Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.05.2015, Side 7

Fréttatíminn - 15.05.2015, Side 7
Á Laugalandi í Borgarfirði rækta hjónin Þórhallur og Erla gúrkur. Þar hefur fjölskylda Þórhalls stundað garðyrkju frá árinu 1942. Jarðhiti er á svæðinu og notast þau við eigin vatnsveitu til að hita upp gróðurhúsin með vatni frá hvernum. Gúrkurnar eru tíndar á hverjum degi og pakkað svo þær komi örugglega ferskar til neytenda. - Partýgúrkubitar Þórhalls og Erlu - Hálf gúrka skorin niður í 1½ cm þykkar sneiðar og fræin hreinsuð innan úr þannig að fyllingin verði falleg í miðjunni. Fylling með taðreyktum silungi og basil // ½ dós rjómaostur // ½ tsk. sinnep // // 150 g taðreyktur silungur // nokkur blöð af fersku basil // // 1 tsk. sæt chillisósa // Setja allt í matvinnsluvélina og mauka gróflega. Toppa gúrkusneiðarnar með silungafyllingunni og skreyta með basil eða spírum. Gulrótarfylling með döðlum // ½ dós rjómaostur // // 1 stk. gulrót rifin niður // // Saxa döðlur í litla bita // Hræra saman í matvinnsluvél rjómaostinn, rifnu gulrótunum og döðlunum. Fylla gúrkusneiðarnar og skreyta þær með granateplum og eða spírum.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.