Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 23
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 23
ForsíðugreinForsíðugrein
Hátt olíuverð. Landsins forni fjandi
Rauði þráðurinn í allri verðbólguumræðu á næstu mánuðum er hvernig hátt
olíuverð, núna yfir 105 dollarar tunnan, magnar upp verðbólgu um allan
heim og dregur úr hagvexti allra landa. Þetta verður augljós línudans. Orku
reikningar allra landa eru að hækka. Hátt olíuverð er nánast eins og hafísinn,
landsins forni fjandi. Það er hins vegar ekki á það bætandi að fá þennan gest
í heimsókn í miðri umræðunni um lánsfjárkreppuna í heiminum sem skekur
öll helstu fjármálakerfi heimsins – og ekki sér fyrir endann á.
Evran. Kasta krónunni
Rauði þráðurinn í almennri umræðu fólks um viðskipti á næstu mánuðum
mun snúast um evruna og ESB og hvort Íslendingar komist hjá því að kasta
krónunni. Að krónan sé allt of lítil fyrir íslenska hagkerfið og að auðvelt sé
að ráðast á hana. Þetta er svosem ekki umræða sem er ný af nálinni.
Þetta verður mikill línudans andstæðinga krónunnar því stjórnvöld halda sig
fast við hana þrátt fyrir að mjög sé sótt að henni í viðskiptalífinu. Geir H. Haarde
sagði það beint út á Viðskiptaþingi nýlega að krónunni yrði ekki fórnað.
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, sagði hins vegar á fundi
í Kaupmannahöfn, að hann teldi líklegt að nýr gjaldmiðill yrði á Íslandi eftir
þrjú ár. En hvaða mynt er hann að tala um?
Tvíeggjað. Upptaka evru
aðeins með aðild að ESB
Rauði þráðurinn í umræðunni um evruna er ævinlega sá hvort
hægt sé að taka upp evru án aðildar að Evrópusambandinu,
ESB. Um þetta hafa verið skiptar skoðanir.
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, José
Manuel Barroso, tók af öll tvímæli um þetta á fundi með
Geir Haarde í Brussel nýlega. Íslendingar gætu ekki tekið
upp evru einhliða og gengið í myntsambandið nema ganga
í ESB. Ef annað yrði reynt yrði úti um EESsamninginn og
annað samstarf tengt samningnum í hættu.
Í kjölfar þessarar yfirlýsingar var á andstæðingum ESB að
skilja að umræðan um aðildina hefði verið slegin út af
borðinu – nánast í eitt skipti fyrir öll.
En þetta hafði þveröfug áhrif, þetta reyndist tvíeggjað
vopn. Í rauninni sögðu menn eftir þessa yfirlýsingu forseta
framkvæmdastjórnarinnar eitthvað á þessa leið: Fínt, fyrst
svona er, þá göngum við strax í Evrópusambandið. Það
kemur hvort sem er ekki til þess að Evrópusambandið níðist
á okkur og hirði fiskinn af okkur; taki af okkur stjórnun
auðlindarinnar. Það hefur aldrei gerst í sögu ESB að níðst
sé á þjóðum með fiskimið sín – tekið hefur verið tillit til
hefðarinnar, að margra mati. En því eru auðvitað ekki allir
sammála.
Rauði þráðurinn í varnarræðum
næstu mánuði er að hamra á
sterkri eiginfjárstöðu, glæsilegri
hagnaðarsögu, litlum útlánatöpum
og að nánast engar líkur séu á að
bankarnir verði gjaldþrota – eða
komist í þá stöðu að kalla þurfi út
hjálparsveitir.