Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 80
80 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
Borgartúnshverfið var fátkærahverfi en telst núna fjármálahverfið á Íslandi; Wall Street á Íslandi. Þar eru flest af stærstu fyrirtækjum landsins með höfuðstöðvar. Langstærsta fyrirtæki landsins, Kaupþing banki, setur
sterkan svip á hverfið.
Raunar eru fjögur af tíu stærstu fyrirtækjum landsins í Borgartúns-
hverfinu og samanlögð velta þeirra árið 2006 nam um 655 milljörðum
króna. Fjárstreymið er auðvitað talsvert meira en í hverfinu eru m.a.
Íbúðalánasjóður og Lánasjóður námsmanna, LÍN. Þetta er ekki Wall
Street á Íslandi fyrir ekki neitt.
Borgartúnshverfið – miðstöð viðskipta á Íslandi. Kauphöllin, bankar, sparisjóðir,
endurskoðunarskrifstofur, Íbúðalánasjóður, Hagstofan, lögfræðistofur, veitingastaðir,
verslanir, tölvufyrirtæki, byggingafyrirtæki, hagsmunasamtök og hótel. Frjáls verslun
og Vísbending eru í Borgartúninu og taka púlsinn á viðskiptalífinu.
BORgARTúNSHVERFIð – mIðSTöð VIðSKIpTA á ÍSLANdI
Wall Street
á Íslandi
texti: jón g. HauKsson • myndir: geir ólafsson