Bæjarins besta - 06.05.2010, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010
ATVINNA – BÓKARI Á
SKRIFSTOFU ÍSAFJARÐARBÆJAR
Auglýst er laust til umsóknar starf bókara á skrifstofu
Ísafjarðarbæjar að Hafnarstræti 1, Ísafirði. Æskilegt er
að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Um
framtíðarstarf getur verið að ræða.
Leitað er eftir einstaklingi með nokkra þekkingu og
reynslu af bókhaldsvinnu og æskilegt er að viðkomandi
hafi stúdentspróf eða annað það nám er nýtast mun í
starfinu. Launakjör ráðast af menntun og starfsreynslu
umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2010.
Nánari upplýsingar um starfið má sjá á heimasíðu
Ísafjarðarbæjar www.isafjordur.is eða hjá Védísi
Geirsdóttur aðalbókara í síma 450-8000.
Augnlæknir á Ísafirði
Þóra Gunnarsdóttir augnlæknir er með móttöku
á Ísafirði dagana 17 - 21. maí.
Tímapantanir í síma 450 4500, á milli kl. 8,oo -
16,oo alla virka daga.
Mugipapa í stjórn
Cruise Europe
Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri
Ísafjarðarbæjar, kannski betur þekktur sem
Muggi eða Mugipapa, var kjörinn í stjórn
Cruise Europe samtakanna á aðalfundi þeirra
í Amsterdam í vikunni. Guðmundur er fulltrúi
norðursvæðis í stjórninni, þ.e. Íslands, Noregs
og Færeyja, en hana skipa níu manns. Cruise
Europe eru samtök 105 hafna í Vestur-,
Norður- og Mið-Evrópu sem vinna saman að
markaðssetningu fyrir skemmtiferðaskip.
Af þeim 105 höfnum sem mynda samtökin
eru fjórar á Íslandi. „Markaðssetning sem
þessi hefur skilað höfnum Ísafjarðarbæjar
síauknum tekjum á undanförnum áratug, en
skipakomur hafa u.þ.b. fjórfaldast á þessum
tíma,“ segir í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ.
kristjan@bb.is
Guðmundur M. Kristjánsson hafnarstjóri.