Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 18
1 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
Forsíðugrein
J • . .
Rauði þráðurinn í línudansinum
Rauði þráðurinn í línudansinum, sem núna er stiginn í íslensku viðskiptalífi, er vandi bankanna vegna hinnar alþjóðlegu lánsfjárkreppu þar sem aðgangur að ódýru lánsfé er ekki lengur fyrir hendi. Hátt skuldatryggingaálag gerir þeim erfitt fyrir að fá hagstæð lán og halda útrásinni áfram.
Framundan er því erfiður línudans við að halda fenginni stöðu og við blasir að
bankarnir þurfa að hörfa tímabundið og selja eignir og grynnka á skuldum til að
bæta lausafjárstöðu sína. Vandi bankanna er vandi íslenska hagkerfisins vegna þess
að þeir eru orðnir langtum stærri en ríkið og eru drifkraftar efnahagslífsins; það eru þeir
sem bera hitann og þungann af erlendri lántöku síðustu ára og skuldum þjóðarinnar.
Þegar má sjá þess merki að menn hafa skipt um gír. Kaupþing banki hætti við
yfirtökuna á hollenska bankanum NIBC og hyggst selja eignir út úr breska bank
anum Singer & Friedlander fyrir meira en 140 milljarða króna og bæta þannig
lausafjárstöðu sína. Forráðamenn allra bankanna hafa gefið út yfirlýsingu þar sem
lögð verður stóraukin áhersla á að auka innlán bankanna og ná þannig í fé til að
endurlána þar sem ljóst er að ekki verða „pakkaðir inn margir dílar“ á næstunni með
útrás, kaupum og yfirtökum. Rauði þráðurinn er núna að reka
fyrirtækin og ná fram innri vexti.
Núna er stiginn línudans í viðskiptalífinu og sumum finnst
allt öfugsnúið. Staða bankanna, styrkur þeirra,
krónubréfin, stýrivextir, kreppuverðbólga, evran,
ímyndin, sjálfstraustið og Evrópusambandið eru
rauði þráðurinn í umræðunni.
TExTI: jón G. HauKsson • MYNDIR: GEir ólaFsson