Bæjarins besta - 10.01.2008, Page 13
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 13
Íbúar á Suðureyri voru 304
talsins 1.desember 2007 sl.,
samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Íslands, og hefur
íbúum því fjölgað um fjóra á
milli ára. Íbúum á Suðureyri
hefur fjölgað um 25 síðan
1997 eða 8,4%. Íbúum Ísa-
fjarðarbæjar fækkaði um 135
á árinu og er íbúafjöldi í fyrsta
skipti kominn undir 4000 íbúa
eða 3963. Af Vestfjörðum
fluttu 274 til höfuðborgar-
svæðisins á tímabilinu janúar
til september en 155 fluttu frá
höfuðborgarsvæðinu á Vest-
firði á sama tímabili, munur-
inn er 119 manns.
Á sama tíma er atvinnuleysi
minnst á Vestfjörðum, sam-
kvæmt tölum Vinnumála-
stofnunar en tölur um atvinnu-
leysi sveiflast oft mikið yfir
árið. Líkum má að því leiða
að lágar atvinnuleysistölur og
fækkun íbúa haldist í hendur
og því gefi tölur um atvinnu-
leysi ekki rétta mynd af lýð-
fræði svæðisins. Halldór Hall-
dórsson bæjarstjóri Ísafjarð-
arbæjar kannast vel við þessa
skrumskælingu og segir að
það sé oft sagt í gríni um Vest-
firðinga að þeir flytji út fisk
og atvinnuleysi.
„Við verðum að horfa til
þess að það vantar víða fólk
til starfa, það vantar til dæmis
á marga báta. Það virðist sem
þróunin sem orðið hefur í fisk-
vinnslunni í þá átt að fleiri
útlendingar skapi gjaldeyrinn,
sé að færast yfir á sjómennsk-
una, það vantar ungu kynslóð-
ina í sjómannastétt. Við mun-
um glíma við það að fá fólk í
vinnu á þessu ári, en það
verður ánægjuleg glíma,“ seg-
ir Halldór og minnir á að öll
kurl séu ekki komin til grafar
í mótvægisaðgerðum ríkis-
stjórnarinnar vegna skerðing-
ar á þorskkvóta.
„Nú fer Innheimtustofnun
sveitarfélaga að koma með sín
6-8 störf og við megum eiga
von á störfum og peningum í
atvinnuþróun og annað á ár-
inu, peningum sem eru á fjár-
lögum. Ég vona að það verði
ekki fleiri mistök af þeirri gerð
sem nýverið áttu sér stað þegar
settir voru peningar vegna
þorskkvótaskerðingar í við-
hald ríkiseigna á m.a. Hvann-
eyri og Búðardal sem eru fjarri
því að vera sjávarútvegspláss.
Bolungarvík varð illa úti og
ég varaði ráðherrana við
þessu, benti þeim á svokall-
aðan félagsheimilasjóð sem
væri hentugri til að styðja við
sjávarplássin,“ segir Halldór
Halldórsson bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar.
– sigridur@bb.is
Íbúum fjölgar á Suðureyri
Atvinnu- og mannlíf stendur í ágætis
blóma á Suðureyri við Súgandafjörð.
Gospelkór Vestfjarða held-
ur tónleika í Safnaðarheimil-
inu í Bolungarvík á morgun
kl. 20 en þá verða fimm ár
liðin frá því að kórinn hélt
sína fyrstu tónleika. Frum-
kvöðlar að stofnun kórsins
voru Pálína Vagnsdóttir og
Agnes Sigurðardóttir sóknar-
prestur en þær fengu gospel-
frömuðinn Óskar Einarsson
hingað vestur í janúar 2003
og var hann ásamt Hrönn
Svansdóttur og Þóru Grétu
Þórisdóttur með þriggja daga
námskeið. Því námskeiði lauk
svo með tónleikum í Víkurbæ
fyrir fullu húsi og var mikil
stemmning á staðnum. Óskar
hefur komið hingað tvisvar
eftir þetta og hefur koma hans
lyft upp kórfélögum og öðrum
sem þátt hafa tekið í nám-
skeiðunum.
Gospelkór Vestfjarða hefur
sungið víða og tekið þátt í
ýmsum uppákomum þessi
árin, auk þess sem haldnir hafa
verið tónleikar hér á svæðinu,
ásamt á Hólmavík og Patreks-
firði. Lengst af var Pálína
Vagnsdóttir kórstjóri en Vig-
dís Garðarsdóttir stjórnaði
kórnum einnig um tíma. Frá
haustinu 2006 tók Auður Arna
Höskuldsdóttir við sem kór-
stjóri.
Þar sem upphaf kórsins
byrjaði í Bolungarvík, finnst
okkur tilvalið að halda upp á
5 ára afmælið þar og gefa Bol-
víkingum og nærsveitarmönn-
um tækifæri til að halda upp á
þetta afmæli með okkur. Von-
um við að sem flestir sjái sér
fært að mæta og gleðjast með
okkur. Aðgangseyrir er 1.000
krónur fyrir fullorðna en
ókeypis fyrir börn 12 ára og
yngri og eldri borgara 67 ára
og eldri.
– thelma@bb.is
Gospelkór Vestfjarða fimm ára
Atvinna
Íslandspóstur hf., óskar eftir að ráða bíl-
stjóra í útakstur á kvöldin.
Upplýsingar í síma 456 5000 og á póst-
húsinu.
Stöðvarstjóri.
Hægt að fjölga íbúum Vestfjarða um
1.130 án þess að byggja nýtt húsnæði
Húsnæði er verulega van-
nýtt á Vestfjörðum og íbúum
gæti fjölgað um 1.130 án þess
að byggt yrði nýtt íbúðarhús-
næði. Að því er fram kemur í
skýrslu RHA um valda sam-
félagsþætti sem varða fyrir-
hugaða byggingu olíuhreinsi-
stöðvar væri hægt að fjölga
íbúum um 450 á sunnan-
verðum Vestfjörðum og um
680 á Ísafjarðarsvæðinu.
Í árslok 2006 var allt íbúðar-
húsnæði á Íslandi samtals
15.865.009 m2 samkvæmt
Fasteignamati ríkisins. Á sama
tíma voru íbúar Íslands 307.672.
Þetta þýðir að fermetrafjöldi
íbúðarhúsnæðis á hvern íbúa
var 51,6 m2. Einungis í Ísa-
fjarðarbæ og Tálknafjarðar-
hreppi var fermetrafjöldi á
íbúa í líkingu við meðaltal
landsins. Mesta vannýting
íbúðarhúsnæðis af þessum
sveitarfélögum er í Vestur-
byggð, og sjá má að nýtingin
á Bíldudal er enn verri en í
sveitarfélaginu í heild.
Samkvæmt skýrslunni ætti
að vera hægt að fjölga íbúum
á Vestfjörðum töluvert án þess
að byggja meira íbúðarhús-
næði en til var í árslok 2006,
nánar til tekið um rúmlega
450 fyrir sunnan Hrafnseyr-
arheiði og tæplega 680 norðan
Hrafnseyrarheiðar. Jafnframt
mætti fjölga um nálægt 100
manns í báðum þeim þéttbýl-
iskjörnum sem eru næstir
Hvestu og Söndum.
„Segjum nú sem svo að öfl-
ug atvinnustarfsemi kæmi
skyndilega til skjalanna á Vest-
fjörðum og íbúum myndi
fjölga. Mun hluti af fjölgun-
inni þá ekki verða vegna aukn-
ingar í þjónustugreinunum?
Varla er hægt að gera ráð fyrir
því að aukalegur fjöldi fólks
gangi eingöngu til vinnu hjá
hinum nýja atvinnurekanda?
Svarið við þessu er að vissu-
lega muni hluti fjölgunarinnar
verða fólk sem vinnur við
þjónustu enda er það óhjá-
kvæmilegur fylgifiskur að
þjónusta þarf að aukast ef íbú-
um fjölgar. Spurningin er hins
vegar í hve miklum mæli“.
segir í skýrslunni en þar kemur
fram að ýmislegt bendi til þess
að ónýtt afkastageta sé í þjón-
ustugreinum á Vestfjörðum.
Sem dæmi geti grunnskólar
tekið við eitthvað fleiri nem-
endum án þess að fjölga starfs-
fólki, bakarí geti bakað eitt-
hvað meira brauð án þess að
fjölga starfsfólki og ýmis fyr-
irtæki geti veitt meiri þjónustu
án þess að fjölga starfsfólki.
Það er því ekki víst að það
yrði fjölgun í þjónustu með
sama hætti á Vestfjörðum ef
öflug atvinnustarfsemi kæmi
til skjalanna eins og á þeim
stöðum sem ekki hafa átt við
fólksfækkun að glíma. „Hin
nýja atvinnustarfsemi á Vest-
fjörðum gæti því vænst þess
að fá stærri skerf af nýjum
ársverkum sem þessi nýja
starfsemi skapaði heldur en
ef sama starfsemi færi í gang
annarsstaðar á landinu þar sem
efnahagsþróun hefur verið
með eðlilegri hætti en á Vest-
fjörðum“, segir í skýrslunni.
Húsnæði á Vestfjörðum er vannýtt. Myndin er af Ísafirði en þar er fermetrafjöldi á íbúa í líkingu við meðaltal landsins.