Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Síða 88
n Lesendur fimmtudagsútgáfu
Fréttablaðsins tóku eftir því að í
aftasta hluta blaðsins var grein
sem fjallar um úrvalslið sköll-
óttra knattspyrnumanna. Á mynd
með greininni má sjá sköllóttu
leikmennina stilla sér upp og þar
á meðal Davíð Þór Viðarsson,
leikmann FH. Á forsíðu blaðsins
var hins vegar tilvísun í frétt-
ina og á mynd sem henni fylgdi
skartaði Davíð Þór hári, enda
hvergi nærri orðinn sköllóttur.
Bíræfinn myndvinnslumaður í
Skaftahlíð eða annars staðar
hef- ur því falsað
skalla á
Davíð Þór
svo hann
tæki sig
betur
út með
hópn-
um.
Grasbítur með
vígtennur!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Óvenjuleg keppni verður haldin á
bryggjuhátíðinni á Drangsnesi þetta
árið en þar verður keppt um falleg-
ustu fuglahræðuna. Jenný Jensdóttir,
framkvæmdastjóri hátíðarinnar, veit
ekki betur en þetta sé í fyrsta sinn
sem slík keppni er haldin á Íslandi.
Það verða þó ekki fuglarnir sem velja
sigurvegarann með fjarveru heldur
vegfarendur. Hugmyndin er kom-
in frá Skotlandi en á árlegri hátíð
þar tekur fjöldi fólks þátt í að búa til
frumlegar fuglahræður. Jenný vonast
til að keppnin verði sömuleiðis ár-
leg á Drangsnesi og þegar hafa fimm
skráð sig til þátttöku. Tíminn er næg-
ur þar sem bryggjuhátíðin er ekki fyrr
en í júlí og tilkynna þarf þátttöku fyrir
17. júní Ekkert kostar að taka þátt en
verðlaunin fyrir fyrsta sætið eru hót-
elgisting, matur og hvalaskoðun í ná-
grenninu.
Jenný segir að engin krafa sé gerð
um að fuglahræðurnar séu hefðbundn-
ar. Tilgangurinn er að þjappa saman
fjölskyldum með hugmyndavinnu við
fuglahræðugerðina og skreyta þorpið.
„Á Drangsnesi búa um sextíu manns
en þegar mest lætur eru um tvö þús-
und mættir á bryggjuhátíðina. erla@dv.is
n Það er fátt sem bloggarinn og rit-
stjórinn Jónas Kristjánsson lætur
sig ekki varða. Á fimmtudag mærði
Jónas á vefsíðu sinni hina ókeyp-
is klámsíðu YouPorn.com, sem
byggist á sömu hugmyndafræði
og Youtube, nema að innihaldið
er eins og gefur að skijla öðruvísi.
Jónas hefur skoðanir á klámiðn-
aðinum og segir hann lúta sama
lögmáli og fréttir. Eitt sinn borgaði
fólk fyrir aðgang að hvoru tveggja,
en nú þegar það getur nálgast hvort
tveggja án endur-
gjalds hættir fólk
að vilja borga.
Hann telur að nú
séu síðustu forvöð
hjá klámkóng-
um að fá
borgað.
n Ísbjörninn sem gekk á land fyrir
norðan gekk í fyrstu undir nafinu
Bjössi. Á Norðurlandi er björninn
þó betur þekktur sem Jón Viggó.
Nafngiftin var fundin upp í gamni en
stuttu áður en björninn var skotinn
gerðist hann helst til nærgöngull við
tvo af þeim mönnum sem á staðn-
um voru, nefnilega þá Jón og Viggó.
Það er þó spurning hvort félagarnir
hafi þurft að óttast nokkuð þar sem
við krufningu á birninum fundust
gróðurleifar í maga hans. Þrátt fyrir
að lifa á kjöti eiga ísbirnir til að neyta
gróðurs til að bjarga sér. Þeir geta
þó verið vikum saman án mat-
ar. Athygli vakti einnig að
tennur bjarnarins voru
eyddar og ein þeirra
skemmd.
Falsaður
skalli
Óvenjuleg samkeppni haldin á Drangsnesi:
Fallegasta Fuglahræðan valin
Frumlegar búast má við
fjölbreytilegum fuglahræðum
á Drangsnesi í júlí.
klám án
greiðslu
Jón viggó át gras