Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Side 14
miðvikudagur 2. júlí 200814 sumartíska DV
Sumarleg snyrtitaska
Á sumrin vilja konur oft farða sig minna en Á veturna,
leyfa brúnkunni að njóta sín og viðra húðina eftir vet-
urinn. engu að síður þarf að huga að því að líta vel út og
gæta sín Á sólinni sem er oft sterkari en margan grunar.
mikið úrval snyrtivara með sólarvörn er nú Á boðstól-
um í verslunum. dv tók saman nokkrar sniðugar snyrti-
vörur sem nauðsynlegt er að eiga í snyrtitöskunni í sum-
ar og þÁ sérstaklega Á ferðalaginu þegar lítill tími gefst
til að huga að útlitinu.
Flott í ferðalagið
glæsileg snyrtitaska sem
rúmar mikið. tilvalin í
ferðalagið í sumar. snyrti-
buddan fæst í verslunum
make up store.
sólarpúður
nauðsynlegt er að eiga
gott sólarpúður í sumar.
berið sólarpúðrið varlega
á kinnbein með góðum
kinnalitabursta.
varakitt
þetta bráðsniðuga
varakitt frá make
up store býður
upp á þrenns
konar næringu
fyrir varirnar. ekki
slæmt að eiga eitt
svona í íslensku
veðráttunni.
maskari
förðun þykir varla
tilbúin án maskara. Á
góðum sumardög-
um getur jafnvel
verið nóg að nota
maskara, sólarpúður
og varasalva til að
líta stórkostlega út.
rakaúði
þessi rakaúði frá make up store á
án efa heima í hverri einustu
snyrtitösku. hvort sem um sumar
eða vetur er að ræða er nauðsyn-
legt að gæta þess að andlitið fái
raka. honum má úða á bert
andlitið sem og yfir farða. hægt er
að nálgast úðann í verslunum
make up store í kringlunni og í
smáralind.
Hugsaðu vel
um kroppinn
ilmandi estée lauder
estée lauder hannaði annars vegar olíu í úðaformi, og
hins vegar krem fyrir líkamann fyrir þetta sumarið. olían
er uppfull af næringarefnum og sumarlegum og seiðandi
ilmi, þar á meðal kókos sem á afar vel við á heitum
sumardögum. nauðsynlegt fyrir þá sem eru mikið úti við.
kremið er ekki bara nærandi og gott heldur má sjá glitta í
fallegan glans þegar búið er að bera það á húðina.
vörurnar má nálgast á öllum útsölustöðum estée lauder.
bobbi
brown í úða
nú er hægt að fá einstakt
krem á líkamann í
úðaformi frá bobbi
brown. kremið sem
inniheldur sjávarsmjör og
ólífuolíu er létt í sér og
hverfur inn í húðina á
svipstundu. kremið má
nálgast í hagkaup í
holtagörðum og lyfjum
og heilsu í kringlunni.
fyrir alla fjöl-
skylduna
sólarvörnin buriti og brúnku-
kremið Castanaha urðu nýlega til
þegar ný náttúruleg sólarlína fyrir
alla fjölskylduna var hönnuð af
fyrirtækinu l‘occitanet do brasil.
línan býður upp á vörur fyrir
bæði andlit og líkama. það ætti
enginn að leggja af stað í
ferðalagið án góðrar sólarvarnar,
brúnkukremið getur svo komið
sér vel til að viðhalda fallegum
sumarlitnum. vörurnar má
nálgast í verslunum loccitane í
kringlunni og á laugaveginum.
myndir karl peterson
mikið úrval
– varasalvi er nauðsynlegur í allar snyrtibuddur í sumar. bobbi
brown hefur hannað glæsilegan varasalva sem hentar konum
sem og körlum. varasalvinn inniheldur sólarvörn spf 15.
– ferðagloss er eitt af því nýjasta frá bobbi en glossin koma
fjögur í pakka. frábær leið til að geta breytt aðeins til án þess að
troðfylla snyrtibudduna.
– þessi flotti kremaði dimmbleiki vara- og kinnalitur er stórsnið-
ugur í ferðalagið. eftir að hafa sett á sig góðan farða með
sólarvörn þarf ekki annað en að dúmpa litnum á kinnarnar, bera
hann því næst á varirnar og þá ættir þú að vera orðin aðalskvísan
í útilegunni.
farði með
sólarvörn
þessi flotti farði er kremaður
viðkomu en gefur matta og
náttúrulega áferð. hann er
auðveldur í notkun og síðast en
ekki síst inniheldur hann spf 25
sólarvörn.