Iðnaðarmál - 01.06.1957, Side 18

Iðnaðarmál - 01.06.1957, Side 18
Jxytsamar liýjtmgar r V___________________________________________________________________________________y Framleiðsla og úSun ein- angrunarefna á vinnustaS Notkun frauðeinangrunarefna hef- ur farið mjög í vöxt að undanförnu. Það hefur verið óhj ákvæmilegur galli í notkun þessara efna, að eingöngu hefur verið unnt að nota þaii hálf- unnin frá verksmiðjunum. Ný fram- leiðsluaðferð (Isoschaum) leysir þennan vanda, en með þeirri aðferð er gervifrauðefni framleitt á vinnu- stað í færanlegum vélum og síðan úð- að á veggi og annað, sem einangra þarf, áður en efnið er fullstorknað. Framleiðsluaðferð og vélakostur Hráefni þessarar gervifroðu til- heyra hinum svokölluðu amino-plast- efnaflokki, og eru þau sérstök köfn- unarefnis- og formaldehydblanda. í þessa efnablöndu er síðan sett frauð- efni, sem er þunnur vökvi, og bland- an hert með sérstökum efnahvata (catalysator). Efnin, sem til verða með þessum hætti, eru mjög létt og tiltölulega sterk. Tæki þau, sem notuð eru við þessa einangrunaraðferð, eru tveir færanlegir þrýstikútar (1. mynd). Annar þeirra hefur að geyma hið flj ótandi plastefni, en hinn frauð- efnið. Þessum tveim efnum er bland- að saman með loftþrýstingi, og er þannig framleidd froða úr plastefn- inu. Plastfroðunni er síðan sprautað í gegnum skammbyssulaga úðara. Tæknilegar upplýsingar Vélarnar framleiða plastfroðu í nánar tiltekinni þyngd frá 4 upp í 25 kg á hvern rúmmetra. Vélar, sem framleiða 8 til 12 kg, þykja hentug- astar. Hitaeinangrun 2 cm frauðplasts er sambærileg við hitaeinangrun 34 cm múrsteinsveggjar. Frauðplast þetta þolir allt að 150° hita (Celcius) án þess að verða fyrir nokkrum breyt- ingum, en algjör upplausn á sér stað við 220° hita. Efni þetta verður ekki stökkt við kulda, eins og sýnt hefur verið fram á með því að sökkva því í fljótandi köfnunarefni (196° mínus). Efni af þessari gerð eru álitin þola eld, og þau bráðna ekki. Ef eyðing á sér stað í miklum eldi, þá mynda þau kolsýru- lag, sem kemur í veg fyrir útbreiðslu eldsins. 2. mynd. Þakeinangrun með frauð- plasti. Froðunni er sprautað neðan frá í gegnum striga (sem sést efst til vinstri) að þakplötunum, sem hér hafa verið teknar frá til að sýna einangr- imina. Not Efni þessi hafa þótt sérstaklega hagnýt til eldvarnar í námugöngum eða til einangrunar á alls konar pípu- lögnum, þar sem eldhætta er. Þau hafa og verið notuð í byggingariðn- aði til einangrunar á loftræsingar- kerfum, vatns- og skólplögnum gegn hitatapi og frosti o. s. frv. Einangrun- arlag úr frauðplasti þessu má einnig setja undir þakplötur, eins og 2. mynd sýnir. Framleiðendur: Schaumchemie, Wilhelm Bauer KG., Essen, Huyssen Allee44—46 (Deutschland). Stytt úr grein eftir Baumann, H. „Weit- ere Entwicklungen auf dem Gebiete der Hamstoffformaldehydharz-Schaume“ í KUNSTSTOFFE (Deutschland), 1957 nr. 5, bls. 256—259 (á þýzku). — E. T. D. nr. 1776 (2), European Technical Digests 1957 nr. 9, 122 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.