Bæjarins besta - 06.05.2010, Síða 9
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 9
Framhaldsskólakennari og húsvörður óskast
Eftirtalin kennslustörf eru laus til umsóknar við Menntaskólann á Ísafirði Frá 1. ágúst 2010:
Stærðfræði í efstu áföngum og raungreinar (eðlis-, efna-, jarðfræði) 100-125% staða.
Danska 50% staða.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi háskólapróf og kennsluréttindi (sbr. lög nr. 86/1998) og geti kennt þær greinar sem
hér eru nefndar. Leitað er að kennara sem hefur áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og á gott með að
vinna með nemendum og kennurum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og
stofnanasamningi skólans.
Staða húsvarðar er laus til umsóknar við Menntaskólann á Ísafirði frá 15. ágúst 2010. Æskilegt er að umsækjandi hafi
meistarapróf í byggingagreinum sérstaklega húsasmíði. Laun eru samkvæmt gildandi stofnanasamningi skólans og
SFR.
Umsókn þarf ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Með umsókn skal fylgja ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri
störf og meðmælendur. Umsóknir skal senda til skólameistara á netfangið jon@misa.is eða á heimilisfang skólans:
Menntaskólinn á Ísafirði, Torfnesi, 400 Ísafirði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvarðanir um ráðningar liggja fyrir.
Umsóknarfrestur er til 24. maí. n.k. Umsókn getur gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Nánari upplýsingar
um störfin veitir Jón Reynir Sigurvinsson skólameistari jon@misa.is, eða í síma 4504400.
Menntaskólinn á Ísafirði er framsækinn skóli sem býður upp á fjölbreytt nám, bæði bók- og verknám. Í MÍ er öflugt og fjölbreytt þróunarstarf. Skólaandi MÍ er góður og
andrúmsloftið í starfsmannahópnum er gott. Reisulegar byggingar Menntaskólans á Ísafirði eru rúmgóð og björt húsakynni. Þar er ein besta vinnuaðstaða til náms og kennslu
sem þekkist á landinu. Menntskólinn á Ísafirði er meðal fremstu framhaldsskóla landsins í notkun upplýsingatækni. Skólinn getur boðið kennurum íbúðir á góðum kjörum.
Skólameistari