Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.11.2012, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 08.11.2012, Blaðsíða 24
vf.is Fimmtudagurinn 8. nóvember 2012 • 44. tölublað • 33. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00 Tímapantanir í síma 426 8540 Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00 Frjáls mæting VALUR KETILSSON SKRIFAR FIMMTUDAGSVALS FRÉTTAVAKT VF Í SÍMA 898 2222 vaktsími allan sÓlarHringinn Áhugi minn á bæjarpólitíkinni hefur dvínað með árunum. Sjálfstæðismenn hafa ráðið ríkjum undanfarin kjörtímabil og máttlaus minnihlutinn ekki verið svipur hjá sjón. Enda í minnihluta. Árni bæjó hefur siglt skútunni milli skers og báru en afstýrt strandi. Bæjar- bragurinn hefur tekið miklum breytingum á þessum tíma. Bæði til góðs og til hins verra. Loforðin láta á sér standa og tregi ríkis- stjórnarinnar hefur haft áhrif á stöðuna. Jóhanna alveg búin á því og nær ekki að klára með stæl. Ég sakna kratanna. Alþýðufólksins og jafn- aðarmannanna sem börðu bumbur og héldu flottustu kosningapartíin. Tala nú ekki um þegar bæirnir voru tveir og Hafnirnar afskekktar í hreppapólitík. Njarðvíkingar voru svakalegar harðir. Sjonni Haf-steins og Óli Thord stýrðu krataherdeildinni og áróðursherferðunum með dreifingu á einblöðungum. Ekkert að skafa af hlutunum. Sögðu það sem ekki mátti segja. Allir lásu en sumir bölvuðu í hljóði. Nú heyja menn sitt áróðursstríð á fésbókinni en þangað fer ég afar sjaldan. Alþingiskosningar á næsta ári eru meira að segja búnar að skemma fyrir okkur, sem verðum fimmtug á næsta ári, allsherjar afmælisveislu sem halda átti 27. apríl. Að vísu áttuðum við okkur ekki á því að þetta væri kjördagur! Finnum út úr því en ætlum líka að marsera niður Hafnargötuna á Ljósanótt og biðja bæjarstjórann um að fara ekki með sömu Helguvíkurræðuna fjórða árið í röð. Við kunnum hana öll utan að. Ég var brennandi heitur í pólitíkinni á yngri árum. Hafði minn elsta bróður að fyrirmynd og annað gott fólk í forystunni. Prentuðum út heilu símaskrárnar af heimilisföngum kjósenda og hringdum eins og eng- inn væri morgundagurinn til álitlegra atkvæða. Skóla- krakkarnir voru mitt sérsvið og Kratahöllin minn heimavöllur. Fána flokksins, mynd af kratarós í hendi, var flaggað með virktum og undirtónum Átján rauðra rósa. Jafnaðarmennskan þótti flott, svei mér þá! Ástandið hefur oft verið betra. Ég er þó bjartsýnn á framhaldið og trúi því að úr atvinnuástandinu rætist. Möguleikarnir eru fjölmargir og ég lofa þolin- mæði bæjarfulltrúanna fyrir að hanga á kosninga- loforðunum. Treysti því að þau verði efnd. Það er hins vegar ekki útlit fyrir að það verði breyting á stjórn bæjarins. Framsókn er í felum og Samfylkingin hefur leitað æ meira til vinstri í seinni tíð. Hefur ekki fundið fjölina sem hugmyndasmiðirnir ætluðu henni. Sjálfur hef ég ekki hugmynd um hvort ég er hægri eða vinstri krati. Ætli ég sé ekki bara krati með gati? Krati með gati Mei mí beibísitt? - Bókakynning Laugardaginn 17. nóvember, annan laugardag, mun Marta Eiríksdóttir, lesa í fyrsta sinn opinberlega upp úr bókinni sinni Mei mí beibísitt? Víkurfréttir og Bókasafn Reykjanes- bæjar standa að þessari bókakynn- ingu, sem fram fer í göngugötu Kjarna við Flughótel í Keflavík frá klukkan 15:00 – 17:00. Dagskrá verður á léttum nótum með hressingu í tónum og tali fyrir gesti. Taktu daginn frá fyrir skemmtilegan viðburð, því allir eru hjartanlega velkomnir! Vantaði skrá yfir þá sem hafa kosn- ingarétt hjá FSS „Það hefur ekki verið kosið um lista eða milli manna í áratugi á aðalfundum Ferðamálasamtaka Suðurnesja, [FSS]. Þegar kemur að því að þurfi að kjósa verður að vera óvéfengjanleg skrá yfir þá sem eiga kosningarétt samkvæmt lögum félagsins,“ segir Kristján Pálsson, framkvæmdastjóri Mark- aðsstofu Suðurnesja en eins og greint var frá nýlega var aðalfundi FSS frestað þegar annað framboð til formanns kom fram. Víkurfréttir spurðu Kristján út í ástæður þess að fundinum var frestað en gagnrýni á þá ákvörðun hefur komið fram og ástæðan sú að Kristján sjálfur var að fá mót- framboð. „Framboð voru ekki tilkynnt fyrirfram og ekki vitað hverjir vildu ganga í félagið af þeim sem mættu á aðalfundinn. Það varð því niðurstaðan að gefa þeim sem þess óskuðu tækifæri til að gerast félagar og greiða félagsgjald eins og lög félagsins gera ráð fyrir og taka þátt í kosningunum. Ég ítreka að aðalfundinum var ekki slitið heldur frestað og boðað verður til framhaldsaðalfundar 20. nóvember nk.,“ sagði Kristján við VF.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.