Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Qupperneq 28
Leikminjasafn Íslands opnaði um
síðustu helgi sýningu í Laxdalshúsi,
elsta húsi Akureyrar. Sýningin fjallar
um leiklistina á Akureyri og norð-
anlands, auk þess sem hluti henn-
ar er helgaður list Þráins Karlssonar
leikara og myndlistarmanns. Það er
Þórarinn Blöndal, myndlistarmaður
og sýningahönnuður, sem setur upp
sýninguna.
„Þetta gerðist nú bara þannig að
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjar-
stjóri á Akureyri, bauð okkur húsið
til afnota,“ segir Jón Viðar Jónsson,
forstöðumaður Leikminjasafnsins,
spurður um tildrög sýningarinnar.
„Húsið var enduruppgert fyrir all-
mörgum árum og þá í þeim tilgangi
að það yrði opið almenningi. Það
hefur hins vegar ekki verið nú um
alllangt skeið og ég hygg að bæði
bæjaryfirvöld og fleiri hafi gjarnan
viljað fá meira líf í húsið.“
Myndlistarhæfileikarnir
koma á óvart
Sýningarrými í húsinu er ekki
mikið, að sögn Jóns Viðars, „en við
reynum að gera eins mikið úr því og
við getum. Við verðum með fasta-
sýningu um leikhúsið á Akureyri í
einu herbergjanna, en í öðru með
sérsýningar sem verða breytileg-
ar. Okkur fannst einstaklega vel við
hæfi að helga þessa fyrstu sýningu
myndlist Þráins Karlssonar sem
er alveg hreint frábær myndlist-
armaður, þó að hann sé auð-
vitað langþekktastur sem leik-
ari. Ég geri ráð fyrir að það
komi fleirum en mér á óvart
að sjá þessi verk. Síðar ætl-
um við að setja þarna upp
sýningu um starf leikfélag-
anna á Norðurlandi, en
áhugamannaleikhúsið
er merkilegt fyrirbæri
sem okkur finnst sjálf-
sagt að sinna, engu
síður en atvinnuleik-
húsinu.“
Vísir að leikhús-
bókakaffi
Á efri hæð hússins
verða sýndar nokkrar af leikbrúð-
um Jóns E. Guðmundssonar, brúð-
ulistamanns og frumherja í íslensku
brúðuleikhúsi. Leikminjasafnið
eignaðist allt safn hans á síðasta ári
og Jón Viðar segir þetta kærkomið
tækifæri til að sýna brúðurnar.
„Þá er hægt að kaupa kaffiveit-
ingar í húsinu og sitja þar og skoða
blöð og bækur tengd leiklistinni.
Við höfum hugsað okkur að koma
upp þarna vísi að leikhúsbóka-
kaffi. Annars er þetta þróunar-
verkefni, það er alls ekki fullmót-
að, við erum bara að stíga fyrstu
skrefin.“
En er Leikminjasafnið kannski
flutt norður? „Nei, alls ekki,“ svar-
ar Jón Viðar. „Leikminjasafnið þarf
auðvitað að fá húsnæði í Reykjavík,
því að það er hér sem leiklistin hef-
ur þróast. En ræturnar úti á landi
skipta einnig miklu máli, við höf-
um alltaf lagt á það mikla áherslu
í kynningu og sýningahaldi. Það
er ekki síst þess vegna sem okkur
finnst gaman að hafa komið upp
þessari aðstöðu á Akureyri. Lax-
dalshús er ákaflega sjarmerandi
hús og ég efa ekki að bæði Akur-
eyringar og gestir og ferðamenn
munu leggja leið sína hingað á
næstunni.“ Sýningin sem sett
er upp með fjárstuðningi frá
menningarsjóði Eyþings
verður opin alla daga í
sumar nema mánu-
daga. Vonir standa
til að sýningin haldi
áfram næsta vetur,
en það fer þó eftir
aðsókn.
kristjanh@dv.is
Miðvikudagur 2. jÚLÍ 200828 Fókus DV
á m i ð v i k u d e g i
Faðir vor og gjörð
Hljómsveitirnar Faðir vor og Gjörð spila á Organ í kvöld klukkan 21. Báðar hljómsveitir ætla að
spila frumsamið efni en þær hafa verið starfandi með hléum í rúmt ár. Stutt verður í spunann
hjá böndunum, en músík þeirra hefur verið lýst sem blöndu af tilraunamennsku, heimstónlist
og djassi. athygli vekur að báðar hljómsveitirnar notast við tvö trommusett í einu.
Líf í Lax-
d Lshúsi
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Listahátíðar
Stjórn Listahátíðar í Reykjavík hef-
ur ráðið Jóhönnu Vigdísi Guð-
mundsdóttur í stöðu framkvæmda-
stjóra hátíðarinnar. Tuttugu og
þrjár umsóknir bárust um starfið.
Jóhanna Vigdís starfaði áður sem
forstöðumaður samskiptasviðs
Straums-Burðaráss en þar áður sem
markaðsstjóri hjá Deloitte hf. og
Borgarleikhúsinu. Jóhanna Vigdís
er með MBA-próf úr Háskólanum í
Reykjavík, mastersgráðu í menning-
arfræðum frá Edinborgarháskóla
og BA-gráðu úr bókmenntafræði frá
Háskóla Íslands. Jóhanna tekur við
starfi framkvæmdastjóra af Hrefnu
Haraldsdóttur, sem gegnt hefur því
starfi í rúm sjö ár, en hún tekur við
starfi listræns stjórnanda 1. október
af Þórunni Sigurðardóttur.
verðlauna-
listamaður
frá Svíþjóð
Berit Lindfeldt opnar sýningu á
Loftinu í Start Art listamannahúsi á
morgun klukkan 17. Lindfeldt, sem
býr og starfar í Gautaborg, er mynd-
höggvari að mennt og hefur vakið
athygli fyrir innihaldsrík verk sem
byggjast á hefðbundnum vinnuað-
ferðum í bland við tilraunir með ólík
efni, hlutföll og áferð. Verk listakon-
unnar má finna í og við opinberar
byggingar í heimalandinu Svíþjóð
og nýlega vann hún samkeppni um
gerð minnismerkis til minningar
um rithöfundinn Astrid Lindgren.
Lindfeldt hefur áður sýnt á Íslandi, í
Nýlistasafninu árið 1997.
Bænastund í
Hljómskála-
garðinum
Bænastund í nafni umburðar-
lyndis og kærleika fer fram í
Hljómskálagarðinum á föstu-
dagskvöldið.
Listamaður-
inn Snorri
Ásmundsson,
sem stendur
fyrir viðburð-
inum, segir
að markmiðið
sé að fá sem
flesta einstakl-
inga og hópa sem aðhyllast mis-
munandi trúarbrögð til að taka
þátt í þessari sameiginlegu
bænastund. Eins og margir vita
hefur Snorri ferðast heimshorna
á milli með kærleikspíramídann
sinn undanfarin ár og beðið fyrir
ást og kærleik öllum til handa.
Bænastundin á föstudagskvöldið
hefst klukkan 21.
Tveir á tröppum Þráinn karlsson,
leikari og myndlistarmaður, og jón
viðar jónsson, forstöðumaður
Leikminjasafns Íslands.
Er þetta ekki ...? gestir skoða
sýninguna með glöggu auga.
Blint kaffihús er verkefni sem ung-
mennadeild Blindrafélagsins stend-
ur fyrir í sumar í húsnæði félagsins í
Hamrahlíð 17. Mig hafði lengi dreymt
um að fara á kaffihús sem þetta. Há-
degisverður í kolsvarta myrkri hljómar
mjög spennandi í mínum huga. Ég er
ekki frá því að við vinkonurnar höfum
fundið til kvíða þegar við nálguðumst
kaffihúsið og veltum fyrir okkur hvort
við myndum ekki bara sulla öllu niður
og yfir okkur sjálfar.
Blindir og sjónskertir þjóna á kaffi-
húsinu og við leiddum einn þjóninn
inn í myrkvaðan salinn eftir að við
pöntuðum. Við pöntuðum okkur báð-
ar það sama: gúllassúpu, skinkuhorn,
vatnsglas og síðan kaffi. Fyrir þetta
borguðum við hvor um sig 980 krón-
ur sem er ansi gott verð. Súpan var
bragðmikil en nokkrir bitar voru seigir.
Skinkuhornin til fyrirmyndar og kaffið
bara eins og heima hjá mömmu. Þjón-
arnir voru allir af vilja gerðir og á tíma-
bili höfðum við tvo slíka sem vildu allt
fyrir okkur gera.
Eitt markmiðið með kaffihúsinu
er að veita þeim sjáandi „innsýn“ í
heim blindra. Og það gekk sannarlega.
Þjónninn sagði mér alltaf hvar hann
lagði diskana og glösin niður: „Ég set
brauðið vinstra megin.“ Og síðan þreif-
aði ég til vinstri og fann þar brauð.
Merkilegt nokk sulluðum við engu yfir
okkur. Annar þjónninn sagði okkur að
skömmu áður hefði verið lambalæri í
hádegismatinn, ásamt grænum baun-
um og tilheyrandi. Ef mér fyndist erf-
itt að borða súpu blindandi ætti ég að
prófa að finna grænar baunir á diskn-
um mínum
Þegar við vorum að kára súpuna
höfðu augun þó vanist myrkrinu
þannig að við sáum betur til. Engu
að síður var svart plast límt fyrir alla
glugga og inngangurinn vel einangrað-
ur. Og þá lokuðum við bara augunum.
Það var hvort eð er enginn sem gæti séð
okkur drekka kaffi með lokuð augu.
Þess má geta að kaffihúsið var opn-
að 17. júní en verður lokað 20. júlí.
Opið er á virkum dögum milli klukkan
11 og 15, en á laugardögum frá klukkan
12 til 16. Erla Hlynsdóttir
Erla HlynsdóTTir
fór á „blindrakaffihús“.
Hraði: HHHHH
VEiTinGar: HHHHH
ViðMóT: HHHHH
UMHVErfi: HHHHH
VErð: HHHHH
BOrðað Í Myrkri
í skyndi
laxdalshús Í þessu elsta húsi
akureyrar er nú mikið líf í formi
sýningar Leikminjasafnsins.