Fréttatíminn - 15.05.2015, Blaðsíða 30
Konurnar sem
afhjúpuðu kerfið
Hvaða konur voru það sem réðust eins og stormsveipur inn í hið rótgróna kerfi, sköpuðu usla og
uppþot með gjörningum og hækkuðu svo tölu kvenna á Alþingi um 200%? Halla Kristín Einars-
dóttir leitast við að svara þessum spurningum í heimildarmynd sinni „Hvað er svona merkilegt
við það“, sem hún frumsýnir á Skjaldborg um hvítasunnuhelgina. Halla Kristín segir það fyrst og
fremst hafa verið forvitni sem hefi dregið hana út í gerð heimildarmynda um sögu kvennabarátt-
unnar, enda sé það efni sem komi ekki fyrir í skólabókum.
É g lærði myndlist í Listahá-skólanum þar sem ég fór að prófa mig áfram með vídeó
og stuttmyndaverk. Þegar ég var
búin í náminu hélt ég áfram að gera
litlar myndir en fór svo að vinna við
kvikmyndagerð. Í raun og veru
áttaði ég ekki mig ekki á því fyrr
en þá hvert ég væri komin,“ segir
Halla Kristín Einarsdóttir sem hef-
ur starfað sem kvikmyndagerðar-
maður síðan auk þess að kenna hag-
nýta menningarmiðlun við Háskóla
Íslands. Halla Kristín frumsýnir
heimildarmyndina „Hvað er svona
merkilegt við það“, á Skjaldborg-
arhátíðinni um hvítasunnuhelgina.
Forvitin um sögu kvenna
Fyrsta mynd Höllu Kristínar í fullri
lengd var „Konur á rauðum sokk-
um“ en hún fjallar um íslensku
rauðsokkahreyfinguna, frá upphafi
hennar árið 1970 og til ársins 1980
þegar stofnendur hennar ákveða að
leggja hana niður. „Það var eigin-
lega tilviljun að ég réðst í gerð henn-
ar. Þá var Miðstöð munnlegrar sögu
að fara að taka upp viðtöl við rauð-
sokkana og ég og Fríða Rós Valdi-
marsdóttir mannfræðingur vorum
fengnar til að taka upp þessi viðtöl,“
segir Halla en nýja myndin hennar
tekur upp þráðinn þar sem fyrri
myndin endar. „Ég held að þetta
hafi líka verið forvitni í mér. Þetta
er ekki efni sem kennt er í skóla
og mig langaði að vita hvaða konur
þetta voru og hvað rak þær áfram.“
Hækkuðu tölu kvenna á
Alþingi um 200%
Rauði þráðurinn í nýju myndinni er
saga kvennaframboðanna og Halla
Kristín leitast við að varpa ljósi á
það hvað gerist þegar grasrótar-
samtök á við Kvennalistann koma
eins og stormsveipur inn í hið skipu-
lagða kerfi. „Þetta er baráttuhreyf-
ing sem ákveður að hætta að standa
með skilti fyrir utan og æpa á kerfið
og fer þess í stað og gerir innrás í
það, og það finnst mér mest spenn-
andi við söguna. Kvennaframboð
hafa verið reynd í öðrum löndum,
oftast í sveitarstjórnum, en hér á
Íslandi varð þetta miklu stærra
dæmi og þær höfðu meiri áhrif hér
en annarsstaðar. Þær komu í raun
öllum sínum málum á dagskrá og
þegar þær komust á þing þá rauk
þátttaka kvenna í stjórnmálum í
fyrsta sinn upp en þegar þær buðu
fram til Alþingis árið 1983 þá sátu
aðeins 3 konur á þingi. Þá komust
3 kvennalistakonur á þing en alls
Uppþot í Verslun Silla og Valda árið 1984.
Kvennalistakonur voru duglegar við að vekja athygli á málstað sínum með allskyns
gjörningum. Eitt af því sem þær gerðu, þegar verkfallsumræða stóð sem hæst, var
að kaupa inn í grjónagraut því Steingrímur Hermannsson hafði sagt að það væri
besti matur og fólk gæti bara borðað hann. Þá fóru nokkrar konur í verslun Silla og
Valda í Austurstræti og keyptu í grjónagraut en neituðu að borga nema það sem
svaraði hlutfalli af þeim launum sem konur fengu á móti körlum.
Það varð algjört uppþot í versluninni og lögreglan mætti á staðinn.
WASHINGTON D.C. flug f rá
18.999 kr.
TENERIFE flug f rá
19.999 kr.
ALICANTE, BENIDORM flug f rá
13.999 kr.
BOSTON flug f rá
18.999 kr.
BARCELONA flug f rá
13.999 kr.
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Gerðu verðsamanburð,
það borgar s ig!
ÚLLEN,
DÚLLEN
DOFF!
maí - jún í 2015
maí 2015
maí - jún í 2015
maí - jún í 2015
maí - jún í 2015
*999 kr. bókunargjald leggst ofan á hverja bókun og töskugjald er ekki innifalið
nema annað sé tekið fram.
*
*
*
*
*
30 kvennabarátta Helgin 15.-17. maí 2015