Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.05.2015, Side 6

Fréttatíminn - 15.05.2015, Side 6
Afgreiðslutími Mán. til fös. frá kl. 10–18 Laugardaga frá kl. 11–16 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 REST heilsurúm Fyrir þínar bestu stundir MEIRA Á dorma.is COMFORT heilsurúm LUXURY heilsurúm Nature’s Luxury dýna með Classic botni Stærð cm Dormaverð 120x200 129.900 kr. 140x200 155.900 kr. 160x200 169.900 kr. 180x200 189.900 kr. • Svæðaskipt poka- gormakerfi • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar pr fm2 • Góðar kantstyrkingar • Svæðaskipt poka- gormakerfi • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar pr fm2 • Steyptar kantstyrkingar • Svæðaskipt poka- gormakerfi • Þrýstijöfnunar yfirdýna • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar pr fm2 Nature’s Comfot dýna með Classic botni Stærð cm Dormaverð 100x200 99.900 kr. 120x200 119.900 kr. 140x200 138.900 kr. 160x200 149.900 kr. 180x200 164.900 kr. Nature’s Rest dýna með Classic botni Stærð cm Dormaverð 90x200 68.900 kr. 100x200 72.900 kr. 120x200 79.900 kr. 140x200 92.900 kr. 160x200 99.900 kr. 180x200 117.900 kr.  Framhaldsskólanemar stúlkur sækja Frekar í tungumálanám Spænska orðin þriðja algengasta erlenda málið á árum áður var danska fyrsta tungumál Íslendinga en svo tók enskan alger- lega yfir. Þýska var í þriðja sæti er- lendra tungumála meðal íslenskra framhaldsskólanema en nú hefur spænskan rutt þýskunni úr vegi. Skólaárið 2012-13 lærðu íslenskir framhaldsskólanemar arabísku í fyrsta sinn – og sama gildir um færeyskunám, að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Nemendur í spænsku urðu í fyrsta skipti fleiri en nemendur í þýsku skólaárið 2012-2013. Skóla- árið 2013-2014 lærðu 4.150 nem- endur spænsku, 3.873 þýsku og 1.792 frönsku í framhaldsskólum. Flestir framhaldsskólanemendur læra ensku og voru þeir tæplega 15 þúsund skólaárið 2013-2014, um 60% framhaldsskólanema. Næst- f lestir nemendur læra dönsku, rúmlega 7 þúsund, enda eru þessi tvö tungumál skyldunámsgreinar fyrir flesta nemendur í framhalds- skólum. Í fyrsta sinn frá upphafi gagna- söfnunar Hagstofu Íslands árið 1999 lærðu íslenskir framhalds- skólanemendur arabísku skólaár- ið 2012-2013, þegar 20 nemendur lærðu arabísku. Skólaárið 2012- 2013 komu líka fram í fyrsta skipti í gagnasöfnun Hagstofunnar nem- endur sem lögðu stund á færeysku, alls 37 talsins, og 21 nemandi skóla- árið 2013-2014. Færri nemendur læra hins vegar mörg tungumál en áður. Að meðal- tali lærðu framhaldsskólanemendur 1,34 tungumál skólaárið 2012-2013 og 1,31 tungumál skólaárið 2013- 2014. Meðalfjöldi tungumála, sem framhaldsskólanemendur læra, hefur ekki verið lægri síðan Hag- stofan hóf að birta sambærilegar töl- ur skólaárið 2002-2003. Meðalfjöld- inn var hæstur skólaárin 2004-2006, 1,47 tungumál. Ástæðan er aðallega sú að færri nemendur læra tvö eða fleiri tungumál á sama skólaári, sem fer saman við fækkun nemenda á málabraut undanfarin ár, að því er fram kemur í yfirliti Hagstofunnar. Stúlkur sækja frekar í tungumála- nám í framhaldsskólum en piltar. Alls lærðu 72,7% stúlkna og 71,6% pilta tungumál skólaárið 2013-2014. Það er líka algengara meðal stúlkna að læra mörg tungumál enda eru þær mun fleiri en piltar á málabraut- um framhaldsskóla. Þannig lærðu 35,5% stúlkna og 28,2% drengja tvö eða fleiri tungumál 2013-2014. Fram kemur á síðu Hagstofunnar að upplýsinga er eingöngu aflað um nemendur í lifandi tungumálum og því eru ekki taldir nemendur í forn- grísku, latínu og esperantó. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Þýska hefur orðið undan að láta. Enskan örugg á toppnum og síðan danskan. Arabíska og færeyska eru meðal nýrra námsgreina. Fleiri framhaldsskólanemar læra nú spænsku en þýsku. Arabíska og færeyska eru enn fremur nýjar námsgreinar. Flugfélagið WOW hóf flug til Bandaríkjanna fyrr í vetur þegar Boston varð fyrsti áfangastaður félagsins í Norð- ur-Ameríku. Félagið hóf um leið að nota tvær splunkunýjar Airbus A321 farþegaþotur sem nýtast einkar vel þegar flogið er yfir Atlantshafið. Höfuðborgin Washington DC bættist svo í stækkandi hóp áfangastaða í síðustu viku þegar Skúli Mogensen, for- stjóri Wow Air, og Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra klipptu á borða í Leifsstöð á föstudag- inn. Sagði Skúli við það tæki- færi að Ísland væri hvergi nærri mett af ferðamönnum og hvatti stjórnvöld til dáða í fyrirhuguðum stækkunar- framkvæmdum við Keflavík- urflugvöll, flugfélögum sem notuðu Keflavík fjölgaði ár frá ári. Hann sagði jafnframt að ef rétt væri haldið á spöðunum myndi fjöldi ferðamanna, sem fór á síðasta ári í fyrsta sinn yfir milljón, fara yfir tvær milljónir innan fárra ára. Tekið var á móti flugvél WOW með viðhöfn í Washing- ton. Meðal þeirra sem tóku á móti vélinni í jómfrúarfluginu var Geir H. Harde, sendiherra Íslands í bandarísku höfuð- borginni. -hj  Ferðir jómFrúarFlug WOW til WashingtOn Ísland hvergi nærri mett af ferðamönnum Áhöfn flugvélarinnar, forráðamenn WOW og ráðherra ferðamála stilltu sér að sjálfsögðu upp fyrir eina „selfie“ áður en lagt var af stað í jómfrúarflugið til Washington. Mynd Hari 6 fréttir Helgin 15.-17. maí 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.