Iðnaðarmál - 01.06.1968, Blaðsíða 23
gufuflœði (diffusion)
í útveggjum húsa
g/m3
J-
—f/
-y /
>
1-
°C *
Línurit yfir daggarmyndun sem
fall af hitastigi.
Sex ástœður eru til þess að raki fœristtil: aðdráttarafl, vindkraftur, hárpípukraft-
ur, daggarmyndun, uppgufun og gufuflœði. Uppgufun má leysa með loftrœst-
ingu en gufuflœði og daggarmyndun samtímis er mjög hvimleið og getur t. d.
gjöreyðilagt varmaeinangrun. Gufuflœði á sér stað vegna hreyfingar vatnsgufu-
mólekúla á milli lofts með misjafnt rakastig. Daggarmyndun er háð bœði hlut-
fallslegu rakastigi og hitastigi.
Burðarveggir og einangrun geta skemmst af vatnsgufu’sem leitar út úr byggingu
og þéttist á daggarmörkum í veggjum. Með því að vita gufuflœðitölu bygging-
arefna, þykkt þeirra og hitastig í hverjum hluta útveggjar má fara nœrri um
hœttu á daggarmyndun á hverjum stað í vegg og þaki.
Þessi vitneskja fœrir rök að því hvernig beri að einangra, eimþétta og loftrœsta
allar tegundir bygginga og byggingahluta t. d. eldhús og baðherbergi.
Með hliðsjón af meðfylgjandi töflu má finna daggarpunkt fyrir hvern stað í vegg
þar sem hitastig og gufuflœðiviðnám (eimviðnám) eru þekkt.
Með því að fylla inn í líkinguna Ck = Cj -t- — ^ Ji—(Cj -h Cu)
Zs
má reikna út raunverulegan vatnsgufuþrýsting á mörkun laga t. d. ! húsvegg.
Falli allir útreiknaðir punktar á raunverulegri eimþrýstingslínu fyrir neðan dagg-
armarkarlínu er engin hœtta á rakamettun innanfrá. Skerast línurnar hins vegar
er um einn eða fleiri staði að rœða þar sem raki myndast.
Samkvœmt upplýsingum frá Páli Bergþórssyni veðurfrœðingi er hlutfallslegt
rakastig ! íbúðarhúsum 25 til 30% og jafnvel allmiklu lœgra á t. d. sumum
skrifstofum. Það er á verksviði lœkna að segja til um hvað sé hollasta hlutfalls-
legt rakastig í híbýlum. Baðherbergi, eldhús og fundarsalir hafa oft mun hœrra
hlutfallslegt rakastig en að ofan greinir.
almenn regla
Eimþétta ber að innanverðu við einangrun í upphituðum húsum.
athugun á hœttu af
mettaðri vatnsgufu í
einföldum mátsteinsvegg
Útreikningar og athuganir á gufuflœði eru komnar skammt á veg samanborið
við varmaeinangrun og lítið gefið út af niðurstöðum athugana. Punktafletirnir í
vegghlutasneiðingum sýna þó hvar fastlega má búast við mettaðri vatnsgufu.
Q = rakastig inni
Cu = rakastig úti
z = gufuflœðisviðnám
í einu efnislagi
Zg = Samanlagt
gufuflœðisviðnám
í byggingarhluta
Við lítinn hitastigsmun úti og inni er engin hœtta á blautum vegg af mettaðrf
vatnsgufu. Hátt rakastig inni og/eða mikill hitastigsmunur veldur hins vegar
bleytu á veggjum að innanverðu.