Víkurfréttir - 08.11.2012, Side 4
fimmtudagurinn 8. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR4
Akurskóli er einstakur skóli í Reykjanesbæ. Hann er eini
skólinn í bænum sem byggir á
hugmyndafræði um opinn skóla.
Skólinn stækkar ört og nú eru
um 385 nemendur í skólanum
og 54 starfsmenn. Okkar hlut-
verk sem störfum í skólanum
er að hlúa að honum sjá hann
vaxa, dafna og þróast. Það gerist
ekki á einum degi og ekki einu
sinni á einu ári. Í haust tóku við
nýir skólastjórar í Akurskóla.
Með nýjum stjórnendum koma
nýjar áherslur og mikilvægt er
að hlusta á skoðanir og hug-
myndir allra í skólasamfélaginu,
raddir starfsmanna, raddir
barnanna og raddir foreldra til
að gera skólann enn betri. Upp-
eldi og menntun á að miða að
því tvennu að kenna börnum
að ná valdi yfir sjálfum sér og
vekja það besta hjá hverjum og
einum nemanda þannig að það
verði honum gott veganesti út í
hinn fjölbreytta heim nútímans.
Ný þrautabraut
í Narfakotsseylu
Narfakotsseyla er sameiginlegt
útikennslusvæði Akurskóla og
leikskólanna Akurs og Holts.
Uppbygging svæðisins hefur
staðið yfir í langan tíma en nú
er þar að finna skýli, vísi að eld-
stæði, bryggju, brú og bekki að
ógleymdum staurunum sem bera
hvítu seglin okkar. Það eru spenn-
andi dagar framundan en vikuna
5. – 9. nóvember hefjumst við
handa við að gera þrautabraut og
varanlegt eldstæði á svæðinu.
Skipulagning Narfakotsseylu vísar
í gamla atvinnuhætti og sjósókn á
Suðurnesjum en svæðið er notað
til kennslu í öllum námsgreinum.
Á svæðinu er hægt að samþætta
flestar ef ekki allar námsgreinar
og það verður spennandi að sjá
nemendur skunda á svæðið og
nýta eldstæðið í heimilisfræði
í framtíðinni eða spreyta sig í
íþróttum í þrautabrautinni.
Comeniusarverkefnið – Child-
ren protecting the planet
Í haust hófst formlega sam-
vinna sex skóla í sex löndum í
Comeniusarverkefninu Children
Protecting the Planet. Grunnskól-
arnir sem taka þátt í verkefninu
auk okkar eru frá Frakklandi,
Finnlandi, Póllandi, Spáni og
Þýskalandi. Verkefnið felst í því
að nemendur í þessum löndum
vinna að verndun umhverfisins í
sínum skóla og sinni heimabyggð.
Verkefnin eru ólík eftir löndum
og kennarar sem taka þátt í verk-
efninu hittast á misjöfnum stöðum
í heiminum og vinna að sam-
eiginlegum verkefnum. Þetta er
spennandi viðfangsefni þar sem
allur skólinn tekur þátt og tvinnar
saman þau umhverfisverkefni og
markmið sem við í Akurskóla
höfum þegar sett okkur. Eitt af
stærri verkefnum sem nem-
endur Akurskóla taka þátt í er
hreinsun strandlengjunnar sem
hefst núna í nóvember og er unnið
í samvinnu við Bláa herinn.
Námsárangur
En það er ekki bara útikennsla og
þróunarverkefni sem eru í gangi í
Akurskóla. Í október fengu nem-
endur í 10. bekk niðurstöður
samræmdra könnunarprófa og
eru niðurstöðurnar afar jákvæðar
fyrir skólann og samfélagið.
Nemendur okkar eru yfir lands-
meðaltali í ensku og stærðfræði
sem er glæsilegur árangur.
Það eru spennandi tímar fram-
undan í Akurskóla og við hlökkum
til að takast á við öll þau fjölmörgu
verkefni stór og smá sem bíða
okkar í framtíðinni. Menntun er
að okkar mati hinn andlegi upp-
vöxtur mannsins en ekki einungis
búningurinn sem hlaðinn er
utan um hann. Því er það einlæg
von okkar og vilji að nemendur
útskrifist frá Akurskóla annars
vegar með sterkar rætur og hins
vegar með vængi til að fljúga á vit
ævintýranna með allar dyr opnar.
Sigurbjörg Róbertsdóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir
og Helga Eiríksdóttir
PÁLL KETILSSONvf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
afgreiðsla og ritstjórn:
ritstjóri og ábm.:
fréttastjóri:
blaðamenn:
auglýsingadeild:
umbrot og hönnun:
auglýsingagerð:
afgreiðsla:
Prentvinnsla:
uPPlag:
dreifing:
dagleg stafræn Útgáfa:
RITSTJÓRN
RITSTJÓRNARBRÉF
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir
kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka
smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá
færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á
vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent-
aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Ungmennaráð lætUr til sín taka
Það var frábært að fylgjast
me ð ful ltr úum nýsk ipaðs
ungmennaráðs á fundi með
bæjarstjórn Reykjanesbæjar
nú í vikunni. Þetta er án efa
ein af betri tillögum sem hafa
verið samþykktar í bæjarstjór-
ninni. Ræður þriggja stúlkna
úr ungmennaráðinu vor u
greinilega vandaðar og ljóst
að vinna hafði verið lögð í þær. Hér
fengu bæjarfulltrúar helstu málefni
ungmennanna upp á borð en þar voru
örari strætóferðir stærsta atriðið. „Við
búum í víðfeðmu bæjarfélagi. Það tekur
allt að 15 mínútur að keyra endanna á
milli. Stór hluti tómstunda sem í boði
er fyrir börn og unglinga er staðsett
í og í nágrenni við Reykjaneshöllina.
Þessar vegalengdir gera það að verkum
að það er nauðsynlegt að taka strætó
til að komast á áfangastað, sérstaklega
í skammdeginu þegar færðin versnar
og erfiðara að komast um á reiðhjóli,“
sagði Sóley Þrastardóttir, formaður
ráðsins í ræðu sinni.
Hinar stúlkurnar voru fulltrúar frá
björgunarsveitinni og frá
félagsmiðstöðinni Fjörheimum.
Aðsókn að Fjörheimum er
ekki nógu góð og íþrótta- og
tómstundaástundun hefur
minnnkað. Forvörn þarf að
aukast og það var sérstakt að
heyra það frá ungmennunum
sjálfum. Stúlkurnar mættu með
hugmyndir um leiðir til úrbóta
í þessum atriðum sem nefnd voru og
það vakti athygli bæjarfulltrúa. Það
vakti athygli leiðarahöfundar að ræðu-
menn ungmennaráðs voru allt stúlkur
og þegar hópurinn settist í sal bæjar-
stjórnar, fóru stúlkurnar allar í fremstu
röð en piltarnir í röðina fyrir aftan.
Þarna voru greinilega kjarnastúlkur og
ekki þörf á áhyggjum yfir því að kven-
þjóðin láti ekki til sín taka í þessum
málum.
Það er ljóst að bæjarstjórn fær ekki
betri aðila en ungmennaráð til að
vera á tánum gagnvart þessum hópi
íbúa en ráðið er skipað hinum ýmsu
fulltrúum úr hópi ungmenna í bæjar-
félaginu. Ungmennaráð lagði einnig til
að það yrði gerð skoðanakönnun meðal
ungmenna og þá væri hægt að nálgast
enn betur skoðanir þeirra, þarfir og
væntingar.
Í opinni umræðu á fundinum þar sem
bæjarfulltrúar og ungmennaráðið
ræddu saman komu fram fleiri góðar
hugmyndir. Bæjarfulltrúar spurðu
hvað væri fleira á óskalistanum og þá
bættist við lista ungmennaráðs. Það
vakti athygli þegar þau bentu t.d. á betri
göngustíga og lýsingu á þeim og vöntun
á fleiri ruslatunnum. Þeim er greini-
lega annt um sitt bæjarfélag. Íþrótta-
og tómstundadagur var meðal nýrra
hugmynda og fékk strax nafnið „Kær-
leikar“.
Bæjarfulltrúar voru uppnumdir af hug-
myndum ungmennaráðsins og eftir
umræðuna með þeim. Sveitarstjórnar-
menn hafa oft verið gagnrýndir fyrir að
vera ekki í nógu miklum tengslum við
bæjarbúa. Með stofnun ungmennaráðs
er ljóst að bæjarstjórn er að auka
tengslin við þennan hóp sem framtíðina
mun erfa.
RætuR og vængiR
Stu
tta
r
Ekkert kjarnorku-
brölt í Vogum
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkir að
lýsa því yfir að Sveitarfélagið
Vogar verði kjarnorkulaust
sveitarfélag.
Á fundi bæjarráðs Voga í síð-
asta mánuði var bréf Samtaka
hernaðarandstæðinga dags. 1.
október 2012 lagt fram þar sem
þess var farið á leit við Voga-
menn að sveitarfélagið þeirra
verði kjarnorkulaust sveitarfélag.
Bæjarráð samþykkti að vísa mál-
inu til umfjöllunar í bæjarstjórn,
sem hefur lýst því formlega yfir
að ekkert kjarnorkubrölt verði í
sveitarfélaginu.
41 tonn í Garðinn
Atvinnu- og nýsköpunar-ráðuneytið hefur úthlutað
byggðakvóta, 41 þorskígildis-
tonnum til Garðs vegna fisk-
veiðiársins 2012/2013.
Á fundi bæjarráðs Garðs var
samþykkt samhljóða að fela
bæjarstjóra að vinna að tillögu
um ráðstöfun byggðakvótans og
leggja fyrir bæjarráð hið fyrsta.
Vilja Garðmenn
með í rekstur
Sandgerðisbær hefur sent Garðmönnum beiðni, þar
sem þess er farið er á leit að
Sveitarfélagið Garður og önnur
sveitarfélög innan Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum
taki þátt í rekstri Náttúrustofu
Reykjaness, sem staðsett er í
Fræðasetrinu í Sandgerði.
Framlag ríkisins til rekstrarins
er 14,8 milljónir króna og hlutur
sveitarfélaga 4,5 milljónir.
Bæjarráð Garðs tekur vel í
erindið en telur eðlilegt að
það fái umfjöllun stjórnar SSS
í tengslum við gerð fjárhags-
áætlunar. Erindið var samþykkt
samhljóða.
skemmtileg hefð í akurskóla. nemendur sem hefja
skólagöngu að hausti í 1. bekk fá gefins rós.
Útikennsla og vettvangsnám er stór þáttur í allri kennslu í skólanum.