Iðnaðarmál - 01.05.1955, Síða 18
Kynnisferðir til Bandarikjanna
Fræðslukvikmyndir
Framh. aj 66. bls.
tíðast er um fræðslukvikmyndir hér á
landi.
A undanförnum árum hefur þróazt
ný aðferð til þess að setja tón og tal á
kvikmyndir. Er hún í því fólgin, að
sett er segulbands-tónræma á filmuna,
og síðan er talað inn á hana eins og
hvert annað segulband. Segulbands-
tónræmu má setja á hvaða filmu, sem
er, og enn fremur má setja hana við
hlið hinnar vanalegu ljós-tónræmu.
Getur þá sama filman verið með sínu
upprunalega tali (t. d. ensku) jafn-
framt hinu, sem talað er inn á segul-
bands-tónræmuna (t. d. íslenzku).
Kostnaður við að setja segulbands-
tónræmu á fihnu og tala inn á hana
skýringartexta er talinn vera um %
hluti af því, sem Ijós-tónræma kostar.
HljóSritunar- og hljómflutnings-
tæki sýningarvéla.
Allar vel þekktar gerðir sýningar-
véla fást nú með segulbands-hljóðrit-
unar- og hljómflutningstækjum eða
svonefndum magnesound-útbúnaði.
Sams konar útbúnað má fá á flestar
gerðir véla, þótt þær hafi upprunalega
aðeins verið útbúnar fyrir Ijós-tón-
ræmu. Iðnaðarmálastofnunin getur
á næstunni útvegað slíkan útbúnað
frá Framleiðniráði, ef óskað er (t. d.
á Bell & Howell-sýningarvélar).
Kvikmyndasafn.
Iðnaðarmálastofnun íslands hefur
í hyggju að koma upp vísi að kvik-
myndasafni, þar sem til verði tækni-
legar fræðslu- og kennslukvikmyndir
með íslenzku tali. Mun Framleiðniráð
Evrópu (E.P.A.) láta oss í té tækni-
lega og fjárhagslega aðstoð í þessu
efni. Vonumst vér til að geta með
þessu móti látið í té verðmæta fræðslu
í hinum ýmsu greinum atvinnulífsins.
B. Ó.
Á þessu ári hefur Iðnaðarmálastofnun ís-
lands liaft milligöngu um utanferðir Islend-
inga, sem boðnir hafa verið til Bandaríkj-
anna af Tækniaðstoð Bandaríkjastjómar
(Foreign Operations Administration) og
Framleiðniráði Evrópu (European Produc-
tivity Agency). Starfsemi þessi er liður í
heildaráætlun stofnunarinnar um hagnvta
og tæknilega fræðslu.
Fyrsti hópurinn fór héðan 28. júlí s.l. í
boði F.O.A. til að kynna sér öryggismál.
Forntaðiir hópsins var Þórður Runólfsson
öryggismálastjóri, en með honum fóru þeir
Benedikt Jónsson og Bjarni Jónsson, báðir
fulltrúar Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur. Eru þeir félagar nýkomnir heim
úr ferð þessari.
Gunnar Friðriksson, forstjóri Sápugerðar-
innar Friggjar, fór héðan áleiðis til Parísar
hinn 2. september í boði E.P.A. Eftir nokk-
urra daga dvöl í París hélt Gunnar til
Bandaríkjanna ásamt hópi fulltrúa frá hin-
um ýmsu aðildarríkjum E.P.A. í Evrópu til
að kynna sér dreifingu á neyzluvörum efna-
iðnaðar og þau vandamál, sem við er að
etja í þeim efnum.
Hinn 13. september fór héðan sex manna
hópur verkalýðsleiðtoga í boði F.O.A., og
munu þeir dveljast í Bandaríkjunum um
sex vikna skeið. Mönnum þessum verður
gefinn kostur á að kynna sér verkalýðsmál,
vinnuskilyrði og tilhögun, fyrirkomulag
trygginga o. fl. Sendinefndin er skipuð þeim
Eggert Þorsteinssyni, alþingismanni og for-
manni Múrarafélags Reykjavíkur, Friðleifi
I. Friðrikssyni, formanni Vörubílstjórafé-
lagsins Þróttar í Reykjavík, Jóni F. Iljartar,
varaformanni Verkalýðsfélagsins Skjaldar á
Flateyri, Ragnari Guðleifssyni, formanni
Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur,
Sigurjóni Jónssyni járnsmið og Þorsteini
Péturssyni fulltrúa, en hann er formaður
sendinefndar. Með nefndinni fóru sem leið-
sögumenn og túlkar Bragi Ólafsson, for-
stjóri Iðnaðarmálastofnunar Islands, og
Guðni Guðmundsson menntaskólakennari.
Sama dag fór einnig þriggja manna hóp-
ur til að kynna sér stjórnun og skipulagn-
ingu lítilla fyrirtækja í Bandaríkjunum.
Menn þessir voru Ásgeir Bjarnason fulltrúi,
tilnefndur af Vinnuveitendasambandi Is-
lands, Kristleifur Jónsson gjaldkeri, til-
nefndur af Sambandi ísl. samvinnufélaga,
en hann er formaður hópsins, og Pétur Sæ-
mundsen viðskiptafræðingur, tilnefndur af
Félagi ísl. iðnrekenda.
Þá hefur og F.O.A. boðið til kynnisfarar
fulltrúum Alþingis og vinnuveitenda til
Bandaríkjanna. Tilgangur farar þessarar er
að gefa þátttakendum tækifæri til þess að
kynnast af eigin raun þeim hag, sem at-
vinnulíf Bandaríkjanna hefur liaft af frain-
kvæmd franileiðnihugsjónarinnar og helztu
iðngreinar þeirra hera glöggt vitni um, svo
að þátttakendur megi sjálfir álykta, hver
not atvinnulíf vort geti haft af framkvæmd
þessarar hugsjónar til þess að skapa meiri
velmegun og bætt lífskjör hér á landi. I
sendinefndinni eru Ingólftir Jónsson við-
skiptamálaráðherra, formaður nefndarinn-
ar, Emil Jónsson alþingismaður, Halldór
Ásgrímsson alþingismaður, Pétur Ottesen
alþingismaður, Sveinn Valfells forstjóri,
fulltrúi Félags ísl. iðnrekenda, Erlendur
Einarsson forstjóri, fulltrúi Sambands ísl.
samvinnufélaga, Eggert Kristjánsson stór-
kaupmaður, fulltrúi Verzlunarráðs íslands,
Kjartan Thors framkvæmdastjóri, fulltrúi
Vinnuveitendasainbands íslands, og Björg-
vin Frederiksen framkvæmdastjóri, fulltrúi
Landssambands iðnaðarmanna. Sendinefnd
þessi fór héðan áleiðis til Bandaríkjanna 16.
september nema þeir Ingólfur Jónsson ráð-
herra og Pétur Ottesen, sem urðu að fresta
för sinni til 30. sept. vegna anna. Strax og
þeir koma til Bandaríkjanna, nuinu þeir
sameinast hópnurn, sem þá mun eiga eftir
að dveljast um tvær vikur vestra.
Ilinn 23. september fór til sex vikna dval-
ar í Bandaríkjunum sex manna hópur í boði
F.O.A. Sendinefnd þessari mun gefinn kost-
ur á að kynna sér sölu og dreifingu matvæla
þar í landi. Þátttakendur eru Þorvaldur
Guðmundsson kaupmaður, formaður nefnd-
arinnar, Gunnar Theodórsson arkitekt og
Magnús Jóhannsson kaupmaður, allir til-
nefndir af Verzlunarráði íslands og Sam-
handi smásöluverzlana. Þá voru tilnefndir
af Sambandi ísl. samvinnufélaga þeir Leifur
Þórhallsson deildarstjóri, Gunnar Þorsteins-
son byggingafræðingur og Guðjón Guðjóns-
son kjötbúðarstjóri.
I nóvember næstkomandi mun fara liéðan
fjögurra manna hópur til sex vikna dvalar í
Bandaríkjunum í þeim tilgangi að kynna
sér bygginga- og mannvirkjagerð þar í
landi. Menn þessir eru Þórir Baldvinsson
húsameistari, fulltrúi Teiknistofu Landbún-
aðarins, formaður sendinefndar, Gísli Hall-
dórsson arkitekt, fulltrúi Reykjavíkiirbæjar,
Jósef Reynis arkitekt, fulltrúi skipulags-
stjóra, og Karl Sæmundsson húsasmíða-
meistari, fulltrúi Landssambands iðnaðar-
manna. R. Á.
82
IÐNAÐARMAL