Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.05.2010, Síða 9

Bæjarins besta - 06.05.2010, Síða 9
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 9 Framhaldsskólakennari og húsvörður óskast Eftirtalin kennslustörf eru laus til umsóknar við Menntaskólann á Ísafirði Frá 1. ágúst 2010: Stærðfræði í efstu áföngum og raungreinar (eðlis-, efna-, jarðfræði) 100-125% staða. Danska 50% staða. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi háskólapróf og kennsluréttindi (sbr. lög nr. 86/1998) og geti kennt þær greinar sem hér eru nefndar. Leitað er að kennara sem hefur áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og á gott með að vinna með nemendum og kennurum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Staða húsvarðar er laus til umsóknar við Menntaskólann á Ísafirði frá 15. ágúst 2010. Æskilegt er að umsækjandi hafi meistarapróf í byggingagreinum sérstaklega húsasmíði. Laun eru samkvæmt gildandi stofnanasamningi skólans og SFR. Umsókn þarf ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Með umsókn skal fylgja ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf og meðmælendur. Umsóknir skal senda til skólameistara á netfangið jon@misa.is eða á heimilisfang skólans: Menntaskólinn á Ísafirði, Torfnesi, 400 Ísafirði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvarðanir um ráðningar liggja fyrir. Umsóknarfrestur er til 24. maí. n.k. Umsókn getur gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Nánari upplýsingar um störfin veitir Jón Reynir Sigurvinsson skólameistari jon@misa.is, eða í síma 4504400. Menntaskólinn á Ísafirði er framsækinn skóli sem býður upp á fjölbreytt nám, bæði bók- og verknám. Í MÍ er öflugt og fjölbreytt þróunarstarf. Skólaandi MÍ er góður og andrúmsloftið í starfsmannahópnum er gott. Reisulegar byggingar Menntaskólans á Ísafirði eru rúmgóð og björt húsakynni. Þar er ein besta vinnuaðstaða til náms og kennslu sem þekkist á landinu. Menntskólinn á Ísafirði er meðal fremstu framhaldsskóla landsins í notkun upplýsingatækni. Skólinn getur boðið kennurum íbúðir á góðum kjörum. Skólameistari

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.