Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.08.2012, Síða 24

Víkurfréttir - 30.08.2012, Síða 24
FIMMTUDAGURINN 30. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR24 FÖRUM VARLEGA Í UMFERÐINNI - SKÓLAR AÐ HEFJAST! Ökumenn sýnum sérstaka varúð við skóla og skóla- leiðir og munum 30 km hámarkshraða. Sýnum tillitssemi – ökum varlega. 30 STARF Á HEIMILI FATLAÐS FÓLKS Óskað er eftir starfsfólki til starfa á heimili fatlaðs fólks í Reykjanesbæ. Um er að ræða 80% starfshlutfall í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni: Hæfniskröfur: Áhugi á málefnum fatlaðs fólks. Þjónustulund og jákvæðni í starfi. Hæfni í mannlegum samskiptum. Framtakssemi og samviskusemi . Aldursskilyrði 20 ár. Í boði er: um starfið. Upplýsingar veitir Ólafur Garðar Rósinkarsson í S: 862 2878 Umsóknarfrestur er til 13. september. Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar Í haust munu um 1120 dagskóla- nemendur hefja nám sem er með því mesta sem skólinn hefur verið með og rúmlega 100 grunnskóla- nemendur sem koma í valfög. Ekki var unnt að taka á móti öllum sem sóttu um skólavist í FS í haust en tugir manns þurftu frá að hverfa vegna fjárskorts. Að sögn Guð- laugar hefur skólinn alltaf verið mjög vel rekinn og nánast aldrei verið í mínus og því þykir skól- anum leitt að geta ekki tekið á móti öllum en ekki er mögulegt að fara fram úr því fjármagni sem skólinn fær frá ríkinu. Kynjafræði kennd næsta vor Aðspurð um nýjungar í skólastarf- inu í haust segir Guðlaug: „Við erum auðvitað alltaf með eitthvað nýtt, erum nýlega búin að stofna styttri námsbrautir eins og löggæslu- og björgunarbraut og við erum eini skólinn á landinu sem er að bjóða upp á þá námsbraut. Í vor útskrif- uðum við í fyrsta skipti af þessari braut. Við erum að þróa námið áfram, þetta er tveggja ára nám. Strákar sem hafa verið á þessari braut hafa verið að fá sumarafleys- ingastörf hjá lögreglunni og er það mjög ánægjulegt að lögreglan kjósi að nýta sér starfskrafta þeirra. Eftir jól stefnum við á að byrja jafnvel með aðra styttri námsbraut en það er ferðaþjónustubraut. Á vorönn verður svo boðið upp á kynjafræði í fyrsta skipti í FS en nýlega réðum við unga konu til starfa sem kennir á starfsbrautinni en er með meist- aragráðu í kynjafræði en hún heitir Thelma Björk Jóhannesdóttir. Það verður fróðlegt að sjá hvernig nem- endur taka í það en jafnréttismál hafa mikið verið í umræðunni undanfarin misseri. Það sem dettur út hjá okkur er kvöldskólinn en við höldum því þó opnu t.d. ef hópur kemur til okkar og vill taka nám- skeið eða við finnum fyrir auknum áhuga, þá munum við skoða það.“ Hvað gerir FS frábrugðinn öðrum skólum? „Við erum með afbragðsgóða starfs- greinadeild. Við erum einn af stóru skólunum á landinu en þó eru afar fáir skólar sem ná t.d. að keyra áfram jafn marga stærðfræðiáfanga og við. ›› Fjölbrautaskóli Suðurnesja: Fækkun í verk- námi áhyggjuefni -Að öðru leyti er mikil gróska í FS Með auknum vindi sem Suðurnesjabúar eru vel kunnugir kemur haustið en þá byrja líka skólarnir. Kennsla í Fjölbrautaskóla Suðurnesja hófst í síðustu viku en í dag er hinn árlegi busadagur. Ýmsar breytingar hafa átt sér stað fyrir þetta skólaár en þau Kristján Ásmundsson og Guðlaug Pálsdóttir hafa verið ráðin skólameistari og aðstoðarskólameistari en þau höfðu þó gegnt þeim störfum í nokkur ár á meðan fyrrum skólameistari var í leyfi. Aðrar breytingar eru þær að ekki verður boðið upp á kvöldskóla á þessari haustönn og dregið hefur verið úr aðsókn í iðnnám sem Guðlaug Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari telur mikið áhyggjuefni. Guðlaug svaraði nokkrum spurningum blaðamanns Víkurfrétta. Við erum með stútfulla og hér um bil of stóra áfanga sem eru 603 og 703, en 703 er hæsti áfanginn sem boðið er upp á. Við kennum um 12-14 stærðfræðiáfanga fyrir nem- endur á stúdentsbraut, þeir gerast varla fleiri í öðrum skólum. Einnig erum við að sjá að góðir nemendur úr FS hafa verið að standa sig vel í háskólanámi. Við höfum verið að fara á kynningu hjá háskólunum og t.d. í verkfræðideild þar sem eru lögð fyrir próf í upphafi, kemur FS mjög vel út. Einnig segjum við stolt frá því að Háskólinn í Reykjavík heiðraði fjóra nemendur í útskrift- inni í vor og tveir þeirra eru fyrrum FS-ingar.“ Foreldrar hæstánægðir með nýnemadag Guðlaug segir mikla grósku í skólanum. „Nemendafélagið er að standa sig vel og í dag er mótt- taka þeirra 250 nemenda sem eru að hefja nám eða svokölluð busa- vígsla,“ segir Guðlaug. Busavígsla hefur verið harðlega gagnrýnd undanfarið og segir Guðlaug alltaf verið að draga úr hörku busavígsl- unnar en nemendafélagið þarf að bera allt sem fer fram á nýnemadag- inn undir skólastjórnendur. „Þetta er orðið miklu strangara en þetta var og í dag leggjum við áherslu á að nei þýðir nei. Við byrjuðum með nýnemadag fyrir einhverju síðan og hafa margir skólar tekið okkur til fyrirmyndar og gert slíkt hið sama. Þá mæta nýnemarnir hingað og eru hér í heilan dag áður en hinir nemendurnir mæta, þeir fá að borða, taka þátt í skemmtun og þurfa að leysa verkefni í skól- anum og annað slíkt. Við höfum fengið ótal mörg skilaboð frá for- eldrum þar sem þau lýsa ánægju sinni með þennan kynningardag fyrir nýnema því þá þarf barnið þeirra ekki að kvíða fyrir að mæta í glænýtt umhverfi með öllum eldri nemendunum.“ Guðlaug segir áhyggjuefni hversu mikið hefur dregið úr aðsókn í verknám. „Þetta er eitt sem ég hef miklar áhyggjur af. Við viljum auðvitað efla verknámið og okkur finnst þetta slæm þróun. Það getur verið erfitt í sumum deildum að koma iðnnemum á samning og því geta þau ekki klárað námið sitt. Við bjóðum upp á smíði, rafmagn, hár- greiðslu, málmsmíði og vélstjórn og í sumum greinum dregur úr aðsókn eins og smíði en málm- smíði er þó orðið vinsælla en áður. Okkur finnst minnkandi aðsókn í iðngreinar vera áhyggjuefni en við teljum að þetta tengist efna- hagsástandinu hér á landi. Þetta getur orðið slæmt þar sem að það má ekki vanta iðnaðarmenn í heila kynslóð, við þurfum á iðnaðar- mönnum að halda.“ Guðlaug Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari og Kristján Ásmundsson skólameistari FS.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.