Frjáls verslun - 01.02.2008, Síða 12
12 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
Fyrst þetta ...
„Íslendingar hafa nú þegar sýnt
þessum nýja áfangastað fyrir
sumarhús í Marokkó mikinn
áhuga,“ segir Aðalheiður Karls-
dóttir hjá Eignaumboðinu.
Eignaumboðið stóð fyrir
kynningu fyrir stuttu á þeim
fjárfestingartækifærum sem
þar er að finna. Það býður ein-
staklingum jafnt sem stærri
fjárfestum, upp á tækifæri
til að fjárfesta í eignum í
Marokkó.
Hægt er t.d. að kaupa
íbúðir með útsýni yfir strönd-
ina, tveimur svefnherbergjum,
stofu, eldhúsi og baði stutt frá
golfvöllum, vatnsrennibrauta-
garði, verslunum og veitinga-
stöðum á verði frá 6-7 millj-
ónum íslenskra króna.
Einnig er hægt að fjárfesta
í byggingarlandi og fjárfestinga-
verkefnum af ýmsum stærðum.
Eignaumboðið aðstoðar við fjár-
mögnun en mögulegt er að fá
allt að 60% lán í Marokkó.
„Frá náttúrunnar hendi hefur
norður hluti Marokkó upp á
allt að bjóða sem heillað getur
ferðamenn og má helst líkja
svæðinu við Andalúsíu á Suður-
Spáni eins hún var fyrir 25-30
árum,“ segir Aðalheiður.
„Vision 2010 er opinber
áætlun stjórnvalda í Marokkó
og gerir hún ráð fyrir uppbygg-
ingu á alþjóðaflugvöllum,
vegakerfi, verslunarkjörnum og
afþreyingu eins og golfvöllum,
skemmtigörðum, bátahöfnum
og lúxushótelum.
Erlendir fjárfestar hafa sýnt
þessu verkefni mikinn áhuga
og eru þeir stærstu frá Samein-
uðu Arabísku furstadæmunum,
Dubai, og Spáni, auk þess sem
stjórnvöld í Marokkó fjármagna
sjálf mörg þessara verkefna,“
segir Aðalheiður.
Aðalheiður Karlsdóttir:
FjárfestíMarokkó
Hjónin Aðalheiður Karlsdóttir
og Kristinn B. Ragnarsson,
löggiltir fasteignasalar
hjá Eignaumboðinu, t.h.
á myndinni, ásamt þeim
Charles W. Bass og Brian
Russel, samstarfsaðilum
Eignaumboðsins í Marokkó.
Mynd: Geir Ólafsson.
Marokkó er líkt við Andalúsíu á Spáni eins og hún var fyrir 25 árum.
VEL ÞRIFIÐ FYRIRTÆKI
– vellíðan á vinnustaðnum
Láttu okkur þrífa fyrirtækið þitt Sólarræsting ehf. • Kleppsmýrarvegi 8104 Reykjavík • Sími. 581 4000
Fax. 581 4000 • solarraesting.is