Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 26
26 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
Forsíðugrein
Stýrivextir Seðlabankans.
Ræður bankinn við
verðbólguna?
Hér verður örugglega erfiður línudans á næstunni. Vandinn er
auðvitað sá að þrátt fyrir að hér séu hæstu vexti í heimi, þá er hér
býsna mikil verðbólga. Hverju stýra eiginlega stýrivextir Seðlabank
ans, spyr fólk, og veltir því fyrir sér hvort búið sé „að tengja
framhjá“ Seðlabankanum. Hvort í rauninni sé mikið um beinar lán
tökur erlendis sem Seðlabankinn hefur ekki áhrif á, fyrst peningastefna
bankans hefur ekki meiri áhrif en þetta gagnvart verðbólgunni.
Stýrivextir Seðlabankans eru stýrandi um allt bankakerfið og
tiltölulega litlar vaxtabreytingar hafa mikil áhrif, að mati sérfræðinga.
Hverju stýra þeir? Seðlabankinn er í lykilstöðu á markaðnum og
getur hreyft ávöxtunarkröfu allra flokka þegar kemur að heildsölu
markaði með skammtímafjármögnun, millibankaviðskipti, banka
víxla, endurhverfanleg viðskipti (Repó) – en þau eru sögð hafa
mikil áhrif á lausafjárstöðu bankana. Bankarnir leggja þá fram
veðhæfa ríkistryggða pappíra og fá lausafé í staðinn. Repóviðskiptin
eru sögð stjórntæki Seðlabankans.
Rauði þráðurinn í umræðunni er því sá að stýrivextir Seðlabankans
eru mjög stýrandi fyrir allt fjárflæði bankakerfisins. Þeir virka –
þrátt fyrir allt.
Á árum áður var bindiskyldan helsta vopn Seðlabankans til að
hafa áhrif á peningamagn í umferð – en það var á þeim tíma þegar
vextir í landinu voru ákveðnir af ríkisstjórninni.
Línudansinn. Jafnvægi náð?
Hvenær nær línudansarinn jafnvægi? Eftir mikinn stöðugleika undan
farin ár og einstaka útrás bankanna og stærstu fyrirtækja landsins er
rauði þráðurinn skyndilega verðbólga samhliða hægagangi í kerfinu
þar sem lánsfjármarkaður heimsins hikstar og setur íslenska banka
í vanda.
En svo yfirgnæfandi eru bankarnir í hagkerfinu að allt íslenska
hagkerfið nötrar. Bankakerfið hvílir á litlu myntkerfi og gengi
krónunnar þolir ekki mikið áhlaup.
En verður samdrátturinn langvarandi eða næst ef til vill jafnvægi
með haustinu? Svari hver fyrir sig. Það er rauði þráðurinn í umræð
unni. Það er línudansinn.
J • . .
Rauði þráðurinn í umræðunni
er því sá að stýrivextir
Seðlabankans eru mjög
stýrandi fyrir allt fjárflæði
bankakerfisins. Þeir
virka – þrátt fyrir allt.