Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
N æ R M y N d
Fimm landa sýn
Að loknum störfum Guðmundar ytra fluttist fjölskyldan heim árið
1998 og hugðist setjast að í Kópavogi. Þar líkaði þeim hins vegar
engan veginn og fluttust því eftir sjö mánaða dvöl í Vesturbæinn þar
sem þau hafa búið síðan, þó með viðkomu í Frakklandi. Við heim
komuna hóf Guðmundur störf sem framkvæmdastjóri yfir rekstarsviði
SÍF, sem þá var nýbúið að sameina Iceland Seafood, var hann þar yfir
öllum flutningamálum og vann við að endurskipuleggja flutningaferlið.
Tæpum tveimur árum síðar fluttist fjölskyldan aftur út fyrir land
steinana, í þetta skipti til Boulognesur Mer í Frakklandi þar sem
Guðmundur tók að sér rekstur á ferskfiskverksmiðju SÍF ásamt fram
kvæmdastjórastöðu yfir viðskiptaþróun. Hann segir það ákveðinn kost
að vera í raun með fimm landa sýn í starfi sínu í dag, séu England og
Svíþjóð talin með. Samskipti við erlenda viðskiptavini séu dagleg og
auk þess séu rúmlega eitt þúsund starfsmenn fyrirtækisins á Íslandi
frá 44 löndum. Fólk sé jú misjafnt en reynslan hafi kennt sér að Þjóð
verjar séu hreinskiptir og maður viti hvar maður hafi þá, Hollendingar
séu lífleg og glöð þjóð en erfiðara sé að eiga við þá. Loks séu Frakkar
mjög stífir og hlutirnir ekki alltaf eins og þeir sýnist í kaþólskum
heimi og það hafi tekið hvað mest á. Guðmundur getur talað þýsku
og segist vera nokkuð góður í lestri og skilningi á hollensku sem sé
mjög sérstök í tali, þá sé hann vel fær í frönsku restaurantamáli, sem
sé jú mjög mikilvægt. Eftir Frakklandsdvölina kom fjölskyldan heim
árið 2003 og fór Guðmundur þá að vinna á fyrirtækjasviði Lands
bankans, þar sem hann starfaði þar til hann tók við störfum hjá Eimskip.
Guðmundur er kvæntur Kristjönu Ólafsdóttur. Hún rekur verslunina
IBK Heimili og Hugmyndir að Suðurlandsbraut 10.
Á sama tíma sá hann einnig um viðskipti í
Þýskalandi en bjó samtals tæp sex ár ásamt
fjölskyldunni í Hollandi.