Víkurfréttir - 30.08.2012, Blaðsíða 30
FIMMTUDAGURINN 30. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR30
›› Viðskipti og atvinnulíf:
Þegar Ferðaþjónusta Reykjaness var
stofnuð starfaði Margrét ein í 100%
starfi en fékk aðstoð part úr degi
við aksturinn frá leigubílum. Í dag
starfa þrír starfsmenn í 100% starfi
hjá Ferðaþjónustu Reykjaness.
Allt að 11 starfsmenn eru á
launaskrá hjá Hópferðum Sævars
og Ferðaþjónustu Reykjaness til
samans yfir háannatíma. Í dag ekur
Ferðaþjónusta Reykjaness 60-70
börnum og fullorðnum með sér-
þarfir en sú þjónusta hefur verið
í örum vexti sl. ár. Sem dæmi um
hve miklar vegalengdir eru í akstri
Ferðaþjónustu Reykjaness þá aka
tveir bílar samtals um 550 km á dag
um Suðurnesin. Með það í huga
ákváðu Sævar og Margrét Arna
að vinna í umhverfismálum fyrir-
tækisins með því að leita leiða til að
gera aksturinn umhverfisvænni og
núna er Ferðaþjónusta Reykjaness
með tvo vistvæna bíla í flota sínum
þ.e. bíla sem eru knúnir metan sem
orkugjafa.
Sævar hóf að keyra starfsmenn
fyrir Icelandair strax í upphafi og
fjárfesti í einni bifreið. Í dag reka
fyrirtækin saman tólf bifreiðar.
„Ég fór út í þennan rekstur á sínum
tíma vegna áhrifa frá pabba. En
hann er búinn að vera leigubílstjóri
í yfir 20 ár og hafði einnig fengist
við að keyra áhafnir fyrir Air Atl-
anta. Það var upphafið að rútudell-
unni hjá mér og þegar hann var
hluthafi í fyrirtæki í hvalaskoðun
fór ég að keyra hópferðabíla fyrir
hann,“ segir Sævar en hann ekur
einnig sjálfur leigubíl á A-stöðinni
í Reykjanesbæ.
Margrét Arna Eggertsdóttir,
eiginkona Sævars, hefur komið að
rekstrinum með honum eftir að þau
kynntust árið 2005 og segir Sævar
að hún hafi hvatt hann til dáða og
fyrirtækið hafi smátt og smátt farið
að auka við sig en Margrét Arna er
sjúkraliði og þroskaþjálfi að mennt
og bætti við sig hópferða- og leigu-
bifreiðaprófinu fljótlega eftir að þau
kynntust.
Í dag eiga þau og reka fyrirtækin
saman. „Hún ýtti mér af stað, þessi
orkumikla manneskja og þrátt fyrir
að ég hafi verið byrjaður þá hefur
hún ávallt tekið með mér næstu
skref og stutt mig í ákvarðana-
tökum“. Fyrirtækin hafa stækkað
við sig um húsnæði úr 90 fer-
metrum í 450 fermetra en nýlega
fluttist starfsemin að Vesturbraut
12 í Reykjanesbæ. Þar hafa miklar
endurbætur átt sér stað og hús-
næðið tekið miklum breytingum.
Þar er öll aðstaða fyrir hendi fyrir
akstursþjónustufyrirtæki, en það
var upphaflega byggt og hannað
fyrir SBK og oft í dag kallað gamla
rútustöðin en í gríni segir Sævar að
nú sé þetta nýja rútustöðin.
Markmið fjárfestingarinnar var að
skapa sem bestar aðstæður til rekst-
urs og viðhalds bifreiða í húsnæði
þar sem flest allt sem að því snýr
rúmast undir sama þaki. Þ.e.a.s.
verkstæði, þrifaðstaða, skrifstofur,
móttaka fyrir pantanir og fund-
araðstaða með samstarfsaðilum.
Viljum geta boðið ferða-
mönnum upp á ferðir um
Reykjanesið
Þetta litla fjölskyldufyrirtæki er í
miklum blóma og mikið að gera
yfir sumartímann eins og gefur
að skilja. „Það má segja að það sé
mikið álag, sérstaklega yfir sumar-
mánuðina,“ segir Sævar en þau
hjónin sjá um allt mögulegt sem
viðkemur rekstrinum og keyra m.a.
bæði.
Það er háannatími á sumrin hjá
Hópferðum en á veturna hjá Ferða-
þjónustu fatlaðra eins og áður
segir. „Því mætti segja að jafnvægið
sé gott á ársgrundvelli hvað varðar
verkefnastöðu,“ segir Sævar.
Hjónin hafa hug á því að komast
betur inn á markaðinn í akstri á
Suðurnesjum en til stendur að
bjóða út einhverjar akstursleiðir
innan skamms og þar sjá þau
möguleika til að auka starfsemi
sína enn frekar. Fyrirtækið hefur
verið í samstarfi við SBK með
akstur Strætó milli Reykjanesbæjar,
Sandgerðis og Sv, Garðs, Leið 4.
„Þar hefur farþegum fjölgað tölu-
vert en á síðasta ári fluttu SBK og
Hópferðir Sævars 28.000 farþega á
þessari leið. Markaðurinn er alltaf
að opnast meira og meira,“ að sögn
Margrétar Örnu og samkeppnin
um leið að aukast. „Það er hægt að
vera í samkeppni og um leið í góðu
samstarfi, það er hægt að vinna að
sömu markmiðum þó samkeppni
sé fyrir hendi,“ bætir Sævar við.
Ætla að setja upp
ferðaskrifstofu
Með áætlunum um að opna ferða-
skrifstofu í húsnæði þeirra við
Vesturgötu hyggjast þau Sævar og
Margrét Arna bjóða upp á dags-
ferðir fyrir einstaklinga sem sækja
Reykjanesið heim. Bæði er þá um
að ræða ferðir á vinsæla staði eins
og t.d. Gullna hringinn svokall-
aða. Þessar dagsferðir eru fyrir-
ferðamestar á markaðinum í dag að
þeirra mati. En þau langar einnig
til að bjóða upp á ferðir um Suður-
nesin sjálf. „Flestir sem búa hérna á
Reykjanesinu hafa auðvitað áhuga
á þessu svæði. Við þekkjum kosti
þess, fjölbreytileika og sögu. Það er
bara spurning um hvernig ákjósan-
legast er að markaðssetja svæðið,“
segir Margrét Arna. Sævar segir að
þrátt fyrir að ferðamönnum fjölgi
stöðugt þá séu ferðamenn mikið að
ferðast á eigin vegum og þ.a.l. hafi
ekki verið mikil aukning á hóp-
ferðum sem slíkum.
Hópferðir Sævars hafa í nógu að
snúast í kringum starfsmenn og
farþega Keflavíkurflugvallar og enn
eru miklir vaxtarmöguleikar varð-
andi alla þá starfsemi sem þrífst á
flugvellinum og mætti segja að sú
þjónusta sé einn af hornsteinum
fyrirtækisins. Hópferðir Sævars
bjóða upp á ferðir fyrir alla mögu-
lega viðburði sem hugsast getur.
Framtíðin virðist björt hjá þessum
fyrirtækjum líkt og hjá öðrum sem
tengjast ferðamennsku með einum
eða öðrum hætti.
Fjölskyldufyr-
irtæki í stöð-
ugum vexti
Hópferðir Sævars og Ferðaþjónusta Reykjaness eru fjölskyldu-fyrirtæki í Reykjanesbæ í eigu hjónanna Sævars Baldurssonar
og Margrétar Örnu Eggertsdóttur. Sævar stofnaði Hópferðir árið 2005
en þá hafði hann verið í rekstri hópferðabifreiða frá árinu 2000. Frá
stofnun fyrirtækisins hefur þróun á starfsumfangi þess verið hröð og
spennandi. Mikill meirihluti af verkefnum Hópferða var upphaflega í
tengslum við Flugvöllinn og flugstöðina. Árið 2002 fór Sævar að keyra
börn með sérþarfir á vegum Sandgerðisbæjar og í kringum 2005-2006
bættust Reykjanesbær og Garður í þann hóp. Í kjölfar þess var Ferða-
þjónusta Reykjaness stofnuð til að annast þann akstur. „Við sáum þörf
fyrir faglega þjónustu við einstaklinga með fötlun og helltum okkur á
fullu út í þann rekstur“ segir Sævar.
Hópferðir Sævars og Ferðaþjónusta Reykjaness
Afgreiðslustarf
Verslunin Leonard í Flugstöð Leif Eiríkssonar óskar eftir að ráða starfsmann
í afgreiðslu, aldurstakmark 25 ára.
Við erum að leita að glaðlegu, samviskusömu og jákvæðu fólki. Skilyrði er góð
enskukunnátta, snyrtileg og kurteis framkoma og að viðkomandi sé reyklaus.
Um hlutastarf er að ræða.
Umsókn ásamt mynd óskast send verslunarstjóra Leonard DF,
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli eða netpóst df@leonard.is,
umsóknarfrestur er til 11. september 2012.
Leonard ehf. Var stofnað árið 1991 og rekur þrjár verslanir sem eru leiðandi í sölu á úrum, skartgripum og fylgi-
hlutum. Leoanard ehf, er framsækið fyrirtæki sem leggur mikið upp úr því að hafa á að skipa metnaðarfullu starfsfólki.
Hópferðir Sævars og Ferðaþjónusta Reykjaness eru fjölskyldufyrirtæki í Reykja-
nesbæ í eigu hjónanna Sævars Baldurssonar og Margrétar Örnu Eggertsdóttur.