Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.05.2010, Page 13

Bæjarins besta - 06.05.2010, Page 13
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 13 annað leikhús leika sér úti frekar en að hanga inni yfir tölvuleikjum eða sjón- varpi og í þetta sinn höfðu þeir félagarnir klifrað um borð í bát sem stóð á þurru í nausti niður í fjöru. Það var stórstraumsfjara, strákarnir uggðu ekki að sér og skyndilega er báturinn orðinn umflotinn þegar stórstraumsflóð- ið kemur nokkuð hratt inn. Þeir verða eitthvað smeykir og þora ekki að vaða í land. Þá ber að einhver velmeinandi hjón sem verður svo um að sjá drengina í þessari ægilegu sjálfheldu að þau hringja í neyðarlínuna. Lögregl- an kemur á fullu gasi og skipar drengjunum að vaða í land, sem þeir og gerðu sér að meinalausu. Urðu varla pungblautir en var auðvitað skítkalt og báru sig aumlega. Löggan keyrði þá svo heim, eins og henni ber að gera og þar með héldum við að málinu væri lokið. En, nei nei, ekki al- deilis, þá tekur kerfið við sér. Lögreglunni ber væntanlega að semja skýrslu um Málið, með stórum staf, og af því að þetta snýst um afskipti hennar af börn- um ber henni væntanlega að láta barnaverndarnefnd vita og barna- verndarnefnd þarf að fjalla um þetta stórmál á fundi. Þetta svaka- lega alvarlega mál, tólf ára strákar að leika sér niðri í fjöru. Í fram- haldinu fáum við síðan sent bréf þar sem okkur er formlega til- kynnt að barnaverndarnefnd hafi nú fjallað um þetta mál og komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar – að sinni – en viljum við fá aðstoð vegna þessa máls þá getum við hringt í tiltekinn félagsráðgjafa. Ég varð alveg orðlaus. Til hvers í ósköpunum var fólkið að senda okkur þetta bréf? Krakkar að leika sér í fjörunni, búið, næsta mál. En svona hafa nú tímarnir breytst síðan maður lék sér allt að því allan sólarhringinn í dokk- unni heima.“ Dæmdur í hæstarétti Þetta er samt ekki í fyrsta sinn sem þú kemst í tæri við yfirvöld, eða hvað? „Tja, kannski ekki alveg nei, ég er t.d. dæmdur útvarpsglæpa- maður. Með hæstaréttardóm á bakinu hvorki meira né minna. Þannig er mál með vexti að í allsherjarverkfalli BSRB árið 1984 lágu útsendingar Ríkisút- varpsins niðri og Árni Búbba, Úlfar í Hamraborg og fleiri góðir menn fengu þá stórkostlegu flugu í höfuðið að setja upp útvarpsstöð á Ísafirði. Meintar ólöglegar út- varpsstöðvar spruttu upp á þess- Ljósm: Spessi.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.