Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.05.2010, Page 6

Bæjarins besta - 06.05.2010, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564. Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is. Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is, Kristján Einarsson, símar 456 4560 og 848 3403, kristjan@bb.is. Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson. Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. ISSN 1670 - 021X Ritstjórnargrein Almanna hagsmunir Hvernig sem teningnum er velt, verður ekki með nokkru móti séð að Vestfirðingar hafi notið forréttinda af hálfu hins háa Alþingis, svo sem oft hefði mátt ætla þegar býsnast hefur verið yfir þingmanna- fjölda þeirra og jafnvel verið talað um mannréttindabrot í því sambandi. Staðreyndin er allt önnur. Seinagangur í vegaframkvæmd- um og ástandið í raforkumálum á Vestfjörðum vitna þar um gleggst um. Afstaða þingmanna til kjördæmabreytinga hefur lengst af snúist um tvennt: tryggja eigin þingsæti og að atkvæðaskipting nýttist flokkum þeirra sem best. Í umræðunni um breytingar sem leiddu til núgildandi kosningalaga kallaði BB eftir afstöðu Vestfirðinga. Átti að jafna vægi atkvæða með tilfærslu þingmanna frá strjálbýli til þéttbýlis? Eða, voru menn reiðubúnir að stíga skrefið til fulls og gera landið að einu kjördæmi? Spurning sem nokkuð oft hefur skotið upp kollinum. Hver er afstaða Vestfirðinga nú? Fyrir nokkru var mælt fyrir frumvarpi til stjórnskipunarlaga um að landið verði eitt kjördæmi. Að því stendur þriðjungur þingheims, úr fjórum flokkum, þannig að ætla verður að verulegur stuðningur sé við málið. Í grein fyrsta flutningsmanns frumvarpsins, Björgvins G. Sigurðssonar, í Fréttablaðinu, sagði m.a.: ,,Engin haldbær rök eru fyrir því að vægi atkvæða sé misjafnt eftir búsetu fólks. Aðrar leiðir en kosningakerfið eru miklu eðlilegri til þess að bæta stöðu einstakra byggða til búsetu í þeim.“ Og ennfremur: ,,Með þessu er það innsiglað að allir alþingismenn vinna að hagsmunum allra Ís- lendinga en eru ekki seldir undir þrönga sér- og kjördæmahagsmuni.“ Ástæðan leturbreytingar á seinni tilvitnuninni í grein Björgvins er spurningin: Á hvern hátt verða hagsmunir allra Íslendinga tryggðir með lagasetningu einni saman? Næsta víst mun mörgum verða hugsað til ákvæða Stjórnarskrárinnar um þjóðareign á auðlindum hafsins og þess veruleika sem þjóðin býr við í þeim efnum! Lög hafa þá fyrst gildi að þau séu virt, ekki síst af hálfu stjórnvalda. Á tyllidögum er því gjarnan haldið á lofti að hér búi ein þjóð og þegar bjóði þjóðarsómi þá eigi Ísland eina sál. Falleg orð á lögboðnum fánadögum. Hvað sem öllum lagasetningum líður ríður nú mest á að menn taki höndum saman og vinni ,,að hagsmunum allra Íslendinga.“ s.h. Spurningin Ætlar þú í ferðalag í sumar? Alls svöruðu 399. Já, innanlands, sögðu 267, eða 67% Já, erlendis, sögðu 69, eða 17% Nei sögðu 63 eða 16% Helgarveðrið Horfur á föstudag, laugardag og sunnudag: Vestlæg átt. Skýjað með köflum og þurrt að kalla Vestan- og Norðanlands. Hlýtt í veðri. Félagar í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn laugardaginn 8. maí kl.11:00 í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 4. hæð. Dagskrá: 1. Setning fundarins. 2. Kosning starfsmanna fundarins. 3. Skýrsla stjórnar. 4. Kynntur ársreikningar starfsárið 2009. 5. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs. 6. Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð. 7. Lögð fram tillaga um laun stjórnar. 8. Kosning fulltrúa á ársfund Lifeyrissjóðs Vestfirðinga. 9. Önnur mál. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og nýta málfrelsis, tillögu- og atkvæðisrétt. Að fundi loknum verður boðið upp á veitingar. Stjórnin Aðalfundur Litla leikklúbbsins verður í Edinborgarhúsinu miðvikudaginn 12. maí kl. 20:30. Dagskrá: - Skýrsla stjórnar - Lagðir fram endurskoðaðir reikningar - Kosning stjórnar - Önnur mál Nýir félagar velkomnir á fundinn. Stjórnin Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.