Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Blaðsíða 2
Miðvikudagur 2. jÚLÍ 20082 Fréttir DV
Slökkvilið kælir
moldarflag
Lögreglu- og slökkviliðsmenn
á Akranesi hafa haft það náðugt
síðustu daga. Það kom þó ekki í
veg fyrir að slökkviliðið væri kall-
að út í gær. Ástæðan var þó ekki
húsbruni.
Kallað var á slökkvilið eftir að
rjúka fór úr mold við Hagaflöt á
Akranesi þar sem bæjarstarfs-
menn unnu að þökulagningu.
Kom í ljós að moldin sem var
mjög þurr hafði hitnað svo mikið
að það byrjaði að rjúka úr henni.
Slökkviliðið mætti á staðinn með
tvo bíla sem sprautuðu á svæðið
og kældu moldina og nærliggj-
andi garða. Þetta var það heitasta
sem gerðist á Akranesi í gær, að
sögn yfirlögregluþjóns.
Hundur bíður
réttarhalda
Mindaugas Stankevicius, sem
berst fyrir lífi hundsins síns, Su-
striss, fyrir dómstólum, þarf enn
að bíða þess að örlög hundsins
verði ljós. Héraðsdómur Suður-
lands úrskurðaði í apríl að hund-
urinn skyldi líflátinn, en eigand-
inn var ósáttur við þann úrskurð
og áfrýjaði til Hæstaréttar Íslands
sem ógilti úrskurðinn og vísaði
málinu aftur í héraðsdóm. Ólafur
Helgi Kjartansson, sýslumaður á
Selfossi, segir að málið hafi ekki
verið flutt ennþá og því er ljóst
að lífsbaráttu Sustriss er hvergi
nærri lokið.
Landsmótsgestir
til fyrirmyndar
Gestir á Landsmóti hesta-
manna á Hellu hafa verið til
fyrirmyndar að sögn lögreglu-
varðstjóra á Hvolsvelli. Lögregl-
an á Hvolsvelli hefur verið með
eftirlit á mótinu og hefur ekki
þurft að vera með aukamann-
skap. Hins vegar verður fjölgað
í öryggisgæslu um helgina. Lög-
reglan lætur alla ökumenn sem
fara inn á eða út af svæðinu blása
svo enginn aki ölvaður. Einnig er
þung umferð um umdæmið og
hefur lögreglan tekið nokkra fyrir
of hraðan akstur.
Fólki fjölgar
í Árborg
Íbúum í sveitafélaginu Árborg
hefur fjölgað alls um 36 íbúa frá
maí til júní. Alls búa þar 7.789
manns í dag samkvæmt upplýs-
ingum sem koma fram hjá bæj-
arstjórn Árborgar en íbúatalan er
miðuð við 18. júní.
Skipting íbúa er nokkuð aug-
ljós en tæplega sex þúsund og
fimm hundruð manns búa á Sel-
fossi, 169 í Sandvík, á Eyrarbakka
búa 609, á Stokkseyri og í dreif-
býli er 541 íbúi og svo eru óstað-
settir alls átján talsins.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Sigmundur Eyþórsson, fráfarandi
slökkviliðsstjóri Brunavarna Suð-
urnesja, hefur hætt störfum hjá
embættinu. Þetta staðfesti Sigur-
vin Guðfinnsson, stjórnarformað-
ur Brunavarna Suðurnesja í samtali
við DV í gærkvöldi. „Ég get staðfest
að hann hefur gengið frá starfslok-
um sínum að eigin ósk,“ segir Sig-
urvin.
Hann staðfestir jafnframt að
gerður hafi verið starfslokasamn-
ingur við Sigmund, en Sigurvin vill
ekki greina nánar frá innihaldi hans.
Sá samningur sé eingöngu milli
stjórnarinnar og slökkviliðsstjórans
fráfarandi. „Sigmundur óskaði eftir
því fyrir helgina að láta af störfum
og við fórum yfir það mál í stjórn-
inni. Okkur fannst rétt að verða
við óskum hans.“ Jón Guðlaugsson
verður áfram settur slökkviliðsstjóri
þar til starfið verður auglýst seinna
á þessu ári.
Sigmundur tjáir sig ekki
Þegar DV leitaði til Sigmundar
um miðjan dag í gær sagðist hann
ekki vilja tjá sig um málið og vísaði
algjörlega á stjórn embættisins.
Eins og fram hefur komið hér
í blaðinu hefur Sigmundur ver-
ið í launuðu leyfi allt frá því stjórn-
in ákvað að skoða aðgang fjölmiðla
að Tetra-útkallsrásum slökkviliðs-
ins, en nokkrir fjölmiðlar höfðu að-
gang að þeim. Aðgangi fjölmiðla að
útkallsrásunum var lokað eftir að
DV greindi frá málinu, enda hafði
stjórn embættisins ekki vitneskju
um hann.
Þröstur Brynjólfsson, þjónustu-
fulltrúi Tetra-kerfisins hjá Neyðar-
línunni, var afar hissa á ákvörðun
Sigmundar og sagði hana veruleg
vonbrigði, í viðtali við DV þann 24.
maí síðastliðinn. Aðspurður sagði
hann: „Ef einhverjum er hleypt inn
á talhópa slökkviliðsins sem ekki
á að vera þar er það alveg skýlaust
brot. Það virðist vera í þessu tilviki
og við lítum þetta brot mjög alvar-
legum augum.“
Úttekt á starfi Sigmundar
Nokkur óánægja hefur verið
með störf Sigmundar undanfarið.
Embættið var nýlega dæmt til að
greiða 6 milljónir króna í skaðabæt-
ur vegna fráfalls slökkviliðsmanns,
sem lét lífið eftir að ósæð hafði rifn-
að við hjartað sem leiddi til innvort-
is blæðinga. Héraðsdómur Reykja-
ness taldi Brunavarnir
Suðurnesja bera ábyrgð á
andláti slökkviliðsmanns-
ins þar sem trúnaðarlækn-
ir vissi að mörk blóðþrýstings
væru of há hjá honum.
Starfsfólk embættisins
kvartaði svo nýlega undan
Sigmundi til stjórnar embætt-
isins og voru kvartanirnar rædd-
ar á stjórnarfundi. Á fundinum var
ákveðið að ráðast í heildarúttekt
með aðstoð sérfræðinga
á starfinu og í kjölfarið
var Sigmundur settur í
launað leyfi.
Málið hefur nú
verið til lykta leitt
með starfslokum Sig-
mundar, en hann
fagnaði því sjálfur
að úttekt yrði gerð
á starfseminni. „Ég
fagna því að svona
greiningarvinna fari
fram,“ sagði hann
í samtali við DV í
maí.
„Sigmundur óskaði
eftir því fyrir helg-
ina að láta af störfum
og við fórum yfir það
mál í stjórninni. Okk-
ur fannst rétt að verða
við óskum hans.“
Sigmundur Eyþórsson er hættur sem slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja. Sig-
urvin Guðfinnsson, stjórnarformaður embættisins, segir Sigmund hafa látið af störf-
um að eigin ósk. Sigmundur vill ekki tjá sig um málið en starfslokasamningur hefur
verið gerður við hann. Sigmundur hefur verið í leyfi undanfarið á meðan stjórn emb-
ættisins skoðaði aðgang fjölmiðla að útkallsrásum þess.
SLÖKKVILIÐS-
STJÓRI HÆTTUR
Sigmundur Eyþórsson
Hefur látið af störfum hjá
embættinu að eigin ósk.
Slökkvilið Fjölmiðlar
höfðu aðgang að
útkallsrásum slökkviliðsins.
„Það er lítið sem kemur á óvart í
þessu. Þetta er nú bara erfið ákvörð-
un að taka og ég er ekki ósáttur við
þessa niðurstöðu. Mér sýnist þetta
allt vera á skynsamlegu nótunum
hjá honum,“ segir Eggert B. Gud-
mundsson, forstjóri HB Granda, um
ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar
um að heildarþorskaflinn fyrir næsta
veiðiár verði sá sami og á yfirstand-
andi veiðiári, eða 130 þúsund tonn.
Þorskkvótinn var skorinn mikið nið-
ur fyrir þetta veiðiár að tillögum Haf-
rannsóknarstofnunar.
Aflamark karfa hefur verið minnk-
að um sjö þúsund tonn og segir Egg-
ert að það kunni að hafa einhver
áhrif á næstu mánuðum. „Ég tel að
það muni þó ekki hafa geigvænleg
áhrif, enda erum við nokkuð vel sett
með karfakvótann.“ Aðspurður hvort
niðurskurður í karfaveiðum muni
leiða til þess að útgerðarmenn muni
þurfa að draga saman seglin svarar
hann því til að það eigi eftir að koma
í ljós með tímanum.
Aðrar boðaðar breytingar frá
þessu fiskveiðiári eru ekki miklar.
Aflamark ýsu og ufsa mun lækka,
en þó var ekki farið að tillögum Haf-
rannsóknarstofnunar, sem lagði til
meiri lækkun. Þá er aflamark í síld
um tuttugu þúsund tonnum hærra
en Hafrannsóknarstofnun lagði til í
sínum tillögum. Engin niðurstaða er
hins vegar um aflaheimildir grálúðu.
Ásamt Íslendingum nýta Grænlend-
ingar og Færeyingar stofninn og
myndi einhliða lækkun Íslendinga
aðeins hafa það í för með sér að hin-
ar þjóðirnar gætu aukið sínar afla-
heimildir. valgeir@dv.is
Forstjóri HB Granda segir ákvörðun sjávarútvegsráðherra ekki koma á óvart:
Áfram niðurskurður í þorski
Einar K. Guðfinnsson Forstjóri
HB granda telur ákvörðun
sjávarútvegsráðherra skynsamlega.
valGEIR ÖRN RaGNaRSSON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is