Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2008, Qupperneq 29
 DV Fólkið Miðvikudagur 2. jÚLÍ 2008 29 SEXÍ OG SÆT Íslenska leikkonan Aníta Briem fór heldur betur á kostum á frumsýningu A Journey to the Center of the Earth á sunnudaginn síðastliðinn. Aníta fer með eitt af aðalhlutverkunum í endurgerð af klassískri skáldsögu Jules Verne. Aníta hreppti þetta eftirsótta hlutverk sem hin íslenska Hannah Ásgeirsson og virðist myndin ætla að verða ein af aðal- ævintýramyndum sumarsins. Brendan Fraser fer með aðalhlutverk á móti Anítu ásamt hinum unga Josh Hutcherson. En Brendan er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í ævintýra- og spennumyndunum The Mummy. Gagnrýnendur spá myndinni mikilli velgengni og þá sérstaklega meðal yngri kynslóðarinnar því myndin er í þrívídd. Bloggarar hrósuðu Anítu há- stöfum á frumsýningu myndar- innar. Þeir segja hana hafa ver- ið kynþokkafulla og fyndna og að spennan og eftirvænt- ingin hafi skinið skært í aug- um hennar á rauða dregl- inum. Það fer ekki á milli mála að Aníta er á góðri uppleið í Hollywood. Hún gefur Kate Hudson og Reese With- erspoon ekkert eftir ef marka má þessar myndir. AnítA Briem: „ÉG Er óTrú- lEGur“ Gillzenegger er sannkallað- ur þúsundþjalasmiður. Á milli þess sem hann æfir í ræktinni eða einkaþjálfar semur kapp- inn texta. En Gillz samdi textann við lagið Basscop á breiðskífu Merzedes Club sem kom út á dögunum. „Ég held að það sé ekkert sem ég get ekki gert,“ segir Gillz sjálfs- öryggið uppmálað. „Ég komst að því að ég er með ágætis hæfi- leika til að semja texta og við ákváðum að nýta okkur það á plötunni. Þetta tók heldur ekki meira en fimm mínútur,“ segir Gillz og bætti við í lokin: „Ég er ótrúlegur.“ Geir Ólafsson vill auka þjóðrækni Íslendinga: vill flEiri fánadaGa umvafinn STElpum Trommuleikarinn Hanni Backman, sem þekktastur er fyrir að hafa verið í hljómsveitinni Skítamóral, eignað- ist sitt annað barn í fyrradag. Unn- usta hans er Íris Aðalsteinsdóttir. Hanni og Íris hafa verið saman síðan þau hittust úti í Danmörku þeg- ar þau voru bæði búsett þar. Ástin kviknaði á milli þeirra í Danaveldinu og hefur verið mikil ánægja og gleði í kringum þau síðan. Hanni á aðra stelpu úr fyrra sambandi en hún er tíu ára og því má segja að hann sé umvafinn stelpum. Íslenska leikkonan Aníta Briem kom, sá og sigraði á frumsýn- inu A Journey to the Center of the Earth í Hollywood á sunnu- daginn. á frumSÝninGu „Sem mikill þjóðernissinni vil ég að Íslend- ingar flaggi meira,“ segir söngvarinn Geir Ól- afsson, betur þekktur sem Ice Blue, en hann hvetur fólk til þess að flagga íslenska fánan- um af krafti í sumar. Hann segir fánann vera einkenni hverrar þjóðar og verði til þess að Íslendingar meti land sitt og þjóð betur. „Það þarf að efla kærleikann hjá þjóðinni,“ segir Geir en sjálfur var hann úti í Banda- ríkjunum þar sem stórsveit spilaði með honum að hætti spilaborgarinnar Las Ve- gas, en sjálfur stefnir Geir á útgáfu breið- skífu næsta haust. „Bandaríkjamennirnir eru sko ekki feimn- ir við að flagga fánanum sínum,“ segir Geir sem lærði mikið af bandarísku þjóðernis- ástinni sem hefur ekki farið framhjá nein- um í heiminum. Vangaveltur Geirs koma í kjölfar þess að hann er farinn að huga að þrjátíu og fimm ára afmælinu sínu sem verður í ágúst. Hann segist ætla að flagga í hæstu stöng, og það sem meira er – hann mun halda stórtónleika fyrir músíkþyrsta Íslendinga. Hann vonast til þess að halda tónleikana á Broadway og mun þá kynna fyrir landi og þjóð heimsfræga slagara með íslenskum textum. „Síðan langar mig að styrkja gott málefni þannig að allur ágóði tónleikanna mun renna til þurfandi samtaka,“ segir hinn þjóðrækni Geir Ólafsson að lokum. valur@dv.is Flottari en Kate Hudson aníta Briem var stórglæsileg í stuttum gulum kjól á frumsýningu myndarinnar a journey to the Center of the Earth. Þvílíkt bros Eftirvænting- in og spennan skein af Anítu, segja Hollywood- bloggarar. Það sést á þessari mynd. Stórstjarna Stjarna Anítu Briem skín skært um þessar mundir. Hér er hún ásamt meðleikurum sínum þeim Brendan Fraser og Josh Hutcherson á frumsýningu A Journey to the Center of the Earth. Töff skór Silfurlitaðir með opinni tá og dökkt naglalakk. Takið eftir rennilásnum aftan á skónum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.