða svokallaða
Fram eru komnar efasemdir frá starfsmönnum félagsmið-
stöðvarinnar Eldingar í Garði að
vera settir í þá aðstöðu að vinna
aleinir í Eldingunni þegar opið
er. „Getur þetta haft alvarlegar
afleiðingar ef ásakanir kæmu
fram um eitthvað misjafnt eða
slys verður á staðnum. Einnig ef
eitthvað kæmi fyrir starfsmann-
inn sjálfan,“ segir í nýrri fundar-
gerð íþrótta- og æskulýðsnefndar
Sveitarfélagsins Garðs.
Nefndin er sammála að þetta þurfi
að skoða nánar og færa til betri
vegar. Guðbrandi J. Stefánssyni,
æskulýðsfulltrúa Garðs, er falið að
koma þessari ábendingu áfram til
bæjaryfirvalda.
spunasýningu. Síðan lá leið Alberts
í Kvikmyndaskóla Íslands árið 2010
og þar hefur Albert verið að læra
leiklist í eitt og hálft ár. „Það nám
hefur hjálpað mér mjög mikið og
ég hef lært þar heilan helling og
kynnst skemmtilegu fólki.“
Lengi hefur það verið draumur
Alberts að komast inn í LHÍ að
læra leiklist en hann sótti þar um
fyrir tveimur árum síðan og komst
ekki inn. Síðan sótti hann aftur
um núna ásamt um það bil 170
umsækjendum og var þar einn af
tíu sem komst inn í námið sem er
eins og gefur að skilja mjög eftir-
sóknarvert.
Erfitt inntökuferli
Inntökuferlið er í 3 þrepum og
síðan fækkar í hverju þrepi. Þetta
var mjög skemmtilegt en sömu-
leiðis erfitt inntökuferli að sögn
Alberts. Sérstaklega segir hann
þetta hafa verið taugatrekkjandi
þegar 20 manns voru eftir og allir
áttu fullt erindi inn í skólann.
„Þegar ég var yngri þá gerði leik-
listin heilan helling fyrir mig.
Maður losnaði smá við feimni
sem fylgir því að vera unglingur
í mútum. Í dag finnst mér undir-
búningsferlið í kringum leiklistina
mjög skemmtilegt, til dæmis
persónusköpun. Ég get einhvern
veginn gert fullt af hlutum spenn-
andi fyrir sjálfum mér ef ég horfi
á hlutina út frá leiklistinni. Ég hef
líka mjög gaman af því að fylgj-
ast með fólki. Sérstaklega skrítnu
fólki niðri í bæ og nýta mér það
einhvern veginn í leiklistinni,“
segir Albert sem er þessa dagana
á fullu í Kvikmyndaskólanum að
klára 3. önnina sína en þess á milli
leikur hann í stuttmyndum sam-
nemenda sinna.
eythor@vf.is
Nammiáti í Garði sagt stríð á hendur
Nammiát á diskótekum í Garði fyrir yngstu börnin kom til umfjöll-unar í íþrótta- og æskulýðsnefnd Garðs nú á dögunum.
Þar kom fram að vegna óska frá foreldrum voru skilaboð sett á dagskrá um
æskulýðsstarfið í Garði, sem dreift var í hús, að bannað væri að koma með
nammi og gos á diskótekin. Segir í fundargerðinni að nefndin lýsir ánægju
sinni með að verið sé að taka á þessum þætti.
- starfsmenn félagsmiðstöðvar vilja ekki vinna einir
„Alvarlegar afleiðingar
ef ásakanir kæmu fram“
n Auglýsingadeild í síma 421 0001
n Fréttadeild í síma 421 0002
n Afgreiðsla í síma 421 0000
Vertu í góðu
sambandi
við Víkurfréttir
vf.is
Auglýsingasíminn er 421 0001