Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.05.2010, Qupperneq 7

Bæjarins besta - 06.05.2010, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 7 Eini byssusmiðurinn á VestfjörðumValur Richter, pípari og mein-dýraeyðir á Ísafirði – og núbyssusmiður – fékk nýlega rétt-indi til þess að bera titilinn byssusmiður. Hann mun vera fyrsti og eini byssusmiðurinn á Vestfjörðum en hann hefur verið að smíða byssur í um tuttugu ár. – Hvað felst í því að vera byssu- smiður? „Það felst margt í því að vera byssusmiður. Það er auðvitað að smíða byssur og síðan að gera við byssur og einfaldlega allt sem viðkemur byssum. Ég hef verið að smíða byssur í um tuttugu ár en er nýlega kominn með réttindin. Ég smíðaði mína fyrstu keppnisbyssu árið 1992 og keppti með henni í mörg ár í nákvæmisskotfimi.“ Valur er mikill veiðimaður en hann notar einnig sínar eigin byssur við þá iðju. „Ég smíða allar mínar byssur frá grunni en ég hef einnig verið mikið í því að gera við byssur. Það er mikið um að viðskipta- vinir komi og vilji láta stilla byssur sínar eða hreinsa þær og þar fram eftir götunum. Það er töluvert mikið mál að smíða eina byssu og það krefst gífur- legrar nákvæmisvinnu. Að smíða eina byssu getur tekið allt frá nokkrum mánuðum upp í eitt til tvö ár.“ Valur segir að það að vera byssusmiður fari mjög vel við að vera pípari og meindýraeyð- ir. En tengjast þessar greinar eitthvað? „Nei, ég get ekki sagt það, nema kannski meindýraeyðir- inn, annars ekki!“ Valur segist hafa mikinn áhuga á byssum og hann hafi haft áhugann alveg frá því að hann man eftir sér. „Ég er búinn að vera mikið í byssum síðan ég man eftir mér og hef mikið verið að keppa í skotfimi og að nota þær við veið- ar,“ segir Valur Richter, fyrsti og eini byssusmiðurinn á Vest- fjörðum. Á meðfylgjandi myndum má sjá tvær af byssunum sem Valur hefur smíðað sjálfur frá grunni.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.