Víkurfréttir - 30.08.2012, Page 24
FIMMTUDAGURINN 30. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR24
FÖRUM VARLEGA Í
UMFERÐINNI
- SKÓLAR AÐ HEFJAST!
Ökumenn sýnum sérstaka varúð við skóla og skóla-
leiðir og munum 30 km hámarkshraða.
Sýnum tillitssemi
– ökum varlega.
30
STARF Á HEIMILI
FATLAÐS FÓLKS
Óskað er eftir starfsfólki til starfa á heimili fatlaðs
fólks í Reykjanesbæ. Um er að ræða 80%
starfshlutfall í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
Hæfniskröfur:
Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
Þjónustulund og jákvæðni í starfi.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Framtakssemi og samviskusemi .
Aldursskilyrði 20 ár.
Í boði er:
um starfið.
Upplýsingar veitir Ólafur Garðar Rósinkarsson
í S: 862 2878
Umsóknarfrestur er til 13. september.
Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar
Í haust munu um 1120 dagskóla-
nemendur hefja nám sem er með
því mesta sem skólinn hefur verið
með og rúmlega 100 grunnskóla-
nemendur sem koma í valfög. Ekki
var unnt að taka á móti öllum sem
sóttu um skólavist í FS í haust en
tugir manns þurftu frá að hverfa
vegna fjárskorts. Að sögn Guð-
laugar hefur skólinn alltaf verið
mjög vel rekinn og nánast aldrei
verið í mínus og því þykir skól-
anum leitt að geta ekki tekið á móti
öllum en ekki er mögulegt að fara
fram úr því fjármagni sem skólinn
fær frá ríkinu.
Kynjafræði kennd næsta vor
Aðspurð um nýjungar í skólastarf-
inu í haust segir Guðlaug: „Við erum
auðvitað alltaf með eitthvað nýtt,
erum nýlega búin að stofna styttri
námsbrautir eins og löggæslu- og
björgunarbraut og við erum eini
skólinn á landinu sem er að bjóða
upp á þá námsbraut. Í vor útskrif-
uðum við í fyrsta skipti af þessari
braut. Við erum að þróa námið
áfram, þetta er tveggja ára nám.
Strákar sem hafa verið á þessari
braut hafa verið að fá sumarafleys-
ingastörf hjá lögreglunni og er það
mjög ánægjulegt að lögreglan kjósi
að nýta sér starfskrafta þeirra. Eftir
jól stefnum við á að byrja jafnvel
með aðra styttri námsbraut en það
er ferðaþjónustubraut. Á vorönn
verður svo boðið upp á kynjafræði
í fyrsta skipti í FS en nýlega réðum
við unga konu til starfa sem kennir
á starfsbrautinni en er með meist-
aragráðu í kynjafræði en hún heitir
Thelma Björk Jóhannesdóttir. Það
verður fróðlegt að sjá hvernig nem-
endur taka í það en jafnréttismál
hafa mikið verið í umræðunni
undanfarin misseri. Það sem dettur
út hjá okkur er kvöldskólinn en við
höldum því þó opnu t.d. ef hópur
kemur til okkar og vill taka nám-
skeið eða við finnum fyrir auknum
áhuga, þá munum við skoða það.“
Hvað gerir FS frábrugðinn öðrum
skólum?
„Við erum með afbragðsgóða starfs-
greinadeild. Við erum einn af stóru
skólunum á landinu en þó eru afar
fáir skólar sem ná t.d. að keyra áfram
jafn marga stærðfræðiáfanga og við.
›› Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
Fækkun í verk-
námi áhyggjuefni
-Að öðru leyti er mikil gróska í FS
Með auknum vindi sem Suðurnesjabúar eru vel kunnugir kemur haustið en þá byrja líka skólarnir. Kennsla í Fjölbrautaskóla Suðurnesja hófst í síðustu viku en í dag er hinn árlegi busadagur. Ýmsar
breytingar hafa átt sér stað fyrir þetta skólaár en þau Kristján Ásmundsson og Guðlaug Pálsdóttir hafa verið
ráðin skólameistari og aðstoðarskólameistari en þau höfðu þó gegnt þeim störfum í nokkur ár á meðan
fyrrum skólameistari var í leyfi. Aðrar breytingar eru þær að ekki verður boðið upp á kvöldskóla á þessari
haustönn og dregið hefur verið úr aðsókn í iðnnám sem Guðlaug Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari telur
mikið áhyggjuefni. Guðlaug svaraði nokkrum spurningum blaðamanns Víkurfrétta.
Við erum með stútfulla og hér um
bil of stóra áfanga sem eru 603 og
703, en 703 er hæsti áfanginn sem
boðið er upp á. Við kennum um
12-14 stærðfræðiáfanga fyrir nem-
endur á stúdentsbraut, þeir gerast
varla fleiri í öðrum skólum. Einnig
erum við að sjá að góðir nemendur
úr FS hafa verið að standa sig vel í
háskólanámi. Við höfum verið að
fara á kynningu hjá háskólunum
og t.d. í verkfræðideild þar sem eru
lögð fyrir próf í upphafi, kemur FS
mjög vel út. Einnig segjum við stolt
frá því að Háskólinn í Reykjavík
heiðraði fjóra nemendur í útskrift-
inni í vor og tveir þeirra eru fyrrum
FS-ingar.“
Foreldrar hæstánægðir með
nýnemadag
Guðlaug segir mikla grósku í
skólanum. „Nemendafélagið er
að standa sig vel og í dag er mótt-
taka þeirra 250 nemenda sem eru
að hefja nám eða svokölluð busa-
vígsla,“ segir Guðlaug. Busavígsla
hefur verið harðlega gagnrýnd
undanfarið og segir Guðlaug alltaf
verið að draga úr hörku busavígsl-
unnar en nemendafélagið þarf að
bera allt sem fer fram á nýnemadag-
inn undir skólastjórnendur. „Þetta
er orðið miklu strangara en þetta
var og í dag leggjum við áherslu
á að nei þýðir nei. Við byrjuðum
með nýnemadag fyrir einhverju
síðan og hafa margir skólar tekið
okkur til fyrirmyndar og gert slíkt
hið sama. Þá mæta nýnemarnir
hingað og eru hér í heilan dag áður
en hinir nemendurnir mæta, þeir
fá að borða, taka þátt í skemmtun
og þurfa að leysa verkefni í skól-
anum og annað slíkt. Við höfum
fengið ótal mörg skilaboð frá for-
eldrum þar sem þau lýsa ánægju
sinni með þennan kynningardag
fyrir nýnema því þá þarf barnið
þeirra ekki að kvíða fyrir að mæta
í glænýtt umhverfi með öllum eldri
nemendunum.“
Guðlaug segir áhyggjuefni hversu
mikið hefur dregið úr aðsókn í
verknám. „Þetta er eitt sem ég hef
miklar áhyggjur af. Við viljum
auðvitað efla verknámið og okkur
finnst þetta slæm þróun. Það getur
verið erfitt í sumum deildum að
koma iðnnemum á samning og því
geta þau ekki klárað námið sitt. Við
bjóðum upp á smíði, rafmagn, hár-
greiðslu, málmsmíði og vélstjórn
og í sumum greinum dregur úr
aðsókn eins og smíði en málm-
smíði er þó orðið vinsælla en áður.
Okkur finnst minnkandi aðsókn
í iðngreinar vera áhyggjuefni en
við teljum að þetta tengist efna-
hagsástandinu hér á landi. Þetta
getur orðið slæmt þar sem að það
má ekki vanta iðnaðarmenn í heila
kynslóð, við þurfum á iðnaðar-
mönnum að halda.“
Guðlaug Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari og
Kristján Ásmundsson skólameistari FS.