Bæjarins besta - 06.05.2010, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010
Hrun lýðræðis
Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum
hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt.
Stakkur skrifar
smáar
Voðaatburðir þeir sem orðið
hafa á Íslandi eftir aldamótin og
rekja má beint til einkavæðingar
ríkisbankanna eru svo skelfilegir að samfélagið virðist ekki ætla
að hafa burði til að taka á þeim mönnum sem af fullkomnu siðleysi
og græðgi stofnuðu lífi samborgara sinna í fjárhagslegan voða.
Það ógeðfellda er að þessir menn eru gersneyddir siðferðiskennd
og sjá ekkert að gerðum sínum. Þvert á móti halda þeir áfram að
gera lítið úr þeim samborgurum sínum sem nú berjast við að halda
eignum sínum og reyna um leið að halda reisn sinni í samfélaginu.
Þessir afar óviðkunnanlegu menn sem eru ógeðfelldir á þann hátt
að BB yrði sennilega stefnt fyrir meiðyrði ef venjulegt vestfirskt
tungutak yrði notað um hátterni þeirra og algera vöntun á sómatil-
finningu eru svo órafjarri veruleika venjulegra Íslendinga með
skuldir sínar og afborganir að þeim er ekki einu sinni vorkunn.
En þeir líkt og stjórnmálamennirnir og æðstu menn stjórnsýsl-
unnar sem standa áttu vaktina bera að eigin sögn enga ábyrgð á því
sem verk þeirra leiddu af sér, hvað þá að þeir geti verið sekir um
afglöp. Lögbrot hvarfla ekki að þeim. Þegar heimsstyrjöldinni
seinni lauk var efnt til réttarhalda í Nurnberg í Þýskalandi til þess
að gera upp voðaverk nasismans. Ekki er verið að líkja þessum
voðaverkum þessara manna, sem litu á bankana sem veskið sitt
eða foreldra sem hægt væri að sækja endalausa vasapeninga til
svo halda mætti veislunni áfram, við nasista. En íslenska þjóðin
þarfnast uppgjörs ekki síst vegna þess að hún mun gjalda
óþokkabragða útrásarfantanna um langan tíma.
Það mun hún gera fjárhagslega og margir munu ekki rísa upp
aftur verði ekkert aðhafst eins raunin hefur verið. En hún mun
einnig gjalda fyrir skert siðferði og meint lögbrot sem ekki virðast
neinir samfélagslegir burðir til að taka á. Nú þegar er reiði þeirra
sem eru að missa allt sitt mikil. En verði þessi óþverralega starf-
semi látin óátalin mun hún vaxa og siðferðisbrestur verða með
þjóðinni. Verst er að sjá hvernig jafnvel þeir sem stýra stjórnmála-
flokkum hafa verið með lúkurnar á kafi í fjárhirslunum. Þeir eru
allt of margir stjórnmálamennirnir sem svifust einskis við að raka
til sín fé. Þeir eiga allir að yfirgefa vettvang stjórnmálanna og
byrja þannig hreinsunina. Gildir þetta bæði um þá sem sitja á Al-
þingi og þá sem sitja í sveitarstjórnum.
Bregðist þeir ekki við með útgöngu þarf að hjálpa þeim til þess.
Ætli þessir stjórnmálamenn að sitja áfram eftir að hafa verið
gripnir með lúkurnar í sultukrukkunni verður lýðræðishrun. Það
verður erfitt að byggja upp traust að nýju. Það sem blasir við okk-
ur er að þetta fólk ryðjist inn á völl stjórnmálanna til að komast að
kjötkötlunum og auðgast persónulega og virða um leið hagsmuni
almennings einskis. Þetta fólk á að fara strax. Lýðræði þessara
lánagráðugu stjórnmálamanna hvar í flokki sem þeir standa er
einskis virði. Þeir senda okkur kjósendum langt nef. Það er
fullkomin vanvirða við lýðræði að þeir sitji áfram. Siðvæða
verður stjórnmálin svo ekki verði viðvarandi hrun lýðræðis á
Íslandi.
Halldór Halldórsson bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar hefur óskað
eftir afstöðu bæjarráðs til þess
hvort ekki mega auglýsa Gamla
kaupfélagshúsið á Þingeyri til
sölu að nýja og/eða ganga til
samninga við þá sem buðu í húsið
þegar það auglýst til sölu í fyrra.
Forsaga málsins er sú að þann
2009 ákvað bæjarráð að fresta
því að taka afstöðu til kauptil-
boða í húsnæðið þar til fyrir lægi
hver framtíðarstaðsetning húss-
ins yrði. Í framhaldi af því var
ákveðið að fá álit íbúasamtak-
anna Átaks sem töldu að húsið
ætti að vera áfram á núverandi
stað. Ákveðið var síðan að fara í
deiliskipulagsvinnu og því frest-
að að taka afstöðu til tilboðanna
og afstöðu íbúasamtakanna.
Samkvæmt bréfi bæjarstjóra
sem tekið var fyrir á bæjarráðs-
fundi fyrir stuttu hefur hann feng-
ið ítrekaðar fyrirspurnir um hús-
ið. „Staða málsins er sú að undir-
búningur að deiluskipulagi stend-
ur yfir. Vinnan er í höndum lands-
lagsarkitekts sem búsettur er á
Þingeyri. Halda þarf opinn fund
á Þingeyri til að fá fram afstöðu
íbúanna og sem flestar hugmynd-
ir. Þ.á.m. hver er besta staðsetn-
ingin fyrir Gamla kaupfélagið,“
segir í bréfi Halldórs.
Bæjarstjóri veltir því líka fyrir
sér hvort nauðsynlegt sé að bíða
eftir þeirri niðurstöðu. Hann spyr
hvort ekki sé hægt að taka afstöðu
til kauptilboðanna eða auglýsa
húsið að nýju á þeim forsendum
að það verðir staðsett í samræmi
við endanlega deiliskipulag.
„Það er mat undirritaðs að hús-
ið eigi ekki að vera þar sem það
er nú vegna nálægðar við salthús-
ið sem nú hefur verið endurbyggt.
Stutt er á milli húsanna þannig
að vegna brunahættu geta skapast
vandamál en ekki síður vegna
þess að Gamla kaupfélagið nýtur
sín ekki nógu vel þar sem það er
staðsett í dag,“ segir í bréfi Hall-
dórs. Bæjarráð fól bæjarstjóra að
kalla eftir upplýsingum um stöðu
deiliskipulagsvinnu á Þingeyri.
– kristjan@bb.is
Telur að Gamla kaupfélagið eigi að fara
„Raforkustaða Vestfjarða
kallar á brýnar aðgerðir“
Ekki er lagalega hægt að leggja
Hvalárlínu til Ísafjarðar í einka-
framkvæmd. Þetta er niðurstaða
bréfs sem starfsmaður atvinnu-
málanefndar Ísafjarðarbæjar
sendi Orkustofnun varðandi
möguleika á lagningu Hvalár-
línu. Bréfið var lagt fram til kynn-
ingar á síðasta fundi atvinnu-
málanefndar. Nefndin lagði
áherslu á að staða raforkumála
sé slík á Vestfjörðum að það kall-
ar á brýnar aðgerðir. Nefndin
hafði falið starfsmanni nefndar-
innar að kanna möguleika á lagn-
ingu slíkrar línu og taldi forsend-
ur fyrir því að hleypa verkefninu
í einkaframkvæmd væru þær
sömu og í tilfelli Hvalfjarðar-
ganganna. „Ljóst er að mögulega
mætti framkvæma þetta með
svipuðum hætti og fyrirtækið
Spölur lét byggja Hvalfjarðar-
göng, þar sem um samfélagslegt
verkefni er að ræða,“ sagði í fund-
arbókun nefndarinnar fyrr á ár-
inu.
Eins og fram hefur komið hafa
farið fram miklar athuganir á
hugsanlegum virkjunarkostum á
Vestfjörðum. Hefur þegar verið
lagt í allmikinn kostnað við þessa
vinnu og dregnar saman talsverð-
ar upplýsingar sem að gagni
koma. Fyrirtækið VesturVerk
ehf. hefur aflað sér virkjunar-
heimilda vegna mögulegrar
Hvalárvirkjunar. Er það eini nýi
virkjunarkostur Vestfjarða, eins
og nú standa sakir, sem gæti bætt
raforkuöryggi Vestfjarða og hægt
væri að hefja framkvæmdir við
strax án ágreinings um vatnsrétt-
indi, land eða annað það er að
slíkri framkvæmd snýr. Hvalár-
virkjun er hins vegar ekki arðbær
framkvæmd nema tengigjald virkj-
unarinnar verði að fullu fellt niður.
Orkubú Vestfjarða á Ísafirði.
Einstaklingsíbúð til leigu,
laus strax - uppl. 895 5466.
30 ára karlmaður vill komast
á sjó. Hef smá reynslu. Uppl
847 0283.
Fjórhjól til sölu. Gott hjól, gott
verð. S: 895 9241.
4 sumardekk til sölu. Stærð:
175-65-14. uppl. 893 7280
Dagbjartur.
77m2 Íbúð til leigu í Sund-
stræti, besta stað í bænum
frá og með 1. ágúst. Leigist á
45 þús. Upplýsingar í 869-
6693 – Vigdís.
Óska eftir lítilli íbúð á Ísafirði.
Helst sem fyrst. Upplýsingar
í síma 869-4713.
Orflosíbúðir á Akureyri. Er
með nokkrar orlofsíbúðir til
leigu á Akureyri. Margir stærð-
ir í boði. Allar íbúðirnar við
miðbæinn. Upplýsingar verð
og myndir má finna á síðunni
okkar www.gistingakureyri.is
eða í síma 896-3256.
Gamlir skólastólar úr járni
með setu og baki úr tré. Fást
gefins hjá Jóni Kr. S: 456 2186,
847 2542.
Aug-
lýsing á
borgar
sig
bb.is