Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 35
DAGBÓK I N
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 35
þriggja voru þeir sammála um
að þeir hefðu átt von á þessu
og að þetta væri sama mat og
þeir höfðu fyrir ári síðan og að
síðastliðið ár hefði verið óþarf
lega mikill hringlandaháttur
með lánshæfismatið.
Bankastjórarnir sögðu að
þetta lánshæfismat myndi ekki
hamla rekstri þeirra og að í
sögulegu samhengi hefði láns
hæfismat bankanna í raun verið
að styrkjast.
29. febrúar
Kristinn geirsson
nýr forstjóri B&l
Frá því var greint þennan dag
að Kristinn Þór Geirsson, stjórn
arformaður B&L og stjórnarfor
maður eignarhaldsfélagsins
Sævarhöfða, hefði verið ráðinn
forstjóri félagsins í stað Ernu
Gísladóttur.
Kristinn hefur undanfarið
starfað sem stjórnarformaður
B&L. Þess má geta að eignar
haldsfélagið Sævarhöfði á og
rekur nokkur félög, þar á meðal
bifreiðaumboðið Ingvar Helga
son.
Erna Gísladóttir sagði í
fréttatilkynningu um forstjóra
skiptin að hún kveddi fyrirtækið
í fullri sátt en með söknuði.
Fjölskylda hennar hefur átt og
rekið B&L í áratugi en seldi
það eignarhaldsfélaginu Sævar
höfða í fyrra.
„Ég hef fulla trú á fyrirætl
unum nýrra eigenda og hlakka
til að sjá fyrirtækið vaxa og
dafna, þó að ég kjósi að nota
þessi tímamót og hverfi til
annarra verkefna,“ sagði Erna
Gísladóttir í fréttatilkynningu.
29. febrúar
„Það þarf
engan doktor í
hagfræði til....“
Erindi Sigurðar Einarsson,
stjórnarformanns Kaupþings
banka, á málstofu BSRB um
lífeyrismál vakti mikla athygli.
Hann talaði að venju mjög
tæpitungulaust um ástandið og
sagði það eitt helsta vandamál
íslensks fjármálamarkaðar að
ekki hefði tekist að laða að
erlenda langtímafjárfesta.
„Ein augljós hindrun í því er
íslenska krónan. Þótt margir
erlendir lífeyrissjóðir vilji
gjarnan fjárfesta í íslenskum
fyrirtækjum og geti vel sætt
sig við þá áhættu sem slík fyr
irtæki bæta við vel dreift eigna
safn, vilja þeir síður taka á sig
þá viðbótaráhættu sem felst í
gjaldmiðlinum.
Önnur ástæða þessa er já,
krónan, eða öllu heldur hvernig
hún hefur verið markaðssett af
Seðlabankanum. Seðlabankinn
hefur hvatt til vaxtarmunavið
skipta með háum skammtíma
vöxtum. Það þarf engan doktor
í hagfræði til að sjá að hvorki
núverandi viðskiptahalli né
vaxtastig gengur til langframa.
Fyrr en síðar munu vextir
lækka og gengi krónunnar leita
jafnvægis. Þeir sem fjárfesta
í krónubréfum vita því mæta
vel að brátt mun verðgildi
þeirra rýrna. Líkast til telja þeir
sjálfum sér trú um að þegar
það gerist geti þeir selt á
undan öllum öðrum. Það veldur
síðan því, að þegar krónan
leitar jafnvægis verður að öllum
líkindum mikið yfirskot. Það
eru með öðrum orðum ekki
langtímafjárfestar sem fjárfesta
í krónubréfum, en ástæða er
til að ætla að töluvert sé um
spennufíkla. Það getur ekki
talist heilbrigt,“ segir Sigurður
meðal annars í erindi sínu.
Kristinn Þór Geirsson, nýr forstjóri B&L.
Kaupþingsstjórnendurnir Sigurður Einarsson og Hreiðar Már
Sigurðsson hafa um margt að hugsa þessa dagana.
2. mars
geir hilmar
í financial times
Geir H. Haarde forsætis
ráðherra var í viðtali við
Financial Times um íslensku
bankana og sagði hann
að þeir hefðu verið mjög
ágengir í útþenslunni og ef
til vill væri kominn tími til
að þeir hægðu á sér til að
róa alþjóðlega fjárfesta og
slá á þær áhyggjur sem uppi
væru af efnahagsástandinu
á Íslandi.
Geir segir að hið háa
skuldatryggingaálag á bank
ann sé algjörlega óréttlætan
legt og engin ástæða sé til
að hafa áhyggjur af því að
íslensku bankarnir geti ekki
borgað. Skuldatrygginga
álag mælir hvað það kostar
fyrir fjárfesta að kaupa trygg
ingu gegn því að útgefandi
viðkomandi skuldabréfs geti
ekki staðið við skuldbind
ingar sínar.
Geir H.
Haarde
forsætis-
ráðherra.