Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.11.2012, Side 15

Víkurfréttir - 08.11.2012, Side 15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 8. nóvember 2012 15 „Við búum í víðfeðmu bæjarfélagi. Það tekur allt að 15 mínútur að keyra endanna á milli. Stór hluti tómstunda sem í boði er fyrir börn og unglinga er staðsett í og í nágrenni við Reykja- neshöllina. Þessar vegalengdir gera það að verkum að það er nauðsynlegt að taka strætó til að komast á áfanga- stað, sérstaklega í skammdeginu þegar færðin versnar og erfiðara að komast um á reið- hjóli. Almenningssamgöngur hafa ekki vaxið í takt við vöxt bæjarfélagsins. Þær hafa eiginlega gleymst, sem er alveg ótrúlegt miðað við hvað þær eru mikilvægar. Góðar samgöngur hljóta að vera ein af grunnfor- sendum fyrir líflegu tómstundastarfi og styðja þar við fjölskyldustefnu bæjarins. En sú hefur því miður ekki verið raunin síðustu misseri,“ sagði Sóley Þrastardóttir, formaður ungmennaráðs meðal annars í ræðu sinni á fundi ráðsins með bæjarstjórn sl. þriðjudag. Æfingagjöld og Fjörheimar „Það sem við, meðlimir Ungmenn- aráðsins erum ekki sátt við eru æfingagjöldin. Af hverju er ekki systkinaafsláttur á milli greina? Til dæmis á milli sunddeildarinnar og fótboltans? Það myndi spara for- eldrum okkar mikla fjármuni ef slíkt væri í boði. Við spurðum bæjaryfir- völd af hverju það væri ekki hægt að hafa eins kerfi og í Grindavík þar sem greiddar eru 20 þúsund krónur fyrir eitt ár og barnið má æfa eins margar íþróttir og það vill. Við fengum það svar að það yrði svo mikill kostnaður fyrir bæinn. Það er að vissu leyti skiljanlegt, en er ekki betra að fleiri krakkar stundi íþróttir heldur en færri? Ég bara spyr. Það sem við sættum okkur ekki við er að hvatagreiðsl- unar voru teknar í burtu. Hvað varð um þær? Það er ekki nóg að segja að fólk hafi ekki nýtt sér greiðslurnar og að það sé ástæðan fyrir því að þær voru teknar út. Ég er á öðru ári mínu í unglingaráðinu og hef sjálf verið vitni að því að það sé frekar léleg aðsókn í félags- miðstöðina. Ástæðan fyrir því er að hún virðist ekki vera nógu hlýleg. Þannig að við höfum ákveðið að taka Fjörheima í gegn, mála og endurnýja. Við vonumst til þess að aðsóknin muni aukast. Við sjáum til þess að það sé alltaf eitthvað spennandi að gerast í Fjörheimum eins og böll, bingó og skemmtilegar keppnir,“ sagði Azra Crnac, fulltrúi félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima í ungmennaráði, meðal annars í sinni ræðu. - sjá nánar á vf.is Forvarnarmál og göngustígar „Eitt af áhersluatriðum okkar í ungmennaráðinu eru forvarnarmál. Fram kom í rannsókn sem gerð var á nemendum í 8. – 10. bekk grunskóla yfir allt landið að það eru hlutfalls- lega fleiri krakkar í Reykjanesbæ sem halda að maríúana sé skaðlaust. Það er auðvitað kolrangt og unglinga- ráðið telur að þessar niðurstöður komi til vegna minnkandi forvarnarfræðslu í bæjar- félaginu. Þegar ég var á unglingastigi í grunnskóla, fyrir nokkrum árum, komu reglulega óvirkir fíklar í skólann og sögðu nemendunum sína sögu. Þetta var í samstarfi við forvarnarstarf Lundar. Mér fannst það á nemendum að þeim hafi fundist gott að fá þessa fyrir- lestra og fá þau til að hugsa um þessi mál þar sem þau eru ekki ofarlega í huga unglinga dags daglega. Þessi fræðsla hefur minnkað eftir hrun og í sumum skólum bæjarfélagsins hefur þessi fræðsla minnkað töluvert. Í könnun sem gerð var af Rannsókn og greiningu á drykkju og neyslu vímuefna nemenda í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja kom fram að um 20% stúlkna undir 18 ára hafa reykt maríúana og 40% drengja, þetta eru sláandi tölur. Annað málefni sem liggur okkur á hjarta er lýsing á göngustígum í bæjarfélaginu. Það eru nokkrir staðir þar sem viðkomandi sér ekki neitt þegar hann er að ganga á malbikuðum göngustígum og er þar mikil slysahætta þar sem það geta verið steinar og holur í jarðvegi í kringum stíginn,“ sagði Ragnheiður Alma, fulltrúi björgunarsveitarinnar Suðurnes. FRAMHALDS- AÐALFUNDUR Boðað er til framhaldsaðalfundar hjá Ferðamálasamtökum Suðurnesja þriðjudaginn 20. nóvember 2012 kl. 17:00 í Eldey að Grænásbraut 506, 235 Reykjanesbæ. Dagskrá: - Kosning formanns og stjórnar. - Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga. - Ákvörðun um upphæð árgjalds. - Lögð fram starfsáætlun næsta árs. - Önnur mál. Þeir einir hafa atkvæðisrétt á fundinum sem skráðir eru félagsmenn og hafa greitt félgasgjald kr. 5000,- fyrir 17. nóvember 2012. Greiða má félagsgjaldið inn á reikning FSS: 0121-26-003570 kt.540984-0429. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins Grænásbraut 506, 235 Reykjanesbæ, s. 4213520. Stjórn Ferðamálasamtaka Suðurnesja Guðný Gunnarsdóttir, Gunnar Jóhannsson, Fríða Kristjánsdóttir, Einvarður Jóhannsson, Alice Harpa Björgvinsdóttir, Vigdís Jóhannsdóttir, Birgir Örn Tryggvason, og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Jóhann Einvarðsson, Heiðargarði 29, Keflavík, lést laugardaginn 3. nóvember. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 12. nóvember kl. 15:00. Mögulegt verður að fylgjast með útförinni í Stapa í Njarðvík. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast Jóhanns er bent á Líknarsjóð Oddfellowstúkunnar nr. 13 Njarðar. 0121-15-201313, kt. 680380-0239. n Úr ræðum fulltrúa ungmennaráðs á bæjarstjórnarfundi í reykjanesbæ: Örari strætóferðir Daglega á vF.is

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.