Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.11.2012, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 08.11.2012, Qupperneq 16
fimmtudagurinn 8. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR16 MANNLÍF Á Íslandi starfa nokkrir grunn- og leikskólar eftir agastefn- unni Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun eða PBS (Positive Behavior Support). PBS hvetur með kerfisbundnum hætti til já- kvæðrar hegðunar, eykur félags- færni, bætir samskipti og dregur jafnframt úr hegðunarvanda barna og unglinga. Í þessum skólum starfa teymi sem vinna að því að innleiða og viðhalda aga- kerfinu. Síðustu fjögur árin hafa þau staðið fyrir PBS degi þar sem starfsfólk allra skólanna hittist, hlýðir á ýmis erindi sem tengjast stefnunni og deilir með sér hug- myndum. Skólarnir sem vinna saman að þessum degi eru Breið- holtsskóli, Ingunnarskóli, Hamra- skóli, Laugarnesskóli, Seljaskóli og Sæmundarskóli í Reykjavík og Háaleitisskóli, Holtaskóli, Myllu- bakkaskóli og Njarðvíkurskóli í Reykjanesbæ. PBS dagurinn í ár er á baráttu- degi gegn einelti og því ákváðu teymisstjórar skólanna að erindi dagsins tengdust samskiptum og vinnu gegn einelti. Dagskrá verður í hátíðarsal Breiðholtsskóla frá kl. 14:00-16:00. Ingrid Kuhlman frá Þekkingarmiðlun mun fjalla um vinnustaðamenningu og samskipti á vinnustöðum og Vanda Sigur- geirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræðum, um einelti og samskipti nemenda. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja býður nú upp á nýja þjónustu sem miðar að þörfum ungmenna á aldrinum 16-25 ára. Vert er að vekja athygli á þessu jákvæða framtaki hjá HSS sér í lagi vegna mikilvægi foreldra- fræðslu. Í lokaverkefni Jónínu Jónasdóttur til embættis- prófs í ljósmæðrafræði frá árinu 2005 sem fjallar um árangur/ notagildi foreldrafræðslunám- skeiða heilsugæslunnar kemur fram að þátttakendur eru eldri en almennt er um foreldra fyrsta barns og með hátt menntunar- stig. Þannig höfðar fræðslan ekki til meirihluta foreldra. Í MA rannsókn Guðbjargar Steins- dóttur um félagslega stöðu 18 til 23 ára ungmenna sem fengu þjónustu hjá Barnavernd Kópavogs (BK), kemur eftirfarandi fram: Rann- sóknin var unnin að frumkvæði BK árið 2012 og niðurstöður leiddu í ljós að félagsleg staða fyrrum notenda BK er frábrugðin því sem almennt gerist. Flestir höfðu aðeins lokið grunnskóla, 36,6% þátttakenda fengu tekjur í formi bóta og/eða fjárhagsaðstoðar og 83,1% voru með tekjur undir 200 þúsund krónum á mánuði. Fleiri þátttakendur áttu börn en búist var við eða 42%. Þá var horft til hversu ungir þeir voru eða 18 til 23 ára, vert er að nefna til viðmiðunar að fram kemur í annarri rannsókn á ungu fólki að 7,7% þátttakenda utan framhaldsskóla áttu börn. Þetta bendir til þess að nemendur í efstu bekkjum grunnskólans séu sá markhópur sem helst þarf að ná til með fræðslu um foreldrahlutverkið. Undirritaður býður skólum for- varnarverkefnið „Hugsað um barn“ sem Manngildissjóður Reykjanes- bæjar styrkti árin 2004 – 2007. Verk- efnið felst í því að drengir og stúlkur í efstu bekkjum grunnskóla fá ungbarnahermi með sér heim og fá reynslu af því að annast „ungbarn” allan sólarhringinn yfir helgi. Þessi reynsla felur í sér tækifæri til að læra um umönnun ungbarna, gera mistök og leiðrétta þau, án þess að það hafi áhrif á raunverulegt barn. Verk- efnið er vinsælt hjá ungmennum og er notað í 50 löndum og öllum fylkjum Bandaríkjanna sem er einsdæmi. Í breyttri samfélagsgerð er sá þáttur að ungmenni geri sér raunhæfar hugmyndir um foreldra- hlutverkið dýrmætar. Ungmenni dreymir um farsælt fjölskyldulíf og stefna hátt í þeim efnum. Hrafnhildur Eyþórsdóttir og Kristín B. Flygering, fjölluðu um verkefnið „Hugsað um barn” í lokaverkefni sínu til B.Sc. gráðu í hjúkrunarfræði árið 2007. Tilgangurinn var að kanna reynslu unglinga og foreldra þeirra af verkefninu. Í verkefninu ræddu þær við sex nemendur í Heiðarskóla og foreldra þeirra og þar kemur fram að margar rannsóknir hafi sýnt fram á góðan árangur verkefnisins. Verkefnið hjálpaði unglingunum að sjá hversu erfitt það getur verið að eignast barn á unglingsárum. Allir unglingarnir voru sammála um að þeir teldu sig ekki tilbúna í barneignir á næstunni. Verkefnið virðist auðvelda unglingum að gera sér raunhæfar hugmyndir varðandi foreldrahlutverkið. Foreldrar voru almennt ánægðir með verkefnið, töldu það hafa góð áhrif á samskipti þeirra við unglingana og það opnaði fyrir umræður um kynferðismál. Einnig vekja þær athygli á því að börn unglinga eru í aukinni hættu á námserfiðleikum og eins eru þau í meiri áhættu að verða fyrir líkamlegu og andlegu ofbeldi. Að- gerðaráætlun ríkisstjórnarinnar til að styrkja stöðu barna og ungmenna frá árinu 2007 er undir áhrifum frá Evrópsku ráðherranefndinni. Í bókun nefndarinnar til aðildar- ríkjanna kemur fram að ríkin skulu marka sér skýra stefnu um aukna foreldrafærnifræðslu m.a. til að fyrirbyggja ofbeldi gagnvart börnum. Guðrún Ösp Theodórsdóttir og Tinna Halldórsdóttir fjölluðu um aðlögun að móðurhlutverki í lokaverkefni sínu til B.Sc. gráðu í hjúkrunarfræði árið 2007. Höfundar völdu viðfangsefnið vegna áhuga þeirra á líðan mæðra eftir fæðingu og aðlögun þeirra að móðurhlut- verki, þar sem þær telja að þjónustu við mæður sé ábótavant. Þær fjalla um það sem þær nefna „þagnar- samsærið” um raunveruleika móðurhlutverksins. Í verkefni þeirra kemur fram að Antonia Nelson, geðlæknir, komst að þeirri niður- stöðu árið 1998 að sannfæringin um að móðurhlutverkið væri meðfætt ætti stóran þátt í fæðingarþunglyndi. Kennaranemar í Háskóla Ís- lands og laganemar í Háskólanum í Reykjavík hafa einnig notað „Hugsað um barn“ í verkefnum sínum. Allir hóparnir mæla með verkefninu. Verkefnið hefur hlotið sex tilnefningar til foreldraverðlauna Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra árin 2005 – 2006 og 2009. Ný þjónusta HSS er hugsuð þannig að ungmenni geta sent tölvupóst á netfangið ungmenni@hss.is með þeim spurningum, vangaveltum og vandamálum sem á þeim brenna og fengið svar frá hjúkrunar- fræðingi innan 48 klukkustunda. Út frá þeim veruleika sem lýst er hér er afar jákvætt að HSS sé að leita nýrra leiða til að þjónusta 16 til 25 ára ungmenni og vonandi nýta þau sér sem flest þessa þjónustu. Ólafur Grétar Gunnarsson varaformaður Barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar Umhverfissamtökin Blái herinn fögnuðu þann 16. septem- ber (Dagur náttúrunnar) þeim merka áfanga að hafa hreinsað úr náttúru landsins 1000 tonn af rusli (hráefni). Þetta eru auð- vitað ekkert skemmtileg tíðindi, þetta segir manni það að við séum sóðar og að okkur þykir ekkert vænt um náttúru landsins. Ef 1000 tonn eru farin spyrja eflaust einhverjir hvort það sé eitt- hvað eftir. Því er fljótsvarað, það eru mörg 1000 tonn eftir, hráefni sem bíður þess að komast úr okkar nærumhverfi og í endurvinnslu. Það hafa nokkrir aðilar í gegnum tíðina reynt að hreinsa rusl og drasl úr náttúru landsins og vakið athygli á þeim sóðaskap og lýti sem óvirðing okkar er með því að reyna ekki að stoppa þessa vanþróun hjá okkur, verkefni eins og Hreint Land-Fagurt Land, Græni herinn o.fl. Ég kalla þetta vanþróun vegna þess að fyrir mér er allt þetta rusl og drasl hráefni sem á heima í endurvinnslu. Með hreinsun á því skapast atvinna við endurvinnslu, það verður til gjaldeyrir, við sýnum ábyrgð, hreinna umhverfi, bættari ímynd, betri umgengni og betri söluvara sem útivistarsvæði, bæði fyrir okkur sjálf og ferðamenn, svo ekki sé minnst á betra um- hverfi fyrir komandi kynslóðir. Kjarni málsins er sá að hreinna um- hverfi er það sem samfélagið vill í framtíðinni, við hérna á Suður- nesjum eigum okkar tækifæri í því að andlit landsins fyrir ferðamenn, Reykjanesið sjálft, verði þannig í framtíðinni að eftir verði tekið sem hreint og fagurt land og að hér sé metnaðarfullt fólk sem býr og viðheldur hreinu og fallegu landi og sýnir það með stolti öllum sem hingað koma. 1000 tonn ei meir í náttúru okkar á Reykjanesinu en það tók 17 ár og 49.000 vinnustundir í sjálfboðaliða- vinnu að ná þessum áfanga. Núna þarf að snúa bökum saman allir sem einn, við viljum ekki sjá rusl og drasl út um allan Reykjanesskagann, hérna spretta upp sóðar alla daga sem ekkert kunna í siðferði sam- félagsins og henda rusli á víðavangi og það er ekki eins og það hafi ekki viðgengist áður en ef Reykjanesið á að vera söluvara sem hreint og fallegt land verðum við að stöðva þessa vanþróun og það strax. Blái herinn á marga velunnara á Reykjanesinu og mörg fyrirtæki hafa stutt okkur í gegnum árin, samfélagið hefur tekið virkan þátt í því að hjálpa til og sýnir mál- efnum okkar mikinn skilning. Blái herinn leggur til einn dag í mán- uði sem gjaldfrjálsan dag í Kölku fyrir einstaklinga, Blái herinn vill auka umhverfisvitund okkar Suður- nesjamanna með eflingu andans á árvekni gagnvart sóðaskap og Blái herinn vill starfa áfram fyrir Suður- nesin, en helst af öllu vildum við ekki þurfa að skrifa svona pistil um okkur, en það er tækifæri að gera betur og það er núna. Virðingarfyllst, Tómas J. Knútsson formaður og stofnandi Bláa hersins n ólafur grétar gunnarsson skrifar: Að læra að verða foreldri n tóMas J. knÚtsson skrifar: 1000 tonn ei meir vf@vf.isbréf til blaðsins PBS dagurinn í dag Frá PBS deginum í fyrra í Háaleitisskóla á Ásbrú. ÞaRFTU að aUglýsa? Hafðu samband í síma 421 0001 eða á fusi@vf.is fjölmennt konu- kvöld í Krossmóa

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.