Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 37
DAGBÓK I N
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 37
betri nú ef við hefðum ekki
keypt þessi fyrirtæki.“
Sigurður sagði að bankarnir
hefðu vaxið hratt á liðnum
árum og það hefði skilað
miklum verðmætum inn í
íslenskt samfélag með góðri
þjónustu, miklum skatttekjum
og vel launuðum störfum.
„Ekkert bendir til þess að
sú þróun sé á enda, þótt það
kunni að hægja á henni um
stundarsakir og jafnvel þótt
komi tímabundið bakslag.“
Gylfi Magnússon.
9. mars
íslendingar skulda
mest í heimi
Gylfi Magnússon, dósent í
hagfræði við Háskóla Íslands,
sagði í viðtali á RÚV að
Íslendingar væru orðnir skuldug
asta þjóð í heimi og væru
hreinar skuldir þjóðarinnar
rúmir 1.800 milljarðar.
Þetta eru skuldir umfram
eignir, að sögn Gylfa. Þegar
allar eignir hefðu verið teknar
með í reikninginn og dregnar
frá skuldunum væri niðurstaðan
sú, að hvert mannsbarn á
Íslandi skuldaði tæpar sex millj
ónir króna.
Gylfi sagði einnig í viðtalinu
að á þremur síðustu mánuðum
hefðu hreinar skuldir þjóðarbús
ins aukist um 500 milljarða.
Sú upphæð dygði til að gefa
hverjum einasta Íslendingi sem
hefði bílpróf ágætan bíl.
sagði að Bretar hefðu lagt 6
milljarða punda inn á 170 þús
und íslenska reikninga.
Bæði Kaupþing og Lands
bankinn hafa boðið sparifjár
eigendum háa vexti og benda
á góða afkomu hátt lánshæfis
mat.
6. mars
Björgólfur
í 307. sæti
Björgólfur Thor Björgólfsson er
ríkasti Íslendingurinn. Hann
er í 307. sæti á nýjum lista
Forbes yfir ríkustu menn heims
og nema eignir hans 3,5 millj
örðum dollara, eða um 245
milljörðum króna. Á síðasta ári
var hann í 249. sæti og hefur
því fallið niður um 58 sæti frá
því í fyrra en þá voru eignir
hans metnar jafnmiklar.
Björgólfur Guðmundsson,
faðir Björgólfs Thors, er í
1.014. sæti á lista Forbes í
ár með 1,1 milljarðs dollara
eignir, jafnvirði rúmlega 77
milljarða króna. Hann var í
799. sæti í fyrra en þá voru
eignir hans metnar á 1,2 millj
arða dollara.
Warren Buffett er ríkasti
maður heims, samkvæmt lista
Forbes, en auðæfi hans uxu
á síðasta ári úr 52 milljörðum
dollara upp í 62 milljarða doll
ara.
Auður Bill Gates jókst um
2 milljarða dollara á síðasta
ári en með því náði hann þriðja
sætinu á lista Forbes. Í öðru er
Mexíkóinn Carlos Slim Helu.
7. mars
Kaupþing ekki
farið of geyst
Sigurður Einarsson, stjórnar
formaður Kaupþings, skrifaði
athyglisverða grein í Frétta
blaðið þennan dag, eða sama
dag og aðalfundur bankans var
haldinn, og sagði m.a. að Kaup
þing banki hefði ekki farið of
geyst í útrásinni.
„Ef ég lít til baka á fjárfest
ingar Kaupþings á ég erfitt
með að sjá að við höfum
almennt farið of geyst í fjárfest
ingum okkar,“ segir Sigurður í
greininni.
Í grein hans kemur fram að
huga verði að því hversu miklu
fjárfestingar bankans hafi
skilað. „Ég leyfi mér að efast
um að staða Kaupþings væri
Warren Buffett.Carlos Slim Helu.
Björgólfur Thor Björgólfsson.
FORBESLISTAMENN:
Björgólfur Guðmundson.
Bill Gates.