Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.12.2010, Page 18

Bæjarins besta - 16.12.2010, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2010 Hafnir Ísafjarðarbæjar hafa óskað eftir tilboðum í dýpkun á Ísafirði og Suðureyri. Um er að ræða dýpkun sem nemur um 35.900 m³ á Ísafirði og 7.400 m³ á Suðureyri. Dýpkun á Ísafirði skal lokið eigi síðar en 30. apríl og dýpkun á Suðureyri skal lokið eigi síðar en 31. maí. Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 21. desem- ber kl. 11. Lengi hefur verið beð- ið eftir því að dýpkunarfram- kvæmdir hefjist á Ísafirði. Verkið var sett á frest haustið 2008 vegna efnahagsástandsins en framkvæmdin er talin nauð- synleg til að stór skemmtiferða- skip geti lagst að bryggju við Ásgeirsbakka. Aðstaðan þar er orðin góð að lokinni nokkurra ára endurbyggingu en stór skip komast ekki að viðlegukantinum vegna þröngrar og grunnrar inn- siglingu um Sundin. Óska eftir til- boðum í dýpkun Kynntar hafa verið nýjar tölur um niðurskurð á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Vest- fjarða en upphaflegu tillögunum var breytt í meðförum heilbrigð- isráðuneytisins. Nú er gert ráð fyrir 56,1 milljóna niðurskurði eða 5,5% sem dreifist á árin 2011, þegar skera á niður fyrir sem nemur 42,1 milljón, og 2012 þeg- ar skorið verður niður fyrir 14,0 milljónir. Upphaflegar tölur voru 194,5 milljónir eða 19,1% fyrir árið 2011. „Ef þessar tillögur ráðuneytis- ins ganga eftir þá má reikna með því að hægt verði að standa vörð um Fjórðungssjúkrahúsið á Ísa- firði. Hins vegar er ljóst að nið- urskurður af þeirri stærðargráðu sem boðaður er mun leiða til fækkunar starfsfólks,“ segir Þröstur Óskarsson, framkvæmda- stjóri Heilbrigðisstofnunar Vest- fjarða. Hann segir að unnin verði rekstraráætlun fyrir stofnunina nú á næstu tveimur vikum þannig að ljóst verði fyrir áramót til hvaða aðgerða þarf að grípa. Niðurskurðartillögurnar fengu hörð viðbrögð, ekki síst á Vest- fjörðum þar sem horft var fram á að búsetuskilyrði yrðu skert veru- lega gengu tillögurnar eftir. Fag- hópur á vegum Guðbjarts Hann- essonar, heilbrigðisráðherra, fundaði með stjórnendum og fag- fólki á heilbrigðisstofnunum til að leggja mat á möguleika heil- brigðisstofnana til þess að mæta hagræðingarkröfum samkvæmt fjáralagafrumvarpinu. Var í kjöl- farið ákveðið að heildar niður- skurður á heilbrigðisstofnunum yrði hvergi meiri en 12% á næsta ári. – thelma@bb.is Þurfa að fækka starfsfólki Þrátt fyrir að verulega hafi verið dregið úr fyrirhuguðum niðurskurði hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er ljóst að fækka þarf starfsfólki. Búið að aka nið- ur 134 kindur Ekið hefur verið á 134 kind- ur í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum frá því í maí á þessu ári. Samkvæmt taln- ingu lögreglunnar var mest um að ekið væri á búfé í júní eða 41 ær og/eða lamb en næst mest í júlí þegar ákeyrslurnar voru 34. Þá voru þær 12 í maí, 21 í ágúst, 16 í septem- ber, 7 í október og 3 í nóv- ember. Þrátt fyrir aðvaranir lögreglu eru ákeyrslur á sauð- fé algengar í umdæminu.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.