Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Blaðsíða 17
DV sumartíska miðvikudagur 2. júlí 2008 17
Götutískan í Reykjavík
með tískuna á hreinu
Dagný Gísladóttir naut sumarsins
Í hverju ertu? „Ég keypti kjólinn á e-Bay, jakkinn
er vintage og hatturinn líka. sokkabuxurnar eru
úr top shop og taskan úr Zöru.“
tískuritstjóri
á ferðalagi
Debbie Berebichez ritstýrir tískutímariti í
New York og kíkti í búðir í Reykjavík
Hvernig finnst þér tískan á Íslandi? „Ég kíkti á
nokkra staði í gær og allir voru svo ótrúlega
flottir. Ég er búin að fara í stellu og í nokkrar
design-búðir, er virkilega hrifin.“
tengdadóttir og tengda-
mamma saman í Bænum
Áslaug Gísladóttir og Arna Gerður Bang nutu
sólarinnar á Lækjartorgi
Hvar kaupir þú helst föt, Áslaug? „Ég versla mikið
erlendis en annars í evu og Cosmo hérna heima.“
Hvaðan eru fötin sem þú ert í, Arna? „Ég er í skóm
úr kron og leggings úr h&m. Ég versla mest í
kronkron og trilogiu.“
kasólÉtt með vinkonunni
Hugrún Ýr Helgadóttir og Viktoría Sigtryggs-
dóttir voru sætar á Austurvelli
Í hverju ertu, Hugrún? „óléttufötum! Ég keypti allt
sem ég er í erlendis. Peysan og bolurinn eru úr h&m
en pilsið fékk ég í motherhood.“
Hvaðan eru fötin þín, Viktoría? „Bolurinn er úr vero
moda, buxurnar úr esprit og bolurinn úr h&m. Þetta er
allt keypt úti, ætli vila sé samt ekki uppáhaldsbúðin
mín á íslandi.“
myndir heiða helgadóttir
vinnufÉlagar úr landsBank-
anum á röltinu í hádeginu
Jón Ragnar Jónsson, Kristján Sturla Bjarnason og
Guðmundur P. Ólafsson.
Hvar kaupir þú helst föt, Jón?„Ég var í skóla í Boston og
keypti mestallt mitt þar, til dæmis keypti ég þessi sólgleraugu
fyrir tveimur árum.“
Hvar keyptir þú dressið þitt, Kristján? „Þetta er nú flestallt
úr Zöru, ég versla mikið þar.“
Hver er uppáhaldsbúðin þín á Íslandi, Guðmundur? „Það
getur verið mjög misjafnt, ég er nýkominn frá útlöndum og
versla mest þar en annars er þetta sem ég er í allt saman úr
herragarðinum, versla svolítið þar líka.“
flottur niðri í Bæ
Hákon Helgi Bjarnason var flottur með
sólgleraugun
Hvaða flík keyptir þú síðast? „Það myndu vera
gallabuxurnar sem ég keypti í urban outfitters í
Bandaríkjunum.“
hressar stelPur frá árBæjarsafni
Hjördís Alda Hreiðarsdóttir og Ásta Fanney Sigurðardóttir voru
sætar í vinnunni
Hvar kaupir þú helst föt, Hjördís? „Ég versla mikið í útlöndum en
annars mest í spútnik og vero moda hérna heima.“
Átt þú þér einhverja tískufyrirmynd, Ásta? „mr. Been, hann er æði. Ég
sauma mest á mig sjálf og ræð því alveg stílnum.“
í sumarkjól í Blíðunni
Klara Lind Þorsteinsdóttir
Í hverju ert þú? „Þetta eru peysa og leggings úr
retro í smáralind. Bolakjóllinn er úr h&m, líka
skórnir og taskan. hérna heima versla ég mest í
retro og sautján.“
Báru heimatilBúna skúlPtúra
Þorgerður Þórhallsdóttir og Sunna Kristín Hannesdóttir
taka þátt í sumarstarfi Hins hússins
Áttu þér einhverja tískufyrirmynd, Þorgerður? „já, það mundi
vera david Bowie á 8. áratugnum.“
Hvar kaupir þú helst föt í Reykjavík, Sunna? „Ég versla nú
voða lítið, ég sauma mest sjálf.“