Iðnaðarmál - 01.01.1956, Side 11

Iðnaðarmál - 01.01.1956, Side 11
filmulengjuna, sem síðan vefst upp á annað kefli eða spólu í vélinni. Þegar filman hefur verið framköll- uð á þann hátt að verða sýningarhæf, cr komið að sýningarvélinni. Hreyfi- búnaður hennar er úr garði gerður á sama hátt og þegar er lýst: Gaffall kippir nýrri mynd fyrir ljósopið, meðan það er lokað, og heldur henni kyrri, meðan lokan hleypir ljósi frá sterkum lampa gegnum filmuna og til- heyrandi safngler á sýningartjaldið, en þar birtist oss skuggamynd af því, sem gerðist framan við kvikmynda- tökuvélina áður. Sé hraði filmunnar gegnum töku og sýningarvél hinn sami, verða allar hreyfingar eðlilegar. Ef við hins vegar látum tökuvélina snúast hratt — taka t. d. 48 myndir á sekúndu í stað 24 — verða allar hreyf- ingar á tjaldinu helmingi hægari en vera ætti. Slík brögð með hraða myndatöku gera kleift að rannsaka nákvæmlega ýmis fyrirbrigði í hreyf- ingu, sem ekki festir auga á með öðru móti. Þetta er einn af hinum mörgu ómetanlegu kostum kvikmynda til skýringa á flóknum fyrirbærum. Frá aldamótum fram að 1930 var timabil hinna þöglu kvikmynda. Merkileg þróun átti sér stað í upp- byggingu þeirra til listrænnar túlkun- ar á myndrænan hátt. Snennna á öld- inni var þó farið að nota tónlist sem undirleik með myndunum. Krafan um að fá tal og tóna með myndinni varð æ háværari, og lausnin kom árið 1929, þegar leikararnir á tjaldinu létu til sín Ljósrœnn tónflutningur í sýningarvél. A I>ungt hjól til hraðajöfnunar. B Rúllur, sem jafna slaka og halda jilm- unni þétt að hjólinu. C Ljósgjafi og safngler. D Hornspegill. heyra með tali og söng. Vandinn var leystur á þann eina sjálfsagða hátt að breyta hljóðöldunum í ljósáhrif, sem festa mátti á filmuna sem „mynd“ af hljóðinu. I sýningu er sérstökum ljós- geisla beint gegnum þessa „tónmynd“ og látinn falla á ljósnæmt rafskaut (photocellu), er skilar tónmótuðum rafstraum til magnara og síðan til há- talara við sýningartjaldið. Þögul kvikmynd hafði gataröð með báðum brúnum filmunnar. Nú var þessu breytt þannig, að í stað gataraðarinn- ar öðrum megin kom nú tónskriftin í 2—3 mm breiða rönd eftir endilangri filmunni. Tónupptaka eða hljóðritun á filmu með þessari aðferð er talsvert margbrotin tæknilega og kostnaðar- söm og getur því aðeins borið sig fjár- E Ljósnœmt rafskaut (Photocell). F Filman. G Magnari. H Hátalari. hagslega, að um stórt upplag — a. m. k. lugi eintaka — sé að ræða. Fræðslu- og heimildakvikmyndir komu til sögunnar fyrir 1920. T. d. var fyrsta mynd meistarans Roberts Flahertys „Nanok of the North“ gerð það ár. En framleiðsla slíkra mynda þótti ekki gróðavænleg og átti því erf- itt uppdráttar. Árið 1929 gerði John Grierson kvikmynd af sildveiðum í Norðursjó „The Drifters“. Sú mynd dró að sér mikla athygli og vakti áhuga ráðamanna fyrir hagnýtingn kvikmynda til fræðslu og kynningar i þágu atvinnuveganna. Fræðslumála- stofnanir tóku þá einnig að stuðla að gerð fræðslukvikmynda og dreifingu þeirra. Heimsstyrjöldin síðari skar þó Framh. ó 13. blB. Hér er venjuleg sýn- ingarvél með auka- tœkjum þeirn, er með þarf til hljóðritunar og hljóðflutnings af segulrönd. Til vinstri er hljóðritunarmagn- ari, en örin bendir á umbúnað tónhaussins. 7

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.