Bæjarins besta - 10.01.2008, Síða 11
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 11
„Íbúaþróun á Vestfjörðum er ekki vandamál
Vestfirðinga, heldur vandamál þjóðarinnar. Ef
fer fram sem horfir gæti 95% af þjóðinni endað
á suðvesturhorni landsins eftir ekki mörg ár.
Fyrir mér er það ekki áhugaverð framtíðarsýn“
Súðavíkur
lendir aðilar höfðu lýst yfir
miklum áhuga á að nýta að-
ferðir fyrirtækisins til fram-
leiðslu matvæla, en beitufram-
leiðslan er einungis sýnishorn
af því sem hægt er að gera
með þessari tækni. Þeir hafa
áfram verið í miklu sambandi
og lýst yfir vilja til að koma
inn sem hluthafar. Það hefur
samt ekki enn gengið enn, en
tíminn sem við höfum er að
renna okkur úr greipum. Leit-
að var eftir fjárhagslegri að-
komu Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins að félaginu og
miklar vonir bundnar við sam-
starf við þá. Það voru því voru
mikil vonbrigði þegar sjóður-
inn hafnaði umsókn félagsins
á síðasta ári.“
– Hvaða skýringar voru
gefnar?
„Við fengum engar skýring-
ar. En ég tel að skýringin sé
fyrst og fremst sú að sjóðurinn
var mjög áhættusækinn og fór
illa út úr fjárfestingum á tíma-
bili. Síðan var sett aukið fjár-
magn í sjóðinn og nýir stjórn-
endur koma inn. Sjóðurinn
hefur jafnframt verið að leita
að fjármagni frá einkafyrir-
tækjum og blanda því saman
við opinbert fjármagn. Einka-
fyrirtæki sem setja fé inn í
svona sjóði vilja ekki vera
áhættusæknir og því þarf Ný-
sköpunarsjóður að sýna fram
á árangur í starfi sínu, sem
fellst í litlum afskriftum.
Þessar áherslubreytingar
hafa að mínu áliti leitt til þess
að sjóðurinn fer úr því að vera
mjög áhættusækinn í að vera
mjög áhættufælinn. Ég vil
meina að Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins sé í dag mun
nær því að vera fjárfestinga-
sjóður og áhættusækni sjóðs-
ins sé það lítil að þau sprota-
fyrirtæki sem það er að setja
fjármagn í eru í raun gjaldgeng
í hvaða banka sem er.
Þetta litla dæmi er hluti af
ytra umhverfi fyrirtækja á
landsbyggðinni og er alfarið
á ábyrgð ríkisvaldsins. Það er
mjög mikilvægt fyrir atvinnu-
lífið í landinu, að stefna ríkis-
valdsins gagnvart frumkvöðl-
um og sprotafyrirtækjum sé
skýr og sögð eins og hún er,
ekki eins og við viljum hafa
hana. Jafnframt er eðlilegt að
slíkir nýsköpunarsjóðir geri
ráð fyrir hóflegum afskriftum
á hverju ári, annars er erfitt
fyrir slíkan sjóð að styðja við
bakið á frumkvöðlum á trú-
verðugan hátt.
með lögheimili á landsbyggð-
inni og sannanlega búsettir þar
og með atvinnu. Margir eru í
þeirri aðstöðu að geta unnið
sína vinnu í fjarvinnslu og
gætu staðsett sig úti á landi í
fjölskylduvænum og góðum
samfélögum og um leið aukið
ráðstöfunartekjur sínar. Ég tel
að slík breyting mundi breyta
stöðunni á sama hátt og
reynslan erlendis hefur sýnt
að fyrirtæki hika ekki við að
taka sig upp og flytja á milli
landa til að lækka rekstar-
kostnað sinn eða hækka tekjur
ef þeim gefst kostur á því.“
Bröltið með
pokabeituna
– En hvernig er með beitu-
verkmiðjuna?
„Að hluta til má rekja hluta-
fjárkaup okkar í Aðlöðun, til
þeirrar stöðu að, seinni hluta
ársins 2005 misstum við
helming allra starfa í sveitar-
félaginu þegar Frosti hf.
stöðvaði rækjuveiðar og vinn-
slu. Við lokun verksmiðjunnar
fóru einhverjir starfsmanna til
starfa á Ísafirði og keyrðu á
milli, en ljóst var að ef það
kæmi ekki eitthvað í staðinn
þá mundi hluti fólksins sem
missti vinnuna að öllum lík-
indum hugsa sér til hreyfings
til staða þar sem atvinnu var
að fá. Við mátum stöðuna svo
að við yrðum að leita allra
leiða til að fjölga atvinnutæki-
færum í Súðavík og við sáum
fyrir okkur fyrirtæki önnur en
dæmigerð fiskvinnslufyrir-
tæki.
Í Aðlöðun sáum við fram-
leiðslufyrirtæki sem hafði
verið í öflugri þróunarvinnu á
sínum aðferðum. Eftir að hafa
skoðað kaup á félaginu ákveð-
um við að fjárfesta í fyrirtæk-
inu með þeim skilmálum að
verksmiðjan yrði flutt til Súða-
víkur. Samhliða okkar að-
komu var danskt fyrirtæki sem
setti inn nýtt hlutafé í Aðlöð-
un. Þar sem fyrirtækið bar með
sér mikinn þróunarkostnað
var ljóst að auka þyrfti meira
við hlutafé félagsins. Þar var
horft til þess að Nýsköpunar-
sjóður Íslands hafði ekki kom-
ið að félaginu og vonir bundn-
ar um þátttöku þeirra þar sem
Aðlöðun hafði yfir að ráða
aðferðafræði sem var varið
einkaleyfi í 27 löndum auk
Íslands og félagið dæmigert
frumkvöðlafyrirtæki. Auk
þess var horft til þess að er-
þá er hugsanlegt að fyrirtækið
fari í þrot. Það má segja að
saga Aðlöðunar hf hefur verið
löng og þyrnum stráð og í dag
er óvíst með framtíð þess.
Íbúaþing með
hækkandi sól
– Hvernig leggst nýja árið í
sveitarstjórann?
„Þrátt fyrir þungan róður á
mörgum sviðum leggst árið
vel í mig, það eru enn tækifæri
sem verið er að vinna í sem
tiltrú er á að geti bætt stöðuna.
Það er t.d. ævintýri að fylgjast
með uppbyggingunni sem er í
sjóstangaveiðinni. Eftirspurn-
in hefur verið mikil og ekki
síst er það ánægjulegt að sjá
hvað veiðimennirnir eru ánægð-
ir með þjónustuna og um-
hverfið okkar. Við höfum mælt
ánægju þeirra með skoðana-
könnunum og hafa niðurstöð-
ur sýnt okkur að við erum að
ná toppeinkunn á öllum svið-
um þjónustunnar og það segir
okkur að við erum á réttri leið
því þetta eru kröfuharðir við-
skiptavinir. Við eigum eftir
að sjá töluverða aukningu á
komum sjóstangaveiðimanna
til Súðavíkur og Vestfjarða á
næstu árum og þar eiga mörg
ný tækifæri eftir að líta dagsins
ljós. Síðan er verkefnið með
Melrakkasetrið sem er mjög
spennandi og einstakt á land-
inu. Verið er að vinna að
endurbyggingu Eyrardalsbæj-
ar og uppsetningu safns um
Íslenska melrakkann sem
verður staðsett í Eyrardals-
bænum, og er ég viss um að
það eiga eftir að skapast mikil
tækifæri í kringum það þegar
fram líða stundir. Við erum
þannig almennt í góðum mál-
um í ferðaþjónustutengdum
verkefnum, en á árinu þurfum
við að fylgjast vel með atvinnu-
málum á svæðinu og þróun
fjölda starfa. Alltaf eru aðilar
að skoða mögulega uppsetn-
ingu atvinnurekstrar í Súða-
vík. Það sem heillar er m.a.
að við erum með nægt fram-
boð á atvinnuhúsnæði á svæð-
inu, gott vatn og kjörið um-
hverfi fyrir fjölskyldufólk þar
sem leikskólinn er gjaldfrjáls
sem er mikil búbót fyrir ungar
fjölskyldur. Einnig á að halda
íbúaþing í vor og fara yfir
málin. Við erum með í gangi
stefnu sem við höfum unnið
eftir frá árinu 2005 þar sem
við settum okkur markmið um
fjölda íbúa og aukningu á at-
vinnutækifærum. Þau mark-
mið hafa ekki náðst og því
mikilvægt að fara yfir þau mál
og skoða stefnuna sem við
settum okkur þá. Vorið er
framundan með hækkandi sól
og það er góður tími til að
vinna þá framtíðarsýn með
íbúum sveitarfélagins.“
Hugsanlegt að Aðlöð-
un verði gjaldþrota
– Er fyrirtækið komið yfir
alla örðugleika í framleiðsl-
unni?
„Við erum núna á kross-
götum með félagið. Við hóf-
um framleiðslu aftur í byrjun
október og frá því að fram-
leiðslan hófst hefur öll poka-
beita verið fyrirframseld og
eftirspurn verið mun meiri en
verksmiðjan annar. Þessa dag-
ana eru hagsmunaaðilar í
sjávarútvegi að skoða fjár-
hagslega aðkomu að félaginu
með kaupum á hlutafé til að
tryggja áframhaldandi rekstur
þess. Það eru bæði útgerðir
hér á svæðinu og fyrir sunnan.
Ég býst við að við munum sjá
fyrir endann á því mjög fljót-
lega hvort að við höldum
áfram eða ekki. Ef ekki tekst
að safna nægjanlegu hlutafé