Víkurfréttir - 30.08.2012, Blaðsíða 12
FIMMTUDAGURINN 30. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR12
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til
jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem verða að
stunda nám fjarri heimili sínu.
sinni vegna náms).
fjölskyldu fjarri skóla).
Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um
Umsóknarfrestur vegna haustannar 2012 er til 15. október næstkomandi!
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd
Jöfnunarstyrkur til náms
- Umsóknarfrestur á haustönn 2012 er til 15. október -
Suðurgata 40, Reykjanesbær
Mjög fallegt 213,1m2 5 herbergja einbýlishús á frábærum stað í Reykjanesbæ. Húsið er á 2 hæðum og hefur
verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Við húsið er skjólgóður garður með stórum sólpöllum og heitum potti
og stórum bílskúr. Húsið er á rólegum stað en þó er stutt í alla þjónustu.
Eigendur skoða skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu.
Allar upplýsingar veitir Ásdís Rósa í síma 895-7784 eða asdisrosa@husaskjol.is
Verið velkomin!
Þrastartjörn 17, Reykjanesbær
Virkilega fínt parhús á einni hæð ásamt bílskúr og fullfrágenginni lóð. Í húsinu eru 4 svefnherbergi og þar af eitt
inn af bílskúr. Íbúðarrýmið er skráð 123,8 fm og bílskúrinn 44, 6 fm. Göngufæri við skóla, leikskóla og fallega
náttúru. Eigendur skoða skipti á minni eign á höfuðborgarsvæðinu.
Allar upplýsingar veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða inga@husaskjol.is
Verið velkomin!
Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík - Sími: 863 0402
Ásdís Ósk
Valsdóttir,
Löggiltur fasteignasali,
Gsm: 863-0402,
asdis@fasteignasalinn.is
Ingibjörg Agnes
Jónsdóttir,
Sölufulltrúi,
Gsm: 897-6717,
inga@fasteignasalinn.is,
Asdís Rósa
Ásgeirsdóttir,
Sölufulltrúi,
Gsm: 895 7784,
asdisrosa@fasteignasalinn.is,
Verð: kr. 31.400.000,-
Verð: kr. 34.500.000,-
Gunnlaugur Þór Hauksson, Ólafía Lúðvíksdóttir,
Guðný Adólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn,
Hilmar Gunnlaugsson, Málfríður Þórðardóttir,
Gylfi Gunnlaugsson.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
Kristín Gunnlaugsdóttir,
Suðurgötu 17-21, Sandgerði áður Túngötu 23,
lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði sunnudaginn
26. ágúst. Kristín verður jarðsungin frá Safnaðarheimilinu
Sandgerði miðvikudaginn 5. september kl.13:00.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir sölu
skuldabréfs Magma til ORK vera
stóran áfanga fyrir Reykjanesbæ
og muni bæta fjárhagsstöðu
bæjarins verulega. Bærinn greiðir
m.a. upp öll erlend lán sín og allar
skammtímaskuldir.
„Með aðgerðum okkar á þessu
ári erum við að lækka skuldir 8
milljarða kr. sem þýðir að eiginfjár-
hlutfall bæjarsjóðs verður um 35%.
Eignir bæjarins nema áfram um 30
milljörðum kr. en skuldir eru um
19 milljarðar, mest skuldbindingar
vegna lífeyris og leiguskuldbind-
inga. Við
náum að greiða upp öll bankalán
bæjarsjóðs og alla útistandandi
reikninga,“ segir Árni Sigfússon
við Víkurfréttir.
Re y kjanesb ær hefur s elt sku l d abréf s em b æ j ar-
félagið eignaðist við sölu á HS
orku til Geysis Green Energy og
síðar Magma Energy. Kaupandi
bréfsins er Fagfjárfestasjóðurinn
ORK sem rekinn er af Rekstrar-
félagi Virðingar hf og er fjár-
magnaður af lífeyrissjóðum og
fagfjárfestum. Kaupverðið nemur
tæpum 6,3 milljörðum króna.
Sjóðurinn hefur greitt bæjarsjóði
Reykjanesbæjar um 3,5 milljarða
króna í peningum og um 500
milljónir í markaðsskuldabréfum
en samkvæmt samkomulagi milli
kaupanda og seljanda fer loka-
greiðslan fram eftir 5 ár við uppgjör
á skuldabréfinu.
Í framhaldi af sölu bréfsins greiðir
bærinn erlent lán. Þar með hefur
bæjarsjóður náð að greiða öll er-
lend lán bæjarins, segir í tilkynn-
ingu til kauphallarinnar.
Fjármagnið verður jafnframt nýtt
til að greiða upp skammtímalán
við lánastofnanir og aðrar skamm-
tímakröfur. Um 870 milljónir króna
verða lagðar til Reykjaneshafnar.
Reykjanesbær
selur Magmabréf
á rúma 6 milljarða
Greiða upp öll bankalán bæjarsjóðs
og alla útistandandi reikninga
Mál sem koma inn á borð lög-reglunnar geta oft verið af
ýmsum toga. Í síðustu viku kom
maður hlaupandi inn á lögreglu-
stöðina í Keflavík og óskaði eftir
því að vera læstur inni í fanga-
klefa.
Skömmu síðar kom kona á stöðina
sem greinilega þekkti manninn og
fóru þau að ræða saman í afgreiðslu
lögreglustöðvarinnar.
Í viðræðum lögreglumanna við
fólkið þá kom í ljós að konan sagði
þau vera gift en maðurinn vildi
ekkert kannast við það og sagðist
hann vera að flýja konuna og vildi
hann því að við myndum læsa hann
í fangaklefa yfir nóttina til að hann
fengi frið frá henni.
„Ekki vorum við á því og reyndum
að leysa úr þessu verkefni, eins og
öllum sem inn á okkar borð koma.
Úr varð að konan og maðurinn
yfirgáfu lögreglustöðina í samein-
ingu og ekkert frekar heyrðist af
þeim um nóttina,“ segir lögreglan á
Suðurnesjum á fésbókarsíðu sinni.
Á flótta undan konu
og vildi í steininn