Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 33
DAGBÓK I N
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 33
28. febrúar
Ný Þjóðhags
stofNuN?
Þjóðhagsstofnun var einhver
allra þekktasta stofnun lands
ins á árunum frá 1974 og fram
til 2002, eða í um þrjátíu ár.
Hennar er greinilega saknað
því tveir stjórnarþingmenn, Árni
Páll Árnason og Ágúst Ólafur
Ágústsson, Samfylkingunni,
lýstu nauðsyn þess að koma
á fót sjálfstæðri rannsóknar
stofnun í efnahagsmálum við
umræður á Alþingi um málefni
bankakerfisins.
„Við finnum sárlega fyrir
því að okkur vantar sjálfstæða
rannsóknarstofnun í efnahags
málum í ætt við það sem Þjóð
hagsstofnun var,“ sagði Árni
Páll. „Ég held við ættum að
hverfa til fyrri tíma og endur
vekja Þjóðhagsstofnun, því ég
held að það hafi verið mistök
að leggja hana niður,“ sagði
Ágúst Ólafur.
Hildur Petersen og Gunnar Þór Gíslason
ákváðu að gefa ekki kost á sér til endurkjörs
í stjórn SPRON og var sjálfkjörið í stjórn
félagsins á aðalfundi þess sem haldinn var í
Borgarleikhúsinu 27. febrúar.
Tvær þekktar konur úr atvinnulífinu voru
kjörnar í þeirra stað á fundinum, þær Mar
grét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma, og
Rannveig Rist, forstjóri Alcan.
Ari Bergmann Einarsson, Ásgeir Baldurs
son og Erlendur Hjaltason buðu sig allir fram
til endurkjörs.
Miklar umræður hafa verið undanfarnar
vikur um innherjaviðskipti í SPRON áður en
félagið var skráð í Kauphöllina og gert form
lega að hlutafélagi. Í yfirlýsingu sem fyrrver
andi stjórn SPRON sendi frá sér kom fram
að Hildur, Gunnar og Ásgeir hefðu
selt hluta af bréfum sínum í
SPRON á umræddu tímabili
en hvorki Ari né Erlendur.
Hildur Petersen.
Gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
27. febrúar
hildur og guNNar hætta í stjórN sProN
Frá aðalfundi SPRON í Borgarleikhúsinu.
Gunnar Þór Gíslason.
Gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Ágúst Ólafur
Ágústsson.