Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 55
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 55
tónlist og stutt myndbrot. Ekki er víst að notendur þurfi að kaupa sér
nýja farsíma til að geta nýtt kosti 3G kerfanna því að margir af
farsímunum sem seldir hafa verið síðustu mánuði og misserum eru
jafnframt 3G símar. Flestir myndavélasímar eru t.d. 3G.
Linda Björk segir að þrátt fyrir að Síminn hafi þegar stigið stór skref
til 3G væðingar sé henni þó hvergi nærri lokið. Gert er ráð fyrir að á
þessu ári muni þjónustan verða aðgengileg á 23 þéttbýlisstöðum á
landsbyggðinni.
„Með þessu erum við þó ekki að segja að 3G þjónustan verði
eingöngu í boði í þéttari byggðum landsins því Síminn hefur þegar
hafið uppsetningu á nýjum langdrægum 3G sendum sem munu
þegar fram líða stundir ná að dekka stærra landsvæði en hefðbundið
2G þjónustusvæði dekkar í dag. Stærra þjónustusvæði er þó ekki
mesti ávinningur viðskiptavina, heldur þeir möguleikar sem þeim
mun standa til boða í nýju háhraða farsímaneti. Háhraða gagna
flutningur í gegnum síma eða fartölvur nánast hvar sem er á landinu
mun ýta undir frelsi til athafna og samskipta hjá þeim sem hafa kosið
að búa eða dvelja um styttri eða lengri tíma í afskekktari byggðalögum
landsins,“ segir Linda Björk. Hún getur þess að Síminn hafi verið
búinn að fylgjast náið með tæknilegri og markaðslegri þróun 3G
þjón ustunnar erlendis hin síðari ár og það hafi alltaf verið stefna fyrir
tæki sins að kerfisleg uppbygging standi undir framtíðarþörf markaðar
hvað fjarskiptaþjónustuna varðar.
„3G er einfaldlega næsta skref í slíkri uppbyggingu sem arftaki
2G, þeirrar farsímaþjónustu sem við best þekkjum í dag. Krafan um
aukinn hraða í gagnaflutningum um farsímanet verður sífellt
háværari og þó notkunin fari rólega af stað er það eins með þetta og
margar aðrar nýjar tæknilausnir að þegar markaðurinn hefur áttað sig
á mögu leikunum, þá vex notkunin hratt.“
Auk Símans hefur Nova ákveðið að taka þátt í slagnum á 3G
markaðnum í fullri alvöru. Fyrirtækið er ungt en metnaðarfullt. Það
fékk 3G rekstrarleyfi fyrir farsímaþjónustu á Íslandi í mars í fyrra og
í nóvember sama ár voru sendar félagsins orðnir um 100 talsins.
Formleg starfsemi hófst í desember sl. með eigin 3G dreifikerfi á
höfuð borgar svæðinu og á Reykjanesi, þar sem 3G hafði ekki áður
verið til staðar, og reikisamningum um farsímaþjónustu við Símann
og Vodafone fyrir almenn GSM símtöl. Í öðrum áfanga uppbyggingar
dreifikerfis Nova, sem ljúka á nú í vor, verða settir upp sendar fyrir
SVland, Akureyri, Vestmannaeyjar og fleiri staði.
„Við teljum okkur eiga fullt erindi inn á þennan markað og erum mætt
til leiks til að ná árangri,“ segir Liv Bergþórsdóttir. Hún bendir á að
Nova njóti jafnframt góðs af þekkingu og reynslu eigenda fyrirtækisins
af verkefnum erlendis þar sem Novator hefur byggt upp sambærileg
fyrirtæki frá grunni. Í því sambandi megi nefna farsímafyrirtækið Play
í Póllandi, sem hóf starfsemi í apríl 2007 og hefur náð góðum
árangri.
„Nova mun vaxa með aukinni tilfærslu markaðarins frá GSM þjón
ustu í 3G þjónustu. Þar liggur sérhæfing okkar og sérstaða.
Með 3G er netsamband ekki lengur bundið við ákveðna staði heldur
eru notendur í háhraðanetsambandi hvar og hvenær sem er, en 3G
netþjónusta er sambærileg við ADSL í hraða. Rétt eins og ADSL
háhraðatengingar voru bylting í netnotkun stóreykur 3G notkunar
möguleika farsímans. Með 3G breytast símarnir okkar í litlar fartölvur
sem við notum til samskipta, til að miðla upplý singunum og
afþreyingu. Allt sem hægt gert er á netinu, verður hægt að gera í
farsímanum líka,“ segir Liv en hún segir vaxtar mögu leikana innan 3G
kerfisins vera mjög mikla. Það sýni erlendar markaðs rannsóknir.
Áætlanir Nova miðist við að 20% GSM notenda á Íslandi verði 3G
farsímanotendur eftir aðeins 12 til 18 mánuði. Til marks um vöxtinn
hjá fyrirtækinu bendir hún á að um 1000 notendur bætist við í
hverjum mánuði og útlit sé fyrir að viðskiptavinir Nova verði orðnir
5000 um næstu mánaðamót. Það segir þó ekki alla söguna um fjölda
símakorta því margir notendur eru með tvö kort og nota annað í
símann og hitt í fartölvuna.
Gil
sö
rðu
r
Hv
al
örð
ur
Bo
rg
ar
ö
rð
ur
Haörður
Dritvík
Grundarörður
Hvammsörður
Faxaói
Breiðaörður
Húnaói
Steingrímsörður
Skagaörður
Eyjaörður
Skjálfandi
Axa
rö
rðu
r
Þistilörður
Finnaörður
Vopn
aörður
Seyð
isörður
Reyðarörður
Ló
nsv
ík
H
rútaörður
Ko
lla
ö
rð
ur
Kvigindisörður
Ál
fta
ö
rð
ur
Skálm
arörður
Ke
rlin
ga
r
ör
ðu
r
Patreksörður
Kj
ál
ka
ö
rð
ur
Vatnsörður
Trostansörður
Geirþjófs
örður
Tálknaörður
Arnarörður
Dýraörður
Önundarörður
Ísaarðardjúp
Jöku
lrðir
Súgandaörður
Skutulsörður
Ál
fta
ö
rðu
r
Seyðisörður He
st
ö
rð
ur
Sk
öt
u
ör
ðu
r M
jóiörður
Ísa
ö
rð
ur
Ka
lda
lón
Ve
ið
ile
ys
u
örð
ur
Aðalvík
Fljótavík Hælavík
Hornvík Látravík
Bar
ðsvík
Fur
uör
ður
Rey
kja
örður
Bjar
narö
rður
Ó
fe
ig
s
ör
ðu
r
Trékyllisvík
Reykjarörð
ur
Veiðileys
uörður
Bo
rga
rö
rðu
r
Breiðavík
Loðmundarörður
Mjóiörðu
r
Fáskrúðsörður
Stöðvarörður
Beruörður
Ál
fta
ö
rð
ur
Lón
sör
ður
Pa
pa
ö
rðu
r
SkarðsörðurHornaörður
Herdí
sarvík
Sand
vík
Stakks
örður Straum
svík
Skerjaörður
Kollaörður
Vaðlavík
No
rð
ur
ö
rð
ur
Ví
ð
ör
ðu
r
Bjarnarörður
Ko
lla
ö
rðu
r
M
iðörður
Húnaörður
Kálfhamarsvík
Fljótasvík
Héð
ins
örðu
r
Bit
ru
örð
ur
Ing
ólfsörður
Lón
aö
rðu
r
Leiruörður
Hrafnsörður
Borgarörður
Þjónustusvæði
1. mars 2008
Ó
d
á
ð
a
h
r a
u
Bifröst