Bæjarins besta - 10.01.2008, Qupperneq 20
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
bb.is – fjölsóttasti vestfirski vefurinn
Mörgum nemendum Mennta-
skólans á Ísafirði bárust ekki
gíróseðlar fyrir skráningar-
gjöld vorannar vegna mistaka
í banka og hjá skólanum. Af
þeim sökum var mörgum
nemendum vísað frá skólan-
um á föstudag þegar þeir
komu að sækja stundaskrár,
samkvæmt upplýsingum frá
foreldri eins nemanda. Ein-
hverjir nemendur höfðu fyrir
rælni séð gíróseðil í heima-
banka sínum og borgað hann
með þeim hætti og fengu þeir
stundaskrá í hendurnar. Þeim
sem vísað var frá var heldur
brugðið og þótti hart að þurfa
að líða fyrir mistök annarra
með þessum hætti.
Samkvæmt upplýsingum
frá fjármálastjóra Mennta-
skólans, Gísla H. Halldórs-
syni, snýr þetta aðallega að
nemendum 18 ára og yngri,
en fyrir mistök voru kröfur
stofnaðar á þeirra kennitölur í
stað foreldra þeirra og því birt-
ust gíróseðlarnir ekki í heima-
bönkum foreldranna. Til að
bæta gráu ofan á svart höfðu
gíróseðlar sem sendir voru út
27. desember ekki borist öll-
um nemendum og sumir fengu
þá í hendurnar á föstudag.
Menntaskólinn hefur það
fyrir reglu að afhenda ekki
stundaskrár fyrr en greiðsla
hefur borist því reynsla skóla-
yfirvalda er sú að betra þyki
að láta nemendur greiða sem
fyrst, því ella geta greiðslur
dregist fram úr hófi. Í þessu
tilfelli geta nemendur fengið
upplýsingar um kröfunúmer
hjá skólanum sem þeir geta
svo notað til að greiða gíróseð-
ilinn og verða stundaskrár þá
aðgengilegar á netinu að
greiðslu lokinni, eða með
upplýsingum í gegnum síma
ef viðkomandi hefur ekki tök
á að komast í netsamband.
Gísli Halldór vill koma á
framfæri afsökunarbeiðni fyr-
ir hönd skólans vegna þessara
leiðu mistaka. Menntaskólinn á Ísafirði.
Fengu ekki stundaskrá vegna mistaka
Ný gjaldskrá Bolungar-
víkur tók gildi 1. janúar og
meðal helstu breytinga í
henni frá fyrra ári er aukin
niðurgreiðsla bæjarins á
leikskólagjöldum. Á síðasta
ári greiddi bærinn niður
fjórðung leikskólagjalda
fimm ára barna en í ár verða
50% leikskólagjalda barna
sem fædd eru á árinu 2003
niðurgreidd. Það þýðir að
fimm ára börn sem hafa 8
tíma vistun þurfa einungis
að greiða fyrir fjóra tíma.
allan daginn. Þessi breyting
tekur þó ekki gildi fyrr en 1.
ágúst en það er upphaf leik-
skólaárs sem miðað er við.
Tekjumissir bæjarfélagsins
vegna þessa er 1,1 milljón
króna.
Aðrar breytingar í gjald-
skrá er hækkun á sorphirðu-
gjaldi, sem nú verður 21
þúsund krónur. Til viðmið-
unar má nefna að í Ísafjarð-
arbæ eru þau 35 þúsund
krónur. Ókeypis verður
áfram í sund fyrir börn yngri
en 16 ára og íbúa eldri en 67
ára. Í greinargerð bæjar-
stjórans sem fylgdi fjárhags-
áætlun kemur fram að tekjur
Íþróttamiðstöðvarinnar Ár-
bæjar hafa ekki minnkað þó
börn séu hætt að borga í
sund.
Hafnargjöld hækka nokk-
uð en þar verður þjónusta
minnkuð í takt við minni
umsvif og starfsmaður hafn-
arinnar verður færður til
innan sveitarfélagsins. Eng-
ar hækkanir verða í félags-
lega kerfinu en aðrar hækk-
anir í gjaldskrá falla undir
eðlilegar vísitölubreytingar.
Leikskólagjöld
greidd niður
Bolungarvík.
Jólin
kvödd!