Iðnaðarmál - 01.01.1956, Blaðsíða 6

Iðnaðarmál - 01.01.1956, Blaðsíða 6
í byrjun febrúar þ. á. kom út skýrsla um starfsemi Iðnaðarmála- stofnunar Islands á árinu 1955. Fara hér á eftir nokkur helztu atriði henn- ar: A miðju sumri 1955 samdi iðnað- armálaráðherra, Ingólfur Jónsson, starfsreglur fyrir stofnunina, en í þeim var m. a. kveðið á um, að stofn- unin skyldi stuðla að aukinni eflingu iðnaðar og vörudreifingar í landinu. Fimm manna nefnd skyldi hafa á hendi stjórn stofnunarinnar. I henni eiga nú sæti: Páll S. Pálsson formað- ur, Björgvin Frederiksen, Kristjón Kristjónsson, Magnús Brvnjólfsson og Óskar Hallgrímsson. í desember s.l. lagði iðnaðarmálaráðherra fram frumvarp til laga um Iðnaðarmála- stofnun íslands. Liggur það fyrir Al- þingi, þegar þetta er ritað. í lok ársins 1955 störfuðu 7 manns við stofnunina. Til fulls var gengið frá húsnæði því, er stofnunin hefur yfir að ráða í nýja iðnskólahúsinu í Reykjavík, og hefur hún því nú til afnota sex rúm- góðar stofur. Unnið var stöðugt að því að koma upp tæknibókasafni, og voru m. a. keyptar bókahillur úr stáli og þær settar upp. Við safnið bættist fjöldi bóka, og nam andvirði þeirra um 50 þúsund krónum. Stofnunin veitti mörgum aðilum margvíslega tæknilega þjónustu og aðstoð og vann að nokkrum meiri háttar verkefnum fyrir hið opinbera. Fyrir milliþinganefnd, sem fjallar um viðfangsefnið: „Heildaráætlun utn jafnvægi í byggð landsins“, var tekin saman skýrsla um nokkur tiltek- in atriði í sambandi við árstíðabund- ið atvinnuleysi og hugsanlegar úrbæt- ur. Var í skýrslunni fjallað um skil- yrði til löndunar afla úr togurum á Vestfjörðum, Norðurlandi og Aust- fjörðum, niðursuðuverksmiðjur, prjónlesframleiðslu, veiðarfæragerð, stóriðnað utan Reykj avíkur og skipa- smíða- og viðgerðarstöðvar. Lokið var við skýrslu um orsakir þurrafúa í fiskiskipum og varnir gegn honum. Kemur skýrslan væntanlega út á næstunni. Haldið var áfram athugunum á tæknilegum og rekstrarlegum grund- Sérfræðingar fjöldi í verzlun .................. 11 í iðnaði og öðru .... 3 Samtals 14 velli hugsanlegrar saltvinnslu með hagnýtingu jarðhitans í Krýsuvík. Hér að framan er aðeins drepið á nokkur meiri háttar verkefni, sem stofnunin tók að sér. Auk þeirra voru skráðar 115 beiðnir um aðstoð. Sem dæmi um slíkar beiðnir og afgreiðslu þeirra má nefna eftirfarandi: Trésmiðju úti á lar.di voru veittar allýtarlegar upplýsingar um timbur- þurrkun innanhúss og gerð teikning af þurrkunarklefa, þar sem notaður var hverahiti til upphitunar. Gerðir voru uppdrættir að húsa- skipan og fyrirkomulagi véla og tækja í nokkrum verksmiðjum. Fyrirtæki var aðstoðað við að koma upp framleiðsluspjaldskrár- kerfum. Margir innlendir aðilar, sem hugð- ust setja á stofn iðnfvrirtæki og þörfnuðust upplýsinga um erlenda vélaframleiðendur o. þ. h., leituðu til stofnunarinnar, og var þeim veitt um- beðin aðstoð. Iðnaðarmálastofnunin hafði milli- göngu um, að íslendingar hagnýttu sér að nokkru þá sérfræðilegu aðstoð, sem Framleiðniráð Evrópu lætur að- ildarríkjum Efnahagssamvinnustofn- unarinnar í té, og komu til landsins samtals 13 sérfræðingar ráðsins í verzlun og iðnaði, auk tæknilegs ráðunauts í notkun sýnitækja við kennslu. Hér fer á eftir yfirlitstafla yfir fjölda sérfræðinganna, dvalar- daga, fjölda fluttra fyrirlestra og á- heyrenda. Dvalardagar Fjöldi fluttra Áheyrendur samtals fyrirlestra um 187 46 770 24 2 65 211 48 835 Þá hafði stofnunin milligöngu um utanferðir Islendinga til Evrópu og Bandaríkjanna að tilhlutan Tækniað- stoðar Bandaríkjastjórnar og Fram- leiðniráðs Evrópu. Voru utanferðir þessar liður í starfsemi stofnunarinn- ar, sem miðar að því að veita mönn- um hagnýta og tæknilega fræðslu. Þátttakendur í ferðunum kynntu sér m. a. öryggismál, bygginga- og mannvirkj agerð, stjórn og skipulagn- ingu lítilla fyrirtækja, verkalýðsmál o. fl. Samtals fóru utan 34 menn, og var samanlagður dvalartími þeirra er- lendis um 1272 dagar. f sambandi við komu sérfræðing- anna í smásölu, heildsölu og vöru- geymslu voru þýddir og fjölritaðir 24 fyrirlestrar og fundargerðir, sam- tals 166 blaðsíður. Stofnunin á tvær kvikmyndasýn- ingarvélar, sem lánaðar eru félags- samtökum ásamt kvikmyndum eftir beiðni. Á árinu voru sýndar samtals 67 kvikmyndir, flestar um iðnað, fyr- ir 23 aðila, og voru áhorfendur 1435. G. H. G. 2 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.