Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.11.2012, Page 18

Víkurfréttir - 08.11.2012, Page 18
fimmtudagurinn 8. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR18 Fs-ingurinn Sindri Jóhannsson er að gera það gott ásamt félögum sínum í Hnís- unni en á dögunum var síðasti þáttur Hnís- unnar frumsýndur í Sambíóum við Hafnar- götu. Einnig sendu þeir frá sér skemmti- legt tónlistarmynd- band við frumsamið lag sem kallast Partý- steinn. Sindri samdi sjálfur lagið en hann fékk Arnar félaga sinn í Hnísunni til að aðstoða sig með textann. „Ég bjó þetta lag til vegna þess að okkur langaði að hafa tónlistarmyndband sem lokaatriði í þættinum okkar. Þátturinn fjallar um það að heimsendir sé að skella á, og lagið fjallar um síðasta daginn á jörðinni. Í bland við dass af vitleysu,“ segir Sindri sem hefur verið að fikta við að búa til tónlist undanfarin ár. Í sumar stofnaði Sindri svo fyrirtækið Optimus Margmiðlun ásamt félaga sínum en þar er margt spennandi að gerast. Sindri sem er 19 ára Njarðvíkingur á félagsfræðibraut er FS-ingur vikunnar Af hverju valdir þú FS? Ég hafði ekki áhuga á því að keyra í bæinn á hverjum degi, og mér fannst FS virka spennandi. Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Félagslífið er mjög fjölbreytt og skemmti- legt. Það er alltaf eitthvað um að vera. Hver eru áhugamál þín? Ég er búinn að vera í skólaþættinum í FS (Hnís- unni) síðastliðin 2 ár, og það hefur nokkurnveginn orðið að aðal áhugamálinu mínu. En annars hef ég alltaf haft gaman af öllu sem tengist margmiðlun. Stundarðu íþróttir eða ert í öðrum tómstundum? Nei, ég lagði fótboltaskóna á hill- una fyrir 2-3 árum. Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Ég stefni að því að vinna og læra eitt- hvað tengt áhugamálunum mínu. Ertu að vinna með skóla? Já, í sumar stofnaði ég fyritækið Optimus Marg- miðlun, ásamt félaga mínum Sölva Logasyni, og erum við nú að vinna á fullu í því. Hvað borðar þú í morgunmat? Eitthvað gott í mötuneytinu í FS Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur? Guðni Már Grétarsson. Hann er ótrú- lega góður og metnaðarfullur söngvari sem á örugglega eftir að ná langt. Hvað fær þig til að hlæja? Alltof margir hlutir. Hvert fara FS-ingar í hádegismat? Á Olsen eða Langbest. Sjónvarpsþættir: Suits og Modern Familiy Vefsíður: Facebook Skyndibiti á Suðurnesjum: Langbest og Kebab Kennari: Þorvaldur Fag: Saga Tónlistin: Allt nema Eminem og Yolo Swag tónlist FS-INGUR VIKUNNAR EFTIRLÆTIS... Ingibjörg Sigurðardóttir kemur frá Grindavík og er í 10. L. Áhugamál hennar eru körfubolti, fótbolti og tónlist. Hún hitti Balotelli í sumar og henni finnst alveg ótrúlega leiðinlegt í sundkennslu í skólanum. Hvað gerirðu eftir skóla? Oftast fer ég bara heim að læra og borða og síðan er ég á æfingu á hverjum degi. Síðan er ég bara með vinum mínum og í tölvunni. Hver eru áhugamál þín? Fótbolti og körfubolti og tónlist er svona það helsta og síðan að vera með vinum mínum og fjölskyldu. Uppáhalds fag í skólanum? Enska og bakstur er skemmtilegast. En leiðinlegasta? Mér finnst alveg ótrúlega leiðinlegt í sundkennslu! Hver er uppáhalds maturinn þinn? Plokkfiskur, slátur og auðvit- að pizzan sem mamma gerir. En drykkur? Vatn er alltaf best. Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það? Klárlega C. Ronaldo, Frank Ocean eða Kevin Durant. Ef þú gætir fengið einn ofur- kraft hver væri hann? Að geta lesið hugs- anir eða geta flogið! Hvað er draumastarfið í framtíðinni? Ég er eiginlega ekki með neitt svona draumastarf en það yrði örugglega eitthvað íþróttatengt. Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt? Ég hitti Balotelli i sumar! Hvernig myndirðu lýsa fata- stílnum þínum? Frekar venjulegur bara held ég! Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu? Hress, lífsglöð, metn- aðarfull og mjög hlátur- mild manneskja! Hvað er skemmtilegast við Grindavíkurskóla? Bara allir krakkarnir mjög skemmtilegir og við erum með ótrúlega hressa kennara. Hvaða lag myndi lýsa þér best? Ég hef ekki hugmynd! Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best? Örugglega bara ein- hver grínþáttur eins og Friends eða einhvað. Besta Bíómynd? Allar Dumb and Dum- ber eru bara bestar! Sjónvarpsþáttur? Jersey Shore, New girl, X-Factor og Pretty Little Liars og Modern Family. Get ekki valið á milli! Tónlistarmaður/Hljómsveit? Sigur Rós, Frank Ocean og Ed Sheeran eru í miklu uppáhaldi. Fatabúð? HM og Gina Tricot eru uppáhalds fatabúðirnar. Leikari? Jake Gyllenhaal er besti leikarinn. Vefsíða? Facebook! Bók? Bækurnar eftir Þorgrím Þráinsson og Hungurleik- arnir en annars er ég ekk- ert mikið fyrir að lesa.. Væri til í að lesa hugsanir n INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR // UNG UmSjón: PáLL oRRI PáLSSon • PoP@VF.IS ALLT nEmA EmInEm oG YoLo SwAG fréttir Fræðslu- og ljósmyndasýning um kjarnorkusprengjurnar sem varpað var á Hírósíma og Nagasaki árið 1945, margvíslegar afleiðingar þeirra og viðleitni alþjóðasamfélagsins til að vinna gegn útbreiðslu kjarnavopna var opnuð í Duushúsum í Reykjanesbæ í vikunni. Um er að ræða sýningu sem opnuð var í Reykjavík þann 9. ágúst sl. og fór síðan til Akureyrar í október. Sýningin samanstendur af 50 veggspjöldum með ljósmyndum, teikningum og textum á íslensku og ensku og fjallar á áhrifamikinn hátt um geigvænleg áhrif kjarnorkusprengjanna á íbúa og mannvirki í Hírósíma og Nagasaki. Alls létust strax eða á fyrstu mánuðunum eftir að sprengjurnar féllu um 214.000 manns og álíka margir hafa fram til ársins 2012 látist af eftir- köstum kjarnorkuárásanna. Enn þjást um 227.500 manns, sem bjuggu í Hírósíma og Nagasaki árið 1945, vegna sjúkdóma sem raktir eru til spreng- inganna. Á sýningunni er m.a. fjallað um skammtíma- og langtímaáhrif kjarnorkusprenginga á líf og heilsu, um kjarnorkusprengjur, áhrif tilrauna með kjarnavopn á menn og dýr og um tilraunir til samningagerðar á alþjóða- vettvangi um takmörkun og eyðingu kjarnavopna. Sýningin er opin virka daga frá 12.00-17.00 og um helgar frá 13.00-17.00. Einnig má panta tíma fyrir hópa utan hefðbundins opnunartíma. Aðgangur er ókeypis. Sýningin var fjölsótt bæði í Reykjavík og á Akureyri og eru íbúar Suðurnesja hvattir til að sjá sýninguna á meðan hún er í Duushúsum í Reykjanesbæ. Kenn- arar eru sérstaklega hvattir til að koma með nemendur sína en út frá sýningunni og markmiðum aðalnámskrár var unnin ítarlegur kennsluvefur ásamt leiðbein- ingum: Sjá heimasíðu sýningarinnar http://www.hirosimanagasaki.is/ Sýningin kemur til Íslands á vegum The Nagasaki National Peace Memorial Hall for the Atomic Bomb, sem starfar á vegum japanska velferðarráðuneytisins og hefur það hlutverk að vinna með fræðslu og upplýsingamiðlun að því markmiði að kjarnorkuvopnum verði aldrei beitt aftur og að varðveita minn- ingu þeirra sem létust í kjarnorku- árásunum eða af afleiðingum þeirra. Samstarfsaðilar á Íslandi eru: Utan- ríkisráðuneytið, Duushús í Reykja- nesbæ, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands, Menningarhúsið Hof á Akur- eyri, Listasafn Rvk., Íslensk-japanska félagið, Samstarfshópur friðarhreyfinga, Takanawa ehf., sendiráð Íslands í Japan og sendiráð Japans á Íslandi. Sýning um kjarnorkuárásirnar á Hírósíma og Nagasaki í Duus n Sýning í Bíósal Duushúsa í Reykjanesbæ, 6. nóv. – 16. des. 2012

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.