Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Síða 25
MisMunandi DV Helgarblað Atkins-kúrinn Hvenær vinsæll? Dr. Robert Atkins stofnaði fyrirtæki sitt í kringum Atkins-megrunarkúrinn árið 1989. Það varð gjaldþrota árið 2005 tveimur árum eftir dauða hans og var stofnað aftur árið 2006. Vinsældum kúrs- ins hefur hrakað verulega eftir neikvæða gagnrýni og rannsóknir. Hvernig virkar hann? Í grófum dráttum snýst kúrinn um að minnka kolvetnainntöku þannig að líkam- inn fái orku úr niðurbroti líkamsfitu frekar en að fá orku frá kolvetnum. Þetta á að gerast þó að mataræð- ið samanstandi aðallega af fitu. Þannig á kolvetna- brennsla að skiptast yfir í fitubrennslu og bygg- ist kúrinn á miklu magni af próteinum, fitu og litlu magni af kolvetnum. Kostir: Þú mátt drekka áfengi og borða hnetur á kúrnum. Gallar: Kúrinn getur haft mjög neikvæð áhrif á heilsu fólks. Við mikla neyslu á rauðu kjöti og öðrum kjötvörum er líklegra að minna verði um neyslu á trefjum og eykur það líkur á ristil- krabbameini. Aukin neysla á mettuðum fitusýrum og kólesteróli eykur líkurnar á hjarta- og æðasjúkdóm- um. Hátt hlutfall af próteini í mataræði getur haft neikvæð áhrif á virkni nýrna og líkurnar á því að kalk tapist úr beinum aukast. Aðrir fylgikvillar Atkins- kúrsins eru hægðatregða, niðurgangur, einbeitingar- leysi, andfýla og skortur á næringarefnum. Megrunarkúrar scArsdAle- kúrinn Hvenær vinsæll? Herman Tarnower læknir gaf út bókina The Complete Scarsdale Medical Diet árið 1979. Bókin sló í gegn árið 1980, sama ár og Tarnower var myrtur af unnustu sinni. Hvernig virkar hann? Kúrinn byggist á inntöku lítils magns kolvetna og kaloría. Nákvæmum mat- seðli þarf að fylgja fyrstu 14 dagana en svo slaknar á kröfunum. Hálft greip- aldin hvern morgun á að veita þau ensími sem eru nauðsynleg til að brenna þeim 700 kaloríum sem maður á að brenna á dag á kúrn- um. Gervisykur er notaður í stað alvörusykurs. Kostir: Þú grennist alveg örugglega. Gallar: Mikið og fljótt þyngdartap á kúrnum má hins vegar rekja til vatnstaps líkamans og gagnrýnisraddir segja að kúr- inn sé of yfirdrifinn til að vera hollur. HerbAlife Hvenær vinsæll? Herbalife er eitt af þekktustu grenningarfæðubótaefnum heims og var það Mark Hughes sem byrjaði að selja vöruna árið 1980. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Los Ang- eles, en um 3.500 fyrirtæki eru um allan heim. Hvernig virkar hann? Þau næringarefni sem líkaminn þarfnast eru sett saman í pillur og duft. Kúrinn gengur út á að innbyrða orku- drykki í stað máltíðar. Einnig selur Herbalife vítamín, steinefni og aloe vera sem taka á samfara orkudrykknum. Kostir: Ef þú hefur ekki tíma fyrir venjulegan mat getur verið handhægt að skella í sig einum drykk og nokkrum pillum. Gallar: Ekki er æskilegt ef fæðubótarefni komi algjör- lega í staðinn fyrir næringarefni sem líkaminn þarfn- ast, til dæmis í ávöxtum og grænmeti sem eru góð vörn við krabbameini. Þekkt er þegar inntaka fæðubótarefna hefur verið langvarandi og hún stöðvast skyndilega getur ein- staklingurinn þyngst á ný. Komin í Kilju „Fantaskemmtileg“ - Sigurður G. Tómasson, Útvarp Saga „Sjaldgæf nautn að lesa þessa bók“ - Þráinn Bertelsson, Fréttablaðið „Við eigum öll að lesa þessa bók.“ - Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, varaþingmaður Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466 Meðal námsefnis: • Mannleg samskipti. • Helstu áfangastaðir erlendis í máli og myndum. • Mismunandi trúarbrögð. • Saga landsins, menning og listir. • Frumbyggjar og saga staðarins. • Þjóðlegir siðir og hefðir. • Leiðsögutækni og ræðumennska. Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan. Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra í leiðsögn á erlendri grund. Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson, Jóhanna Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Sigurður A. Magnússon, Magnús Björnsson, Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Bjarni Karlsson. Fararstjórn erlendis
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.