Bæjarins besta - 09.09.2010, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2010 11
Línubáturinn Sirrý ÍS frá Bol-
ungarvík setti í síðustu viku
heimsmet í lönduðum afla smá-
báta en heildarafli bátsins var
tæp 1.729 tonn á fiskveiðiárinu
sem lauk nú um mánaðarmótin.
Fyrra heimsmetið átti annars bol-
vískur bátur, Guðmundur Einars-
son ÍS, sem landaði 1.500 tonn-
um á fiskveiðiárinu 2005/2006.
Afli Guðmundar Einarssonar ÍS
var tæp 1.600 tonn á nýafstöðnu
fiskveiðiári.
Skipstjóri á Sirrý ÍS er Sigur-
geir Steinar Þórarinsson og var
hann að vonum ánægður þegar
hann kom að landi með 7,3 tonn.
Stærstur hluti aflans var ýsa og
þorskur. Sirrý ÍS fór í 297 róðra
á fiskveiðiárinu sem þýðir að bát-
urinn hefur að meðaltali komið
með 5.821 kíló að landi í hverjum
róðri sem er ótrúlegur árangur
hjá 15 tonna smábáti.
Heimsmet hjá Sirrý ÍS
Mikilvægum áfanga var náð í
síðustu viku þegar bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar samþykkti að
bjóða út sorphirðu, urðun og
förgun sorps í sveitarfélaginu. Á
fundinum var tekin fyrir tillaga
nefndar um sorpmál er laut að
útboði á sorphirðu og sorpförgun,
en nefndin hefur lagt á það
áherslu við gerð útboðsgagna að
náð verði fram aukinni flokkun,
hagkvæmni, endurvinnslu og
endurnýtingu. Sorpmál Ísafjarð-
arbæjar hafa verið talsvert í um-
ræðunni á síðustu árum.
Ljóst er að gera þarf talsverðar
endurbætur á sorpbrennslustöð-
inni Funa í Engidal, eigi að reka
hana áfram. Þá verða flokkun,
endurnýting, jarðgerð og þess
háttar förgun hátt metin við mat
á tilboðum. Vonast bæjaryfirvöld
til að með þessari ákvörðun verði
stórt skref stigið í þá átt að eyða
óvissu sem ríkt hefur í sorpmál-
um Ísafjarðarbæjar um árabil og
að flokkun og endurvinnsla verði
stóraukin í framtíðinni í samráði
og samstarfi við íbúa bæjarins.
– asgeir@bb.is
Samþykkt að bjóða út
sorphirðu og förgun
Slysatíðnin var mest á landinu
Vestfjörðum á síðasta ári eða
34%. Þar á eftir kemur Vestur-
land með 28% og Suðurland með
22%. Litlu lægri slysatíðni var á
Norðurlandi og á Suðurnesjum.
Slysatíðni á höfuðborgarsvæðinu
var hins vegar næst lægst á land-
inu eða 14%. Þetta kemur fram í
skýrslu Sjóvá sem byggir á út-
reikningum út frá markaðshlut-
deild félagsins á tryggingamark-
aði. „Helsta ástæða þessa er sú
að umferðin er hraðari á vegum
úti og því meiri líkur á slysi í
kjölfar umferðartjóns sem og eru
aðstæður til aksturs oft erfiðar
og vegir varasamir. Er hugsan-
lega gerð og ástand vega að hafa
áhrif á háa slysatíðni á Vestfjörð-
um?,“ er spurt í skýrslunni. Þar
kemur hins vegar einnig fram að
fjöldi slasaðra í umferðinni var
minnstur á Vestfjörðum eða 2%.
Þá var fjöldi slasaðra í umferðinni
sem fyrr mestur á höfuðborgar-
svæðinu eða 58% á móti 54%
árið á undan.
Í skýrslunni kemur fram að
tjónum í umferðinni fækkaði
milli ára. Fjöldi slasaðra var hins
vegar mjög hár en alls slösuðust
tæplega 2.600 einstaklingar í um-
ferðaróhöppum árið 2009. Það
er þó jákvæð þróun að alvarleg-
um slysum í umferðinni fækkaði.
Alls urðu tæplega 16.000 bóta-
skyld umferðartengd tjón árið
2009. Auk þeirra voru skráðar
tæplega 15.000 bílrúður sem
brotnuðu. Einnig má reikna með
óhöppum þar sem ökumenn
skemmdu bíla sína en leituðu
ekki til tryggingafélagsins ýmist
vegna þess að þeir voru ekki
kaskótryggðir eða að tjónið var
það lítið að ökumenn gerðu það
upp sín á milli.
„Sjóvá telur áríðandi að vekja
athygli á þeim vanda sem tengist
aftanákeyrslum. Jafnframt þarf
að fylgjast vel með fjölgun tjóna
sem rekja má til truflunar við
akstur eða skorts á einbeitingu. Í
nýrri reglugerð um ökuskírteini
og tilkomu Ökuskóla 3 er sérstak-
lega getið þess að ökunemar fái
sérstaka fræðslu hvað þennan
þátt varðar og er það öflugri við-
bót við það ökunám sem fyrir
er.“ segir í skýrslunni.
– thelma@bb.is
Hæsta slysatíðnin á Vestfjörðum
Byggðasafni Vestfjarða hefur
borist góð gjöf, 11 tonna rækju-
bátur sem ber heitir Magnús KE
46. Báturinn hét áður Gunnar
Sigurðsson ÍS og var þá í eigu
Jóns Rafns Oddssonar á Ísafirði,
sem stundaði á honum rækju-
veiðar til ársins 1999. Magnús
KE 46 var smíðaður í Bátalóni í
Hafnarfirði árið 1974. Báturinn
hefur farið víða frá því hann fór
frá Ísafirði, m.a. til Drangsness,
Ólafsvíkur og Keflavíkur, þar
sem hann var síðast. Síðustu eig-
endur bátsins, Eling B. Ingi-
mundarson og Þórarinn Ingi Inga-
son, notuðu bátinn í skemmti-
siglingar um nokkurra ára skeið.
„Þetta hefur verið algjört happa-
skip“ sagði Björn Baldursson
safnvörður, sem sagði einnig að
skipið hafi aldrei lent í vandræð-
um. Báturinn er í mjög góðu
ástandi og hefur verið sjófær
seinustu ár. Að sögn Björns þarf
aðeins að gera smávægilegar lag-
færingar á bátnum svo hann sé
sjófær. Báturinn verður ekki not-
aður til að veiða rækju því hans
framtíðarverkefni verður að sigla
með ferðamenn og halda áfram
sínu starfi sem skemmtibátur.
Varðskipið Týr var fengið til
að flytja bátinn frá Keflavík.
Byggðasafnið
fær bát að gjöf
Björn Baldursson, Jón Rafn Oddsson og Jón Sigur-
pálsson voru viðstaddir er báturinn kom til Ísafjarðar.