Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Qupperneq 22
Þegar svo er komið að forsætis- ráðherra þjóðarinnar líkir gagnrýn- inni fréttamennsku við dónaskap, einsog gerðist nýlega, og þegar umhverfisráherra segist ekki leyfa myndatökur af ísbjarnarhræi því þær gætu reynst óþægilegar erum við komin nálægt því sem á góðu máli heitir ritskoðun. Þægilegar myndir, óþægileg- ar fréttir. Hver er munurinn? Þessi spurning vaknaði þegar iðnaðar- ráðherra undirritaði viljayfirlýs- ingu um álver á Bakka við Húsavík nýlega. Iðnaðarráðherra sá sam- hengið þarna á milli. Honum var greinilega ekki um það gefið að fá birta af sér mynd með álforstjórum að fagna stóriðjustefnu ríkisstjórn- arinnar; álforstjórum sem eiga vart orð yfir ríkisstjórn Sjálfstæð- isflokks og Samfylkingar svo ánægðir eru þeir með hana. Konfektmolar álrisanna Þeir nota að vísu hvert tækifæri til að minna á að álverin sem nú eru að komast upp á færibandið þyrftu að vera ívíð stærri en ráð- gert er. Það eigi til dæmis við um álbræðsluna á Bakka. Þeir vita sem er að þessu má kippa í liðinn síð- ar. Goðafoss er ekkert á förum og Jökulárnar í Skagafirði bíða þess að stungið verði niður stíflu hér og stíflu þar. Fossarnir, hverirnir og óbeislaðar árnar bíða eins og kon- fektmolar á matseðli álfyrirtækj- anna sem eru staðráðin í því að „fullnýta“ Ísland. Össuri Skarphéðinssyni er ekki um þetta gefið. Það er mín tilfinn- ing. Sannast sagna held ég að innst inni vilji hann í lengstu lög forðast nýtt álver á Bakka. Það á líka án efa við um Þórunni Sveinbjarnardótt- ur umhverfisráðherra. Hún vill ekki sjá álver á Bakka. Og helst ekki í Helguvík. En lætur sig hafa það. En ef þeim Össuri og Þórunni er illmögulegt að kyngja stóriðju- stefnu Sjálfstæðisflokksins og virkj- unarsinnanna í Samfylkingunni - sem mér sýnist vera að ná yfir- höndinni í þeim flokki - þurfa þau líka að segja sig frá þessari stefnu og þess vegna ríkisstjórnarsam- starfinu. Ef samviskan þolir ekki álagið þarf að láta hana ráða. Allt er þetta spurning um hæn- una og eggið. Ef ríkisstjórn og ráð- herrum þykir óþægilegt að horfast í augu við eigin gjörðir í fjölmiðl- um þurfa þau að endurskoða þær, ekki stíga á þá sem hafa þann starfa að greina þjóðinni frá umdeildum gjörðum þeirra. Þegar menn orka ekki lengur að horfa á sjálfa sig í fjölmiðlum er eitthvað mikið að. Össur og samviskan Mér fannst kjörorð Samfylk- ingarinnar um Fagra Ísland vera frábært. Það er þó einvörð- ungu ef innihaldið er eftir umbúðunum. Ef innihaldið er hins vegar ekkert, engin meining á bak við þetta ákall um fegurð Íslands, þá er slagorðið innihalds- laust glamuryrði og verra en ekkert. Ef þessi er raunin verður líka skiljanlegt að fréttir sem ganga þvert á slagorðin og fyrirheit- in verði óþægileg- ar og best að hafa þær í algeru lág- marki. Núverandi iðnaðarráðherra er óbanginn pólitíkus og afstaða hans til ljósmyndavélarinnar í síð- ustu viku ekki beint í hans stíl. Eitt- hvað truflar samviskan. Það yrðu góð tíðindi fyrir Goða- foss, Þjórsá og allar hinar náttúr- perlurnar ef samviskan fengi nú að ráða för og hægt væri að mynda og spyrja átölulaust. Þá fengi líka stefna Samfylkingarinnar um fagurt Ísland raunverulegt inntak. Hvort stjórnarsamstarfið héldi er svo önnur saga. Miðvikudagur 2. jÚLÍ 200822 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson, janus@dv.is fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur Helgason, asi@birtingur.is DrEifingarStjóri: jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðaLnÚMer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010, áskriftarsÍMi: 512 7080, augLýsingar: 512 70 40. Umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Það er bæði fjárhagslega hagkvæmt fyrir samfélagið og umhverfisvænt að sem flestir fari í strætó. Strætó í samneysluna Leiðari Í gær fór bensínverðið í 177 krónur. Ekkert bendir til þess að verðið muni lækka þegar til lengri tíma er litið. Margt bendir hins vegar til þess að verðið hækki enn frekar á næstu mánuð- um og árum, jafnvel allt þar til bens- ín verði lúxusvara til hátíðabrigða. Viðbrögð okkar nú skipta sköpum í því hvernig okkur tekst að mæta þessum breytingum í framtíðinni. Tveir valkostir eru aðrir en einka- bíllinn: Að ganga eða nota almenn- ingssamgöngur. Fæstir eru í þeirri aðstöðu að geta gengið til vinnu á höfuðborgarsvæðinu, enda eru flest hverfi byggð upp sem svefnhverfi, en ekki samblanda af starfi og bú- setu. Allar hugmyndir um jarðlestakerfi á höfuðborgarsvæðinu ætti að taka með þeim fyrirvara að Reykjavík er mun strjálbýlli en þær borgir sem tekið hafa upp slíkar samgöngur. Þá er aðeins einn raunhæfur valkostur eftir, olnbogabarnið Strætó. Eina aðkoma ríkisins að Strætó er að rukka 350 milljónir króna í virðisaukaskatt á ári. Það mundi kosta aukalega um 700 milljónir króna á ári að gefa öllum frítt í strætó. Þetta hefur verið gert víðar. Bæjar- stjórnin í Ísafjarðarbæ hef- ur ákveðið að gefa ókeypis í strætó. Á höfuðborgarsvæð- inu er ekki einu sinni hægt að borga með greiðslukorti í strætó. Svo lamaður er metn- aðurinn. Ef Ísafjörður getur gefið frítt í strætó ætti Reykja- víkurborg líka að geta það. Það er bæði fjárhagslega hag- kvæmt fyrir samfélagið og umhverfisvænt að sem flest- ir fari í strætó. En eitthvað stoppar ríkið frá því að gera hið augljóslega rétta í stöðunni. Á meðan Geir talar um vistakstur ætti hann að tala um almenn- ingssamgöngur. En ríkið fær gríðarlegar tekjur af einkabílnum. Það sem er gott fyrir ríkið er í þessu tilfelli vont fyrir almenning og samfélagið í heild. Hefur Hátt bensínverð áHrif á ferðir þínar innanlands? „já, ég myndi segja það, það munar rosalega miklu hvað bensínið er orðið dýrt. “ Heidi Pétursdóttir, 32 ára sölumaður „nei, út af því að ég er á reiðhjóli.“ Ásgeir Ragnar Bragason, 48 ára sölumaður „nei, í raun og veru ekki þar sem ég ætla mér ekki að ferðast í sumar.“ Helgi Hallgrímsson, 57 ára öryrki „já, það er meiri kostnaður og dýrt að reka bílinn.“ Pétur Bjarnason, 25 ára atvinnubílstjóri Sandkorn n Enn er leitað að fyrrverandi forsætisráðherranum sem vitn- aði til um pólitískan uppruna Baugsmálsins við Jón Ásgeir Jóhannesson, samkvæmt Morgunblað- sviðtali við hann. Flestir bloggarar hafa kom- ist að þeirri niðurstöðu að Þorsteinn sé líklegastur, sem starfsmað- ur í fyrirtæki Jóns Ásgeirs, 365. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Þorsteinn er meintur heimild- armaður um Baugsmálið. Karls Th. Birgisson ljóstraði því upp að heimildarmaðurinn í tímarit- inu Herðubreið um að Styrmir Gunnarsson vissi um yfirvofandi lögregluinnrás í Baug væri í raun Þorsteinn Pálsson, í gegnum þriðja aðila þó. n Frægt er að velferðarsvið Reykjavík- urborgar undir forsæti Jórunnar Frí- mannsdóttur hafnaði um- sókn SÁÁ um rekstur með- ferðarúrræðis fyrir fíkla, en valdi hina einkareknu Heilsuvernd- arstöð þrátt fyrir 10 milljóna króna hærri kostnað. Nú hafa heimsmeistarar einkavæðingar, Bandaríkjamenn, hug á sam- starfi við SÁÁ, jafnvel þótt það hentaði ekki Reykjavíkurborg. n Pétur Gunnarsson hætti í gær sem ritstjóri Eyjunnar.is. Síðast- liðið ár hefur Eyjan skipað sér ákveðin sess hjá sumum netnot- endum, og er nú í fimmt- ánda sæti yfir mest lesnu vefi landsins. Fjöldi blogg- ara þakkaði Pétri góð störf í gær, þar á meðal Jónas Kristjánsson. Eyjublogg- arinn Hlynur Þór Magnússon gerði slíkt hið sama og tilkynnti um leið um brotthvarf sitt af vefnum vegna þessa. n Sjósundmaðurinn og bókaút- gefandinn Benedikt Lafleur varð frá að hverfa á miðju Ermar- sundi í fyrradag, þar sem hann náði ekki að nærast vegna vinds. Benedikt synti í heilar tíu klukku- stundir í þágu baráttunnar gegn mansali, en allt kom fyrir ekki í þessari þriðju atrennu hans. Vefmiðillinn Vísir henti gaman að Benedikt fyrir vikið, með fyr- irsögninni „Ellilífeyrisþegi yfir Ermasund en Benedikt ekki“. Þar greindi frá stríðum straumi sundmanna yfir sundið, meðal annars konu sem synt hefur 43 sinnum yfir. Sumir vilja meina að með þessu sé Benedikt orðinn „Geir Ólafsson sjósundsins“, en aðrir þakka tilraun hans í þágu góðs málstaðar. dómStóLL götunnar ÖgmunduR Jónasson alþingismaður skrifar Núverandi iðnaðarráð- herra er óbanginn pólit- íkus og afstaða hans til ljósmyndavélarinnar í síðustu viku ekki beint í hans stíl. AÐ GETA EKKI HORFST Í AUGU VIÐ SJÁLFAN SIG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.