Iðnaðarmál - 01.05.1955, Qupperneq 9

Iðnaðarmál - 01.05.1955, Qupperneq 9
og hvernig unnt er að koma í veg fyr- ir þær. Þar sem mjólk er seld ógerilsneydd beint til neytenda, er nauðsynlegt, að dýralæknir skoði kýrnar mánaðar- lega með tilliti til júgurbólgu og ann- arra sjúkdóma. Enn fremur er nauð- synlegt, að læknisskoðun á heimilis- fólki fari fram árlega að minnsta kosti. Mjólk frá slíkum framleiðend- um þarf að rannsaka sem oftast á op- inberum rannsóknarstofum, svo að unnt sé að fylgjast með gæðum mjólk- urinnar. Nú hagar svo til, að opinber- ar rannsóknarstofur eru aðeins tvær. er annast rannsóknir fyrir heilbrigð- isstarfsmenn og aðra, sem þess óska, þ. e. Atvinnudeild Háskólans og til- raunastöðin að Keldum. Báðar þess- ar rannsóknarstofur eru í umdæmi Reykjavíkur, og koma þær því ekki að notum sem skyldi öðrum en þeim, er starfa þar eða í næsta nágrenni. Er því brýn nauðsyn að fjölga rannsókn- arstofum í landinu, svo að allir starfs- menn heilbrigðisstjórnarinnar, hvar sem er á landinu, eigi þess kost að rannsaka eða Iáta rannsaka mjólk og mjólkurvörur og þær vörur aðrar, sem þeir hafa eftirlit með. Þá fyrst verður unnt að fylgjast fullkomlega með framleiðslunni og kippa því í lag, sem aflaga fer. Um 3500 mjólkurframleiðendur leggja mjólk sína inn í áðurnefnd mjólkurbú. Hins vegar teljast bænd- ur vera í landinu um 6200. Þeir mjólkurframleiðendur, sem leggja ekki mjólk sína inn í mjólkurbú, framleiða sjálfir smjör, svonefnt bögglasmjör. Slíkt smjör er unnið úr ógerilsneyddum rjóma, en það verð- ur að teljast hæpin ráðstöfun frá heil- brigðislegu sjónarmiði. Heildarmjólkurmagn mjólkurbú- anna á árinu 1954 reyndist vera 51. 946.673 kg, sem er 4.600.175 kg meira magn en á árinu 1953 eða 9,72 % aukning. í 1. og 2. flokk flokkuð- ust 50.350.937 kg eða 96,93%, og 3. og 4. flokks mjólk reyndist vera 1.595.736 kg eða 3,07%. A árinu 1953 reyndist 1. og 2. flokks mjólk vera 45.652.938 kg eða 96,42%, og 3. og 4. flokks mjólk reyndist vera 1.693.560 kg eða 3,58%. Af þessu sést, að talsvert magn mjólkur flokkast í 3. og 4. flokk, en fer stöðugt ininnkandi, enda hlýtur það að vera kappsmál mjólkurfram- leiðenda að framleiða 1. flokks mjólk eingöngu. Matvara, hvaða nafni sem hún nefnist, verður að vera falleg, hrein, vel lyktandi og bragðgóð. Hún verð- ur — með öðrum orðum — að falla kaupendum í geð. Hún verður að vera góð vara, úrvalsvara. Vöruvöndun er það atriði, sem mestu varðar í allri framleiðslu. Þrá- sinnis hefur komið í ljós — bæði hér og erlendis —, að sala hefur aukizt stórum, hvenær sem vörugæðin hafa aukizt. Má með réttu segja, að sala eykst í réttu hlutfalli við vörugæðin. Þetta á ekki sízt við um mjólk og mjókurafurðir. Og ekki má gleyma því, að vöruvöndun verður enn veiga- meiri þáttur framleiðslunnar, þegar offramleiðsla á sér stað. Ef framleiða skal góða vöru, verð- ur að vanda til hráefnis í upphafi. Til þess að fá úrvals-mjólkurafurðir verður mjólkin, sem nota á til vinnslu, að vera 1. flokks vara. Þar kemur til kasta mjólkurframleiðenda. Því að- eins geta mjólkurbúin framleitt úr- valsmjólk og mjólkurafurðir, að mjólkin sé með ágætum, er hún berst til þeirra frá framleiðendum. — Þess ber sérstaklega að gæta, að gölluð mjólk blandist ekki góðri og ógall- aðri mjólk. Eitt fúlegg eyðileggur stóra eggjaköku. Einn lítri af gallaðri mjólk spillir stóru keri af góðri mjólk. Það er vegna þessa, að rannsaka verð- ur vandlega hvern mjólkurbrúsa, er berst til mjólkurbúanna, og endur- senda, ef innihaldið er ekki hreint og ómengað. Stundum veldur það mis- skilningi og óánægju, er mjólkurbú endursenda mjólk. Mjólkurframleið- andi misvirðir þetta við starfsmenn mjólkurbúanna og lætur það stundum bitna á bílstjórunum, sem annast flutningana. Slíkt stafar venjulega af því, að þeir, sem hlut eiga að máli, eru hnútunum ekki nægilega kunnug- ir. Er því vert að athuga þá nokkru nánar, þ. e. a. s. hvað það er, sem liggur til grundvallar, er ræðir um gæði mjólkur og vöruvöndun. Þegar á fyrsta stigi slíkra athugana rekumst við á bakteríur, oft kallaðar gerlar. Verður sú reyndin á, að þeir eiga ekki lítinn þátt í þeim erfiðleik- um, sem á vegi verða. Þegar horft er á gerla í smásjá, get- ur að líta plöntur. Gerlar eru plöntur eins og „grasið, sem grær á grænum völlum“. En þær eru langt frá því að vera á stærð við stráin, en eru hins vegar hinar smágervustu plöntur, Framh. á 81. bls. IÐNAÐARMÁL 73

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.